Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Side 19
stólarnir þurfi þar að auki að taka af-
stöðu til huglægrar afstöðu skattþegns.
Þegar um er að ræða sölu í gróða-
skyni verða dómstólarnir aftur á móti
alltaf að taka sérstaka afstöðu til hinn-
ar huglægu afstöðu skattþegnsins. Skatt-
þegnar sem eru atvinnurekendur, eru að
þessu leyti ver settir réttarfarslega, þar
eð sönnunarbyrðin um, að ákveðin sala
falli utan atvinnu þeirra, hvílir í raun
á þeim.* Mörkin milli gróðaskynstilfella
og atvinnurekstrartilfella geta þó oft ver-
ið óljós og algengt er, bæði í danskri
og íslenzkri framkvæmd, að krafa skatt-
yfirvalda sé byggð á báðum þessum sjón-
armiðum.
Svo sem áður er lýst, hefur söluágóði
fasteigna í þremur tilfellum verið skatt-
skyldur samkvæmt íslenzkum tekjuskatts-
lögum. í fyrsta lagi þegar salan féll und-
ir atvinnurekstur skattþegns, í öðru lagi
ef ætla mátti, að skattþegninn hefði keypt
eignina í því skyni að selja hana aftur
með hagnaði, og í þriðja lagi, ef um var
að ræða sölu fasteignar, sem verið hafði
skemur en 5 ár í eigu skattþegns, sbr. þó
undanþáguna.
Gróðaskynsreglan er, eins og áður
greinir, fallin úr gildi, en atvinnurekstr-
arreglan og ára-reglan eru enn í fullu
gildi; sú síðarnefnda þó með nokkrum
breytingum. Að ágóði hefur verið talinn
skattskyldur samkvæmt einhverri af þess-
um þremur reglum, hefur skattalega leitt
til sömu niðurstöðu, að öðru leyti en því,
að tap af sölu í atvinnurekstri hefur mátt
*Sbr. R. Koch-Nielsen: Skattepolitisk
oversigt (SPO) 1964, bls. 269.
draga frá tekjum yfirleitt, en tap af
gróðaskynssölu éða sölu samkvæmt ára-
reglunni má aðeins draga frá hagnaði af
samskonar sölu á sama ári.
Reglunni í a-lið 10. gr. íslenzku tekju-
skattslaganna — um ágóða af sölu fast-
eigna, sem fellur undir atvinnurekstur
skattþegns — er og hefur verið ætlað að
ná fyrst og fremst til þeirra skattþegna,
sem hafa atvinnu af því að kaupa fast-
eignir fyrir eiginn reikning og selja þær
aftur. En atvinnurekstrarreglan getur
einnig átt við um byggingariðnaðarmenn,
sem kaupa og byggja fasteignir, sem þeir
síðan afhenda. Atvinnurekstrarreglan er
mjög svipuð að efni til og sú danska, þótt
framkvæmdin í Danmörku og á íslandi
hafi verið nokkuð ólík. Byggingariðnað-
armenn yru yfirleitt skattaðir af þeim
hagnaði, sem þeir hljóta af byggingu og
sölu fasteigna. Það virðist því almennt
sanngjarnt, að þeir geti byggt eða keypt
hús til eigin nota og selt það síðan með
hagnaði, án þess að sá hagnaður sé skatt-
lagður, ef lagaskilyrðum er að öðru leyti
fullnægt. Vandamálið er hins vegar að
gera sér grein fyrir því, hvort viðkomandi
fasteign er byggð sem þáttur í atvinnu
aðila eða til eigin nota.
Þegar ég tala um atvinnurekstrarregl-
una í þessari grein, á ég fyrst og fremst
við þau takmarkatilfelli, sem upp koma,
en ekki þá óumdeildu reglu, að menn eru
skyldugir til þess að greiða skatt af at-
vinnutekjum sínum. Ekki er ólíklegt að
mikið reyni á þessa reglu í framtíðinni
eftir að gróðaskynsreglan var felld úr
lögum.
Ég mun hér á eftir, í 5.2. rekja ýmsa
Í7