Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 13
Helgarblað 19.–22. maí 2017 fréttir 13
ferðamenn frá Bretlandi oftast verið
fjölmennasti hópurinn hér á landi
undanfarin ár, með einstaka naum
um undantekningum. Voru þeir til
að mynda um 240 þúsund árið 2015
en tæplega 317 þúsund í fyrra. Að
eins Bandaríkjamenn hafa skákað
Bretum síðastliðin tvö ár sem árin
þar á undan voru fjölmennastir.
Styttri ferðir og ódýrari
afþreying
Jón Þór Gunnarsson, framkvæmda
stjóri ferðaþjónustufyrirtækisins
Arctic Adventures, segir í grein sem
birtist í Fréttablaðinu þann 17. maí
síðastliðinn að afkoma í ferðaþjón
ustu hafi hrunið á síðasta ári vegna
styrkingar krónunnar og því ein
kennilegt að ofan á lakari afkomu
skuli nú koma ný skattheimta í formi
hækkunar virðisaukaskatts á grein
ina. Þar viðrar hann einnig þær
áhyggjur kollega sinna að kauphegð
un ferðamanna breytist.
„Ferðamenn eru farnir að stytta
ferðir sínar til Íslands og sækja í
ódýrari afþreyingu til að lækka
ferðakostnað. Erlend fyrirtæki eru að
segja upp samningum við innlenda
aðila og vilja frekar sjá um ferðir sjálf
á Íslandi. Þessi fyrirtæki flytja með
sér bíla og leiðsögumenn til lands
ins og borga engin gjöld á Íslandi.
Afleiðingin af frekari skatta og verð
hækkunum getur því hæglega orðið
minni tekjur fyrir ríkið,“ ritar Jón Þór.
Bílaleigur með varann á
Framkvæmdastjóri einnar stærstu
bílaleigu landsins, Bílaleigu Akur
eyrar, gaf það út í samtali við Við
skiptablaðið í mars síðastliðnum
að þar á bæ ætluðu menn ekki að
fjölga bílum í ár, í fyrsta sinn frá ár
inu 2009. Sagði Steingrímur Birgis
son að mönnum litist illa á blikuna
og ætluðu að hafa vaðið fyrir neðan
sig gagnvart styrkingu krónunnar. Sú
styrking hefði veruleg áhrif á afkomu
fyrirtækja í ferðaþjónustu.
„Afkoman er í flestum tilfellum
fokin út um gluggann. Hjá okkur
hefur styrking krónunnar haft mikil
áhrif. Við verðleggjum okkur í evrum
en allur kostnaður er í krónum.“
SAF stigu síðan fram í apríl síð
astliðnum til að mótmæla samráðs
leysi stjórnvalda þegar ákveðið hefði
verið að leggja allt að fjögurra millj
arða króna álögur á bílaleigur um
næstu áramót, þegar bílaleigubílar
fara í efsta þrep vörugjalda.
Glórulaust
Vöxturinn í ferðaþjónustunni hefur
líklega hvergi verið jafnsýnilegur og
í hótelbransanum, þar sem fjölgun
hótela og gistirýma af öllum stærð
um og gerðum hefur ekki farið fram
hjá nokkrum Íslendingi. Hótelbrans
inn er ekki ónæmur fyrir breyttum
markaðsaðstæðum frekar en aðrir.
„Styrking krónunnar er að hafa
áhrif hjá okkur,“ segir Geir Gígja,
sölu og markaðsstjóri Hótel Arkar,
Hótel Kletts og Hótel Cabin, að
spurður um áhrifin.
„Við finnum að það er erfiðara að
selja herbergin í dag en það var fyrir
nokkrum mánuðum. Ferðaskrifstof
ur fá oft frátekinn ákveðinn fjölda
herbergja sem þeir fara svo í að selja,
við sjáum að í dag er miklu meira
um að einungis hluti þessara her
bergja seljist auk þess sem meira er
um að heilu ferðirnar eru afbókaðar.“
Geir segir þetta sérstaklega mikið
áhyggjuefni þegar horft sé til þess að
ríkisstjórnin vilji auka enn meira á
vanda þessarar stóru atvinnugreinar
með hækkun virðisaukaskatts.
„Það er engin glóra í þeirri hugs
un þar sem sú aðgerð mun hafa
langmestu áhrifin á landsbyggðina.
Það er einmitt landsbyggðin sem
þarf á ferðaþjónustunni að halda.
Það er hætta á því að hækkun virðis
aukaskatts muni leiða til þess að þeir
ferðamenn sem heimsæki okkur
eyði minna, dvelji skemur og fari
styttra en þeir gera í dag. Fjöldinn
mun jafnvel ekkert minnka, aðeins
tekjurnar okkar. Það má ekki gleyma
því að það eru margir aðrir áfanga
staðir sem geta boðið ferðamönn
um upp á flest af því sem við erum
að bjóða upp á. Þessir áfangastað
ir eru orðnir hagkvæmari í verði nú
þegar og verða það enn frekar með
virðisaukahækkun ríkisstjórnarinn
ar. Ferðamenn eru ekki óþrjótandi
auðlind og vanhugsaðar aðgerðir
skemma mikið til framtíðar.“
Ráðamenn staldri við
Skapti Örn, hjá SAF, tekur undir með
Geir varðandi landsbyggðina.
„Neikvæð áhrif hækkunar á
virðis aukaskatti munu verða mest
á landsbyggðinni. Þegar kostnaður
ferðamanna hækkar um tugi pró
senta vegna launahækkana, gengis
þróunar og hærri virðisaukaskatts
hafa þeir minni fjárráð til að ferð
ast um landið. Fótunum verður
kippt undan rekstrarhæfi fyrirtækja
á landsbyggðinni, sem mörg eru
lítil og hafa fjárfest mikið að undan
förnu.“
Skapti segir SAF hafa fulla trú
á því að ráðamenn á þingi muni
staldra við og endurskoða þessar
miklu skattahækkanir í umræðu um
fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar í
næstu viku.
„Það er gríðarlega mikið undir
og við gerum þá kröfu að þingmenn
vandi sig við afgreiðslu málsins.“ n
Ávaxtaðu betur
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
saman
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
&
Vísbendingar um minni eyðslu Þessi mynd frá greiningu Íslandsbanka sýnir að á meðan fjöldri erlendra ferðamanna eykst er korta-
velta ferðamanna á niðurleið. Mynd ÍSlandSBanki
„Ferðamenn eru
ekki óþrjótandi
auðlind og vanhugsaðar
aðgerðir skemma mikið
til framtíðar