Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Page 32
Bjarni Lúðvíksson
XI. Þing
norrænna endurskoðenda
Dagana 19.—22. júlí var haldið í
Reykjavík XI. þing norrænna endurskoð-
enda. Var það í fyrsta sinn, sem félag
löggiltra endurskoðenda hefur séð um
þinghaldið. Þetta þing var hið fjölmenn-
asta, sem haldið hefur verið til þessa og
komu hingað á sjöunda hundrað nor-
rænna gesta, þar af um þrjú hundruð
endurskoðendur. Fimmtíu og fimm ís-
lenzkir endurskoðendur sátu þingið, auk
þess sem makar þeirra tóku þátt í því
samkvæmislífi, sem iðkað var, þegar hlé
gafst frá þingstörfum.
Að baki öllum undirbúningi þingsins
lá mikið starf og erilsamt og luku þing-
menn upp einum rómi, að mjög vel hefði
verið að honum staðið. í fremstu víglínu
við undirbúninginn voru meðlimir und-
irbúningsnefndar, þeir Halldór V. Sig-
urðsson formaður, Atli Hauksson, Bergur
Tómasson og Ólafur Nilsson. Eiga þeir
skildar beztu þakkir annarra þingmanna,
sem nutu ávaxtanna af erfiði þeirra.
Setning þingsins fór fram við hátíð-
lega athöfn i Háskólabíói. Halldór V.
Sigurðsson þingforseti bauð gesti vel-
komna og setti þingið. Fórst honum það
hönduglega með stuttri og gagnorðri
ræðu. Hlaut hann fyrir lófatak mikið hjá
þingheimi. Því næst héldu önnur stór-
menni stuttar tölur í tilefni dagsins. Það
voru þeir Bo Fridman, formaður norræna
endurskoðendasainbandsins, Guðlaugur
Þorvaldsson, rektor í Háskóla íslands,
Francis Shearer, forseti Evrópusambands
endurskoðenda og Matthías Á. Mathiesen,
fjármálaráðherra íslands. Voru ræður
þeirra allar hinar áheyrilegustu og var
þeim vel fagnað. Hópur hljóðfæraleik-
ara fór með vmislega norræna tónlist
inn á milli ræðuhaldanna og fannst
þingmönnum það vel til fundið.
Þingið var haldið að Hótel Sögu og
í Háskóla íslands. Fjallaði það um tvö
mál, sem varða mjög stétt endurskoð-
enda:
I. Góð endurskoðunarvenja í nútíð og
framtíð.
II. Áritun og skýrsla endurskoðenda.
Flutt voru fjögur framsöguerindi um
efnin af þeim Bertil Edlund, Svíþjóð, S.
E. Schaumburg-Miiller, Danmörku, Erik
Amundsen, Noregi og Tage Andersen,
Danmörku. Báru þeir sig allir vel í ræðu-
stóli, og þótti þingmönnum gott að hlýða
máli þeirra.
Að loknum ræðuhöldum þessum, var
þingmönnum skipt í átján starfshópa, sem
hver um sig fjallaði um afmörkuð vanda-
mál innan dagskrárefnanna. Stóðu um-
ræður þessar í tvo daga með stuttum hlé-
um. Var leitast við að ná fram sem mestri
einingu um niðurstöður innan hvers hóps,
eftir að málin höfðu verið rædd frá öll-
um hliðum. Tókst það áfallalítið í flest-
um hópunum. Talsmaður og skrifari hvers
hóps skiluðu síðan af sér niðurstöðum
til níu manna nefndar, sem rökræddi þær
í hringborðsumræðum síðasta dag þings-
ins til þess að reyna að gefa þingheimi
öllum heildarmynd af starfi hópanna.
Hringborðsumræður þessar þóttu fara hið
bezta fram, enda var þar valinn mað-
ur í hverju rúmi og þóttust þingmenn
hinir fróðustu að þeim loknum. Til marks
um hve þungt þessum riddurum
30