Ráðunautafundur - 12.02.1978, Blaðsíða 12
106
Sé ræktunin umfangsmikil eru kaup á einkorna sáðvél
ekkert álitamál. Meö slíkum sáövélum er unnt aö raéa fræinu
meö 12-15 cm millibili. Hins vegar er margra hluta vegna sáö
þéttar eða meö ca 5 cm bili, en þá þarf um 1.2 kg af fræi/ha
miöað viö 300 fræ/g. Verö á fræi af ísl. stofnum var á
árinu 1977 kr. 2160 pr. kg, og á norska afbr. Tröndersk 2665
kr. Bent skal á sáÖhjól sem eru handhæg í minni garðlöndum,
en harla ónákvæm. Verulega má bæta þar um meö því að blanda
sagógrjónum viö fræiö. Var verð slíkra hjóla kr. 5600 áriö
1977.
Vaxtarrymi - grisjun
Blaðþekja gulrófna getur orðiö mikil, en er þó yfir-
leitt minni á íslenskum stofnum en ýmsum erlendum. NokkuÖ
verður aö taka tillit til þess atriðis viö ákvörðun vaxtar-
rýmis. Meðal annars vegna nauösynlegra varnaraðgeröa gegn
kálmaðki, kemur ekki annaö til greina en aö sá í raðir.
Algengast er að hafa 55-60 cm milli raöa og 15-20 cm
milli plantna. Ræöur vaxtarrýmið nokkru um stærö rófna og er
því rétt aö hafa þaö eitthvað þrengra ef markaður kýs smáar
•rófur.
Hjá einhverri grisjun verður vart komist jafnvel þótt
sáð hafi verið meö einkorna vél. ÁríÖandi er aö grisja
snemma, þó þurfa aö vera komin 3-4 blöö á plönturnar.
Afbrigði
Afbrigðaval skiptir höfuömáli viö hérlenda ræktun. Þau
þurfa aö vera kuldaþolin og ekki gjörn á aö tréna og njóla,
en slíkt getur gerst ef þaö kælir mikið eöa frystir á spírunar-
tíma eða á kímplöntuskeiðinu.
íslensk afbrigði eru yfirleitt mjög þolin gagnvart veö-
ur um hleypingum, en auk þess eru þau safarík og ljúffeng,
t.d. Kálfafellsrófa, íslensk rófa. Sama gildir um viss norsk
afbrigði s.s. Tröndersk Hylla, Brandhaug, Stenhaug-. Mörg er-
lend afbrigði eru samt mun uppskerumeiri en xslensk, t.d.
östgöta II og Gry, en bæði hafa grænan koll. I þessum af-