Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Side 28
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
ÞEGAR MEST Á REYNIR
- þau vinna ötullega að ímynd hjúkrunarfræðinga
29, janúar síðastliðinn hittist hópur hjúkrunarfræðinga í húsnæði Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Stjórn félagsins hafði beðið þá um að taka þátt
í að styrka ímynd hjúkrunarfræðinga meðal almennings og einnig innan raða
hjúkrunarfræðinga. Ætlunin var að þeir myndu meðal annars styðja við vinnu
samninganefndar félagsins við að undirbúa kjarabaráttu vegna samninga seinna
um vorið. En verkefni þeirra reyndist fljótlega stærra og viðameira en svo.
ímyndarverkefni Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga var formlega sett
á laggirnar 15. janúar síðastliðinn.
Verkefnið er svar félagsins við hvatningu
félagsmanna um að beita sér fyrir átaki
varðandi ímynd stéttarinnar. Slíkar
ábendingar komu fram í hópviðtölum
sem félagið stóð fyrir haustið 2007 og
sem fjöldi félagsmanna tók þátt í.
Verkefnið hefur fengið heitið „Þegar
mest á reynir". Því er ekki eingöngu
beint til hjúkrunarfræðinga heldur einnig
til almennings. Það er viðamikið, um
margt flókið og er ætlað að draga fram
skýrari mynd af starfi hjúkrunarfræðinga
og hjúkrun sem fagi. Valinn hópur
félagsmanna myndar verkefnishóp sem
hefur með höndum hugmynda- og
þróunarvinnu verkefnisins. Hópurinn
er bakland verkefnisstjórans og færir
verkefnið áfram.
Jón Aðalbjörn Jónsson, hjúkrunarfræð-
ingur á skrifstofu FÍH, er verkefnisstjóri.
Ásamt honum er í verkefnishópnum Aðal-
björg Finnbogadóttir, Bríet Birgisdóttir,
Christer Magnusson, Guðný Helga-
dóttir, Hrund Helgadóttir, Ragnheiður
Alfreðsdóttir og Soffía Eiríksdóttir. Bryndís
Nielsen frá almannatengslafyrirtækinu
Athygli og Kolbeinn Marteinsson frá
auglýsingastofunni Skaparinn taka einnig
þátt í verkefninu. Athygli og Skaparinn
hafa gefið ráð og sinnt útgáfumálum sem
verkefninu fylgja. Christer Magnusson
var fenginn til að ritstýra sérútgáfu
Rapportsins á prenti og „Þegar mest á
reynir- hjúkrunarfræðingar á íslandi" sem
kom sem fylgiblað með Morgunblaðinu
um miðjan maí. Þar var fjallað um hjúkrun
í sem víðastri mynd og almenningi var
gefin innsýn í það öfluga starf sem
hjúkrunarfræðingar inna af hendi.
Jón Aðalbjörn Jónsson segir afrakstur
verkefnisins fjölþættan. Meðal annars
hafi birst auglýsingar í dagblöðum,
Ijósvakamiðlum, í strætisvagnaskýlum
og á bílum hjúkrunarfræðinga. „Svo tók
fjöldi hjúkrunarfræðinga höndum saman
um að skrifa greinar um jákvæðar hliðar
starfsins sem við komum á framfæri við
fjölmiðla. Þessi þátttaka félagsmanna í
26
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008