Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 2
2 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir
Ríkið þarf að
greiða bætur
Mannréttindadómstóll Evrópu úr-
skurðaði á fimmtudag að íslenska
ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni
þegar þeir voru dæmdir í skilorðs-
bundið fangelsi fyrir fjórum árum.
Dómurinn var kveðinn upp vegna
skattalagabrota í rekstri Baugs og
fjárfestingarfélagsins Gaums en
áður höfðu Jón Ásgeir og Tryggvi
þurft að greiða sekt vegna þessara
sömu brota.
Taldi Mannréttindadómstóll-
inn málið brjóta gegn banni við
endurtekinni málsmeðferð. Ís-
lenska ríkið var dæmt til þess að
greiða Jóni Ásgeiri og Tryggva
5.000 evrur hvorum í skaðabætur
auk 15.000 evra í málskostnað.
Dýrara að spila í
Víkingalottóinu
Samkvæmt sameiginlegri
ákvörðun aðildarþjóða Víkinga-
lottós verða gerðar breytingar á
lottóinu sem miða að því að gera
leikinn einfaldari. Verð fyrir hverja
röð mun hækka úr 80 krónum
í 100 krónur en að sama skapi
munu vinningslíkur hækka. Frá og
með 18. maí verða áfram dregnar
út sex aðaltölur af 48 en ofurtalan
og bónustölurnar víkja fyrir svo-
kallaðri Víkingatölu. Þær eru frá
einum og upp í átta og er ein Vík-
ingatala valin með hverri röð.
Þetta þýðir að ofurpotturinn
svokallaði heyrir nú sögunni til
en fyrsti vinningur, fyrir sex rétt-
ar tölur og Víkingatölu, hækkar í
grunninn og ætti að ganga oftar
út en áður. Þá er tryggt að fyrsti
vinningur verði aldrei lægri en
þrjár milljónir evra, jafngildi um
340 milljóna króna. Í tilkynningu
frá Getspá kemur fram að nú
verði einnig veittir vinningar fyrir
þrjár réttar tölur sem mun fjölga
vinningshöfum í hverri viku.
Loks verður gerð sú veigamikla
breyting að vinningshlutfallið
hækkar úr 40% í 45% þannig að
heildarfjárhæð vinninga hækkar.
Aðventistar uggandi
yfir komu norskra hjóna
A
ðventistakirkjan á Íslandi
er sögð loga í deilum vegna
komu norsku hjónanna
Abel og Bente Struksnes,
aðventista sem aðhyllast
bókstafstrú, til landsins. Frjáls-
lyndari aðventistar telja að boð-
skapur þeirra sé hatursfullur og
öfgafullur. Hjónin hafa gefið út á Ís-
landi bækling þar sem kaþólska
kirkjan er sögð stefna á heimsyfirráð
í samkrulli með Evrópusambandinu.
Aftast í bæklingnum er lesendum
vísað á heimasíðu Walters Veith,
suðurafrísks aðventista, sem hefur
verið bannað að halda erindi hjá að-
ventistum í Þýskalandi, Austurríki og
Sviss vegna gyðingahaturs.
Óþægilegt fyrir kirkjuna
Eric Guðmundsson, prestur að-
ventista í Reykjavík, segir í samtali
við DV að það sé rétt að koma hjón-
anna til landsins setji söfnuðinn í
erfiða stöðu. Þau séu vissulega að-
ventistar en þar með sagt þýði
það ekki að boðskapurinn sé ís-
lenska söfnuðinum að skapi. Hann
segir að þau séu ekki hér á landi á
vegum íslensku kirkjunnar. Heim-
ildir DV innan kirkjunnar herma þó
að íhaldssamari armur aðventista
hafi komið að undirbúningi og fram-
kvæmd herferðar þeirra hér á landi.
„Þetta hefur allt farið afskaplega
friðsamlega fram. Abel Struksnes
rekur í Noregi boðunarátak á eigin
vegum. Deilurnar snúast aðallega um
að hann sé að gefa út þessi rit án sam-
þykkis eða vitundar kirkjunnar á Ís-
landi. Svo þetta getur komið svolítið
óþægilega út fyrir okkur, því við vitum
ekkert hvað stendur í þessu riti. Hann
er á sama tíma að auglýsa bækur sem
við gefum út og þess vegna tengist
þetta í augum fólks,“ segir Eric.
Gavin Anthony, formaður kirkj-
unnar, segir í skriflegu svari til DV að
heimsókn Abel Struksnes og dreifing
hans á fyrrnefndu riti sé án vitneskju
og samþykkis kirkjunnar.
Varar við heimsyfir-
ráðum kaþólikka
Umrætt rit Struksnes-hjónanna heit-
ir 2017 – 500 árum eftir Lúter og er 40
blaðsíður á lengd. Ritið hefst á því að
farið er yfir sögu mótmælendatrúar
og Marteins Lúters en fljótt fer það
að snúast um hinnar ýmsu samsær-
iskenningar um kaþólsku kirkjuna,
Evrópusambandið og Sameinuðu
þjóðirnar. „Við megum ekki gleyma
því að kaþólska kirkjan sækist eftir
að verða alheimsleg stofnun. Hún
sækist eftir veraldlegu valdi. Það
voru kaþólikkar sem stofnuðu ESB
og það er Vatíkanið sem er á bak við
hugmyndina að hinni nýju heims-
skipan (New World Order),“ segir í
ritinu.
