Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Side 17
undanþágunnar frá skattlagningu, ef
keypt er eða byggt innan ákveðins tíma.
Aftur á móti var gróðaskynsreglan af-
numin og er það athyglisvert, að ekkert
er minnst á það atriði, hvorki í skyrslu
embættismannanefndarinnar eða í at-
hugasemdum við frumvarpið.
4.2. Reglumar samkvœmt lögum nr.
68j 1971 og viðbótarlögum nr. 7/
1972
Aðalákvæði tekjuskattslaga um sölu-
hagnað fasteigna hljóða nú svo:
3. málsgrein E. liðs 7. greinar: „A-
góði af sölu fasteigna, þar með talin sala
náttúruauðæfa og keypts réttar til nýt-
ingar þeirra, telst að fullu til skatt-
skyldra tekna á söluári, hafi skattþegn átt
hina seldu eign skemur en þrjú ár. Hafi
skattþegn átt hina seldu eign í full þrjú
ár, en skemur en fjögur ár, skulu aðeins
þrir fjórðu hlutar ágóðans teljast til
skattskyldra tekna, en hafi hann átt eign-
ina í full fjögur ár, en skemur en fimm
ár skal aðeins helmingur ágóðans teljast
til skattskyldra tekna, en hafi hann átt
eignina full fimm ár, en skemur en sex
ár, skal aðeins fjórðungur ágóðans teljast
til skattskvldra tekna. Hafi skattþegn átt
eignina full sex ár eða lengur, telst á-
góðinn ekki til skattskyldra tekna. Þó skal
ágóði af sölu íbúðarhúsnæðis, sem fvrnt
hefur verið samkvæmt E-lið 15. gr., eigi
teljast til skattskyldra tekna, hafi skatt-
þegn átt íbúðarhúsnæðið íbúðarhæft í
þrjú ár eða lengur.“
E. liður 15. greinar tskl. hefur ekki að
geyma skilgreiningu á hugtakinu íbúðar-
húsnæði.
4. málsgrein E. liðs 7. greinar: „Selji
skattþegn íbúðarhúsnæði, sem verið hef-
ur íbúðarhæft í eigu hans skemur en þrjú
ár, en kaupi annað íbúðarhúsnæði innan
árs eða bvggi hús til íbúðar, áður en þrjú
ár eru liðin frá söludegi, skal ágóði af
sölunni ekki talinn til skattskyldra tekna,
ef hið keypta íbúðarhúsnæði eða nvreista
hús er að rúmmáli jafnstórt eða stærra en
hið selda. Ef það er minna að rúmmáli,
skal ágóði af sölunni teljast hlutfallslega
til skattskyldra tekna. Við kaup og sölu
skulu tímamörk miðuð við dagsetningu
kaupsamnings, en við nýbyggingu, að
húsið sé ibúðarhæft. Ákvæði þessi raska
ekki fyrirmælum laganna um skattskyldu,
þegar eigin vinna, sem ekki hefur verið
skattlögð, fæst greidd í söluverði íbúðar-
húsnæðis.“
Tillögur frumvarpsins tóku þannig
verulegum brevtingum í meðförum
þingsins. Reglan um að fjórðungur sölu-
áfróða skyldi alltaf skattskyldur var felld
niður. Skattlagning söluágóða fasteigna,
annarra en íbúðarhúsnæðis, fer minnk-
andi eftir eignarhaldstíma og fellur nið-
ur eftir 6 ár. Hinar upprunalegu reglur
um flokkun íbúðarhúsnæðis í húsnæði til
eigin nota og útleiguhúsnæði, sem lýst er
í 4.1. hér að framan, voru samþykktar
með litlum breytingum, en komu hins
vegar aldrei til framkvæmda, vegna þess
að þeim var breytt með lögum nr. 7 /
1972, sbr. 4. mgr. E. liðs 7. greinar.
Með síðastgreindum lögum var aftur
tekin upp undanþága frá skattlagningu
söluágóða, ef keypt er eða byggt innan
ákveðins tíma frá sölu. Undantekningin
er þó þrengri en hún var samkvæmt lög-
15