Ráðunautafundur - 12.02.1978, Page 73
167
landsmótsárum og árum þegar fjóröungsmót eru haldin. Ef
BLUP er notað má einangra þessa skekkju. drval á u (Hender-
son, 1973).
Nú valda án efa ýmsar aðstæður því að stóðhestar fá
misgóðar hryssur og afkvæmadómar geta því orðið skekktir
af þeim sökum. Þessu getur t.d. valdið ætterni eða/og
einstaklingsdómur hestsins eða áróðurshæfni eigandans. Hár
er um að ræði úrval á y, sem má í mörgum tilfellum einangra
meö BLUP.
Af öllum þeim umhverfisbreytileika sem verkar á svip-
farsdóm hrossa eru áhrif knapa og temjanda líklega mest.
Nú er fjöldi þeirra knapa sem sýna hross fyrir kynbótadóm
mikill og hver um sig sýnir yfirleitt eitt eða örfá hross.
Því er erfitt að höndla áhrif knapanna sem föst (fixed)
áhrif en ef til vill væri ráð að dómnefnd flokkaði knapana
í ca. í flokka eftir reiðmennskuhæfni. Þetta kynni að
auka öryggi mats á kynbótagildi nokkuð.
Án ef liggja oft að baki úrvals á hrossum aðrar upp-
lýsingar en dómar á sýningum. Oft er flókið að ná tangar-
haldi á þessum aukaupplýsingum, en þar sem hægt er að ákvarða
úrvalsfylkiö (selection matrix), L, má taka tillit til L'u
úrvals með BLUP.
VIII. Eiginleikar sem eru mælanlegir hlutlægt.
Áður hefur verið nefnt að eiginleikar dómstigans eru
einungis metanlegir huglægt. Æskilegt væri að geta komið
við hlutlægum mælingum á eiginleikunum.Tilraunum til að
brjóta eiginleika hrossa, sem metnir hafa verið huglægt,
niður í mælanlega þætti er t.d. lýst af Ehrlein er. al.
° 19 7 0 ) , Dusek,.(1975) og Sasimowski (1976).
Hugsanlegt er að velja fyrir mælanlegum eiginleika
með fylgni við eftirsóttan eiginleika, sem einungis er
metanlegur huglægt, í því skyni að fá framför í þeim síðar-
nefnda. Það ætti þó einungis að borga sig ef þessi ójafna
stenst.