Á vef Boðunarkirkjunnar má sjá
að Abel Struksnes var gestapredikari
þar þann 13. maí síðastliðinn. Á vefn-
um kemur fram að umrætt rit megi
nálgast hjá kirkjunni. Boðunarkirkj-
an er klofningssöfnuður frá Að-
ventistakirkjunni sem fylgdi Stein-
þóri Þórðarsyni eftir hann sagði skilið
við kirkjuna fyrir aldamót. Guðfræði
hópsins er innan ramma aðventista.
Deilt um vígslu kvenna
Heimildir DV innan kirkjunnar herma
að vígsla kvenna til prests sé jafn-
framt mikið hitamál innan kirkjunn-
ar. Þar takist á sömu fylkingar og í máli
norsku hjónanna. Misjafnt er eftir
löndum hvort aðventistakirkjur vígi
konur til prests. Vígsla kvenna hefur
verið hitamál innan kirkjunnar á al-
þjóðavísu. Þau lönd sem Ísland ber sig
helst saman við, svo sem Danmörk,
Þýskaland og Holland, hafa tekið þá
stefnu að vígja konur. Gavin Anthony
segir að kirkjan styðji að konur taki að
sér leiðtogahlutverk innan kirkjunnar,
þar með talið sem prestar. Hann
segir mikilvægt að kirkjan sé í takt við
menningu landsins svo lengi sem það
sé í samræmi við lögmál guðs. n
n Norskur öfgamaður dreifir bæklingi í óþökk Aðventistakirkjunnar
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Samsæri Abel Struksnes
telur kaþólsku kirkjuna
stefna á heimsyfirráð.
Aðventistakirkjan Aðventistar skipast í fylkingar vegna komu norskra hjóna til Íslands.
Formaður aðventistar Gavin Anthony
segir heimsókn Struknes vera án vitneskju
og samþykkis kirkjunnar.„Það voru kaþólikkar
sem stofnuðu ESB
og það er Vatíkanið sem er
á bak við hugmyndina að
hinni nýju heimsskipan.
Þ
eim fækkar hratt á Íslandi
sem búa í eigin fasteignum
ef marka má nýja könnun
Íbúðalánasjóðs sem fram-
kvæmd var í apríl. Samkvæmt
niðurstöðum hennar sögðust 70,1
prósent eiga húsnæðið sem þeir
búa. Þetta er talsverð fækkun mið-
að við sambærilegar kannanir sem
framkvæmdar voru árin 2008 og
2013; 2008 sögðust 77,6 prósent
svarenda eiga húsnæðið sem þeir
búa í og 73,2 prósent árið 2013.
Þá var spurt út í viðhorf fólks til
leigumarkaðarins og þeim fjölgar
mjög sem segjast telja óhagstætt að
vera á leigumarkaði. Árið 2011 töldu
55,4 prósent aðspurðra að óhagstætt
væri að vera á leigumarkaði, en hlut-
fallið er nú 92,7 prósent. Þá sögðust
15 prósent Íslendinga hugleiða að
kaupa fasteign á næstu tólf mánuð-
um og virðist engu máli skipta þegar
litið er til eigna- eða skuldastöðu.
Fólk virðist leggja á það áherslu að
komast inn á fasteignamarkaðinn
þrátt fyrir þær verðhækkanir sem
hafa dunið yfir á síðustu misserum.
Í tilkynningu sem Íbúðalána-
sjóður sendi frá sér vegna
könnunarinnar kemur þó fram að
vandséð er hvernig stór hluti þessa
fólks muni geta keypt. „Mikil kaup-
máttaraukning og meiri sparnað-
ur íslenskra heimila dugir ekki til
þegar fólk vill eignast íbúð, þar
sem methækkun þessara tveggja
mælikvarða á velmegun fólks er þó
sýnu minni en hækkun fasteignar-
verðs.“n
Fasteignaeigendum fækkar
Flestir vilja samt komast inn á fasteignamarkaðinn
Húsnæði Sjö af hverjum tíu sögðust eiga fasteignirnar sem þeir búa í. Þetta er minna
hlutfall en árið 2008. MynD Sigtryggur Ari
Sól og sumar
um helgina
Það verður bjart á suðvesturhorni
landsins á laugardag og gæti hit-
inn farið í allt að sautján stig sam-
kvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Léttskýjað verður um mestallt
land á laugardag en þó eru líkur á
þokubökkum við austurströndina.
Hiti verður 7 til 17 stig.
Aðeins mun draga fyrir sólu
á sunnudag en þó verður bjart
norðan og vestan til, en annars
skýjað. Hiti breytist lítið á sunnu-
dag. Þá spáir Veðurstofan ágætis
veðri í næstu viku; milt verður í
veðri og bjart víða.