Ráðunautafundur - 12.02.1978, Side 13
107
brigðum hefur ekki borið mikið á trénun.
Illgresi
Fyrst og fremst vegna ágangs illgresis hafa framleið-
endur flutt ræktunina til, oftast á 2-3 ára fresti. Slíkt
væri æskilegt að komast hjá og mögulegt ef ekki ríktu hér
jafn mikil sjónarmið hjarðbúskapar og raun ber vitni.
Illgresi má halda mikið í skefjum með góðum tækjabún-
aði raðhreinsunar. Að vísu er óhjákvæmileg þjöppun tækja
neikvæð, en rótarávextir þola þetta betur en kartöflur.
Á markaði eru illgresisefni eins og Ramrod, en af því
þarf 7 kg/ha. Verð á liðnu ári kr. 4040 pr. kg.
Ramrod er úðunarduft sem dreift er með vatni. Það
verður að nota strax og fyrsta illgresið fer að sjást. Ár-
angur þess hefur reynst mjög misjafn, en yfirleitt verður
hann lélegur ef jarðvegsyfirborð er mjög þurrt þegar úðaö er.
Svipuðu máli gildir ef það er kögglótt. Vitað er að 10 kg/ha
skammtur hafi reynst vel hjá einum framleiðanda, mörg undan-
farin ár. Tilraunir á Korpu hafa sýnt að venjulegur skammtur
hefur haldið illgresi þokkalega niðri fram á mitt sumar.
Kálfluga
Alvarlegasti tjónvaldur á rófum og káli um allt land og
getur stórskemmt ræktunina. Brýna þarf fyrir framleiðendum
að fylgjast vel með varpi flugunnar en varptíminn er breyti-
legur á milli ára eftir því hvernig vorar. 1 hlýindum verpir
flugan fljótlega þegar hún á annað borð er byrjuð og má þá
ekki dragast nema viku tíma að hefja varnaraðgerðir.
Eiturefnin Agritox, Basudin og Lindasect 20 eru mest
notuð, en til kaupa á miklu magni og notkunar, þarf sérstakt
eiturefnaleyfi sem kostar að sækja námskeið sem árlega er
haldið.
Agritox er í kornóttu formi, en hægt er að fá dreifara
fyrir slík efni sem tengdir eru sáðtækjum dráttarvéla og
veita varnarefnum x jarðveginn umhverfis fræið. Kornótt efni
þurfa að hyljast 1-3 cm jarðvegslagi, en fari þau dýpra
vérður árangur þeirra lélegri. Af Agritox 7.5% þarf um 30