Ráðunautafundur - 15.02.1986, Blaðsíða 11
1
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1986
ÞRÖUN SILUNGSVEIÐA
- Fiskurinn og bóndinn -
Tumi Tómasson
Veiðimálastofnun.
Inngangur.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að silungsveiðar voru mikið
stundaðar til sveita, þar sem aðstæður buóu upp á slikt. Samfara faskkun
fólks í sveitum dró mjög úr nytjaveiðum á silungi og víða lögðust þær af
með öllu, einkum á afskekktum vötnum. Með auknum fritima þegna
þjóðfélagsins hefur ásókn i stangveiði i vötnum aukist, en almennt hefur
stangveiðin gefið lítinn afla og litlar tekjur til veiðiréttareigenda.
Til skamms tima voru nytjaveióar á silungi ekki stundaðar af neinni
alvöru nema i örfáum vötnum á landinu, fyrst og fremst þá i Mývatni og
Þingvallavatni.
Árið 1972 réði Veiðimálastofnunin til sin Jón Kristjánsson,
fiskifræðing, til starfa við athuganir og ráðgjöf um nýtingu silungs i
stöðuvötnum. Vió það komst verulegur skriður á athuganir silungs, og á
næsta áratug voru silungsstofnar fjölmargra vatna athugaðir. Virtist
sem nóg væri af silungi og yfirleitt takmarkaðist stærð hans við 150-400
gr, vegna mikillar mergðar. Þrátt fyrir góðan afla og mikið upplýsinga-
og fræðslustarf reyndist erfitt að fá menn til að taka upp veiðar að
nýju. Þá beindist athyglin meira að því að hanna og prófa veiðarfæri
sem voru stórvirkari og fljótvirkari en lagnetin.
Veiðarfæratilraunir.
Gildrur voru reyndar viða um nokkurt skeið, en þær hafa ekki náð aó
festast i sessi. Helsti kostur gildranna er að fiskurinn helst lifandi
í þeim, en hæfileiki þeirra til að veiða fiskinn hefur reynst nokkuð
misjafn. Stórvirkt veiðarfæri, dragnót, hefur mikið verið reynd hin
síðari ár. Viða hafa afköst nótarinnar verið góð, en þau eru þó mjög
misjöfn milli vatna og eru einnig mjög háð þvi hvenær er veitt. Helstu
ókostir nótarinnar eru þó að hún krefst töluverðrar fjárfestingar og að
nokkra menn þarf til veiðanna. Liklegast hentar hún best þar sem veiðar
eru stundaðar á félagslegum grundvelli.
Veiðiverkefni, Austfjaróaverkefnið.
Auk veiðarfæratilrauna voru skipulögð veiðiverkefni. 1 fyrstu var
markmiðið aðallega að bæta silungssstofna vatna (Meðalfellsvatn), en