Ráðunautafundur - 12.02.1978, Side 89
183
rekin til afréttar.
Stærö bústofnsins er alltaf svipuö:
45 stofnhryssur og 10 aörar fullorönar hryssur, eða
55 hryssur, sem eiga folöld. Um 30 hross tamin eða á einhverju
tamningarstigi, hestar sem verið er aö búa undir sölu og
hryssur sem verið er aö skoöa vegna úrvals til ræktunar eöa
til aö selja, ef þær þykja ekki áhugaverðar fyrir ræktunina.
Auk þess eru svo alltaf um 60 tryppi yngri í uppvexti.
Hross á vetrarfóðri eru venjulega um 130-140. í sumarhögum
ganga, með folöldum, nálægt 180 hross. . Ær hafa oftast verið
um 200 og þær hafa skilað um 300 lömbum aö hausti þannig aö £
sumarhögum hafa gengiö um 500 kindur. Þessi fjárstofn er
fyrst og fremst einskonar kjölfesta eða "ballast" í búskapnum
til að jafna út sveiflur og ölduföll, sem tíöum hrjá markaös-
gengi hrossabóndans. Svo yirðist, af þeirri reynslu, sem
fengin er í Kirkjubæ, að hross og sauöfá fari mjög vel saman
í högum. Vænleiki lamba í Kirkjubæ aö hausti er venjulega
milli 16 og 17 kg. aé meðaltali og flokkast sérlega vel.
Sem fyrr er sagt eru öll folöld sett á vetur, meö þeim
undantekningum aöeins, ef um augljósa skapnaðar eöa heilsufars
galla er að ræða.
Reynt er aö halda þeirri reglu, aö selja aöeins tamin
hross. Þetta hefur þó ekki tekist nú x seinni tíö vegna mjög
mikillar eftirspurnar eftir folöldum og tryppum, Þar er þó
einungis um hesta aö ræða, hryssur eru ekki seldar fyrr en
búiö er aö temja þær einn vetur og velja úr hópnum til endur-
nýjunar £ stofninum. Eftirspurn eftir hrossum frá Kirkjubæ
er mjög mikil og ekki hægt að fullnæja henni nú að undanförnu.
AÖ mestum hluta eru hrossin seld innanlands, bæði sem reið-
hross, en nokkur til kynbóta.
Nokkur hross eru seld úr landi, en þau eru fá. Þessu
veldur þaö fyrst og fremst, aö mér er miklu kærara aö selja
hrossin innanlands og fyrst markaðurinn býðst þar fellur
þetta vel saman.