Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 50

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 50
afskrifað út frá hinu þekkta virði nýs fjármunar af sömu eða nokkurn veginn sömu gerð. í öðrum tilfellum er um að ræða mjög sérhæfð tæki; sem eiga fáa eða enga sinn lika; eru e.t.v. algjörlega staðbundin; og framleiðslu sams konar tækja e.t.v. hætt vegna uppgötvunar „fullkomnari“ tækja til sömu nota. Ef hætt er að framleiða tæki af því tagi, sem meta þarf til gangverðs (!), mæla þeir Edwards og Bell með því að stuðzt sé við vísitölu framleiðslukostnaðar á- þekkra tækja, enda munu vísitölur af því tagi vera á boðstólum í ríkum mæli í há- þróuðum iðnaðarríkjum. En ekki eru allir á eitt sáttir um, að svona aðferðir gefi þá matstölu, sem eft- ir skyldi sótzt. Þrátt fyrir megna óá- nægju með kaupverðsregluna (eða regl- una um tekjur sem innleystar tekjur) og þrátt fyrir allsterkan vilja til þess að fórna nokkru í sannreynanleika (verifia- bility) fyrir upplýsingar, sem væru betur viðeigandi (relevant), hafa endurbætur dregizt á langinn einmitt fyrir það, að ekki hefur tekist samkomulag um, hvern- ig skyldi staðið að gangverðsmati fasta- fjármuna. Og áður en skilið er við þá Edwards og Bell, er rétt að taka fram, að þeir ætluðust ekki til, að horfið yrði frá því að semja reikningsskil eftir hefð- bundnum reglum, heldur skyldi gang- verðsreikningsskilum teflt fram þeim til fyllingar.* *Philip W. Bell: On Current Replacement Costs and Business Income, í Asset Valu- ation, ritstj.: R.R. Sterling, Scholars Book Co., Lawrence, Kansas, 1971. Tillögur Sandilands-nejndarinnar Nú nýlega hefur það gerzt í Bretlandi, eftir útkomu álits nefndar undir forystu Francis E. P. Sandilands,* að viðtækt samkomulag hefur náðst þar í landi um heilsteyptar endurbætur í þá átt, sem þeir Edwards og Bell höfðu bent. Hér skal reynt i örstuttu máli að gera nokkra grein fyrir meginefni þessara tillagna að því leyti sem þær vikja frá eða nákvæma hugmyndir þeirra Edwards og Bell. Við virðingu fjármuna til eignar er mælt með þvi, er þýða má með notavirði, „value to the business11. Þetta virðishug- tak, sem rakið er til J. C. Bonbright,** er skýrgreint sem sú fjárhæð, sem eigandi (fvrirtæki) færi á mis við, ef hann yrði sviptur fjármuninum, vitandi það þó með hæfilegum fyrirvara, nægilegum til þess að gerðar yrðu ráðstafanir til að bæta skaðann. Virðum nú nánar fyrir okkur, hvernig þetta virði verði fengið. Við mat einstakra fjármuna, annarra en peninga og krafna, sem hljóða á ákveðna fjárhæð, koma til greina þrir meginhættir um virðingu: (1) Verð við innkaup nú, endurkaups- verð (EKV). Þetta er sá virðisgrundvöllur, sem þeir Edwards og Bell settu allt sitt traust á. (2) Idreint söluvirði (HSV), þ.e.a.s. söluverð að frádregnum þeim kostn- *Inflation Accounting, Report of the In- flation Accounting Committee, Her Maje- sty’s Stationery Office, September 1975. **J. C. Bonbright: The valuation of Pro- perty, McGraw—Hill, 1937. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.