Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Qupperneq 43
23Helgarblað 19.–22. maí 2017 fólk - viðtal
Tekst á við nýtt ævintýri
í annars konar drykkju. Það eru líka
önnur efni komin inn í skemmtana-
lífið, aðallega örvandi efni með til-
heyrandi böli.“
Hefur hópurinn sem kemur á Vog
breyst í gegnum árin?
„Já, talsvert mikið en sjúklinga-
hópurinn hefur ekki minnkað. Áður
fengum við aðallega karlmenn á aldr-
inum 30–45 ára, en þeim hefur fækk-
að, en meira er af ungu fólki og kon-
um.“
Er prógrammið í aðalatriðum
alltaf eins?
„Nei, guð minn almáttugur! Þetta
vandamál er þannig að það er alveg
óskiljanlegt ef horft er á það utan
frá. Það er svo breytilegt og erfitt að
koma auga á samhengið. En þegar
horft er á það innan frá þá sést að
fólkið á það sameiginlegt að það
getur ekki stoppað og notar fíkni-
efni stjórnlaust. Þegar fólk er komið
saman í hóp og strákurinn segir frá
því að hann hafi farið í veskið hennar
ömmu sinnar og tekið peninga fyrir
hassinu eða grasinu þá segir konan
sem er háð pillunum: Nú kannast ég
við það sem þú ert að tala um. Svo er
rætt um það hvernig er að vinna sig
upp og horfast í augu við þá stað-
reynd að maður er búinn að gera alls
konar hluti sem manni eru ekki eig-
inlegir.“
Stundum er sagt að öl sé innri
maður, er það ekki þín reynsla?
„Það fer allt það mannlega af
einstaklingnum við drykkjuna, það
er ekki hans innri maður sem kemur
þá í ljós heldur allt annar maður. Svo
gerist það að manneskjan verður
magnlaus og hættir að hafa getuna til
að sporna við eigin drykkju og ræður
því ekki sjálf hvenær hún byrjar að
drekka. Það þarf mikið átak til að rísa
upp og horfast í augu við að svona sé
komið fyrir manni.
Síðan er misjafnt hvað fólk þarf
til að geta hætt. Allir þurfa að breyta
um lífsstíl, viðhorf og hugsunarhátt,
en það er svo misjafnt hvað þarf til
að svo geti orðið. Þess vegna þarf
„Það fer allt það mannlega
af einstaklingnum við drykkjuna,
það er ekki hans innri maður sem kem-
ur þá í ljós heldur allt annar maður.