Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Qupperneq 61
menning - SJÓNVARP 41Helgarblað 19.–22. maí 2017
RÚV Stöð 2 Sjónvarp Símans
08:00 Everybody Loves
Raymond (19:23)
08:25 Dr. Phil
09:05 Chasing Life (12:21)
09:50 Jane the Virgin (5:22)
10:35 Síminn + Spotify
13:10 Dr. Phil
13:50 Top Gear: The Races
14:40 Psych (2:10)
15:25 Black-ish (19:24)
Bandarískur gaman-
þáttur um fjölskyldu-
föðruinn Andre Johnson
sem er að reyna að
fóta sig í hverfi þar sem
blökkumenn eru ekki
áberandi.
15:50 Jane the Virgin
(17:20) Skemmtileg
þáttaröð um unga
konu sem eignaðist
barn þrátt fyrir að
vera ennþá hrein mey.
Ástarmálin halda
áfram að flækjast fyrir
Jane og líf hennar líkist
sápuóperu.
16:35 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
17:15 The Late Late Show
with James Corden
17:55 Dr. Phil
18:35 King of Queens (5:22)
19:00 Frasier (4:24)
19:25 How I Met Your
Mother (13:24)
19:50 Superstore (10:22)
20:15 Top Chef (13:17)
Skemmtileg mat-
reiðslukeppni þar sem
efnilegir matreiðslu-
meistarar fá tækifæri
til að sýna sig og sanna
getu sína í eldhúsinu.
21:00 Hawaii Five-0 (25:25)
Bandarísk spennu-
þáttaröð um sérsveit
lögreglunnar á Hawaii.
Steve McGarrett
og félagar hans í
sérsveitinni láta ekkert
stöðva sig í baráttunni
við glæpalýðinn, hvort
sem þeir eru að berjast
við morðingja eða
mannræningja.
21:45 Shades of Blue (3:13)
Bandarísk sakamála-
sería með Jennifer
Lopez og Ray Liotta í
aðalhlutverkum.
22:30 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
23:10 The Late Late Show
with James Corden
23:50 Californication (5:12)
00:20 CSI (14:23)
01:05 Scorpion (18:24)
01:50 Madam Secretary
02:35 Hawaii Five-0 (25:25)
07:00 The Simpsons
07:20 Tommi og Jenni
07:45 The Middle (21:24)
08:10 2 Broke Girls (13:24)
08:35 Ellen
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (54:175)
10:20 Who Do You Think
You Are (3:13)
11:05 The Comeback (4:8)
11:35 The Big Bang Theory
12:00 Project Greenlight
12:35 Nágrannar
13:00 Britain's Got Talent
16:55 Bold and the Beautiful
17:20 Nágrannar
17:45 Ellen
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Íþróttir
19:05 Fréttir Stöðvar 2
19:20 Brother vs. Brother
(3:4) Frábærir þættir
með þeim bræðrum
Jonathan og Drew sem
hvor um sig fær með
sér í lið hópi af ólíku
fólki en í hópnum er
t.d. byggingarverktaki,
innanhúshönnuður
og fasteignarsali og
keppa um það hver er
bestur í því að endur-
gera fasteign.
20:05 Hvar er best að búa?
20:35 Cardinal (2:6)
Dramatísk þáttaröð í
sex hlutum sem byggð
er á metsölubók Giles
Blunt. Sögusviðið er
smábær í Alqonquin-
flóa í Kanada þar
sem rannsóknarlög-
reglumennirnir John
Cardinal og Lise
Delorme freista þess
að leysa sérlega flókið
og ofbeldisfullt saka-
mál. Hins vegar gætu
leyndarmál Cardinals
úr fortíðinni stofnað
rannsókninni og um
leið ferli hans í hættu.
21:20 The Path (9:13) Önnur
þáttaröð þessara
dramatísku þáttar-
aðar með Aaron Paul
(Breaking Bad) í hlut-
verki Eddie Lane sem
hrífst með kenningum
sértrúarsöfnuðar eftir
heimsókn á miðstöð
þeirra, skömmu síðar
snýst veröld hans á
hvolf og hann stendur
frammi fyrir erfiðum
ákvörðunum.
22:05 Vice (12:29)
22:40 Girls (10:10)
23:10 Blindspot (21:22)
23:55 Outsiders (7:13)
00:40 The Mentalist (4:13)
01:25 The Young Pope (8:10)
02:20 100 Code (11:12)
03:05 Murder (4:4)
16.50 Silfrið (15:35) Um-
ræðuþátturinn Silfrið
með Agli Helgasyni
og Fanneyju Birnu
Jónsdóttur. Saman fá
þau til sín góða gesti
til að kryfja með sér
atuburði liðinnar viku
og pólitískt landslag
hverju sinni. Stjórn út-
sendingar: Ragnheiður
Thorsteinsson. e.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Háværa ljónið Urri
18.12 Hundalíf (2:7)
18.14 Róbert bangsi (13:26)
18.24 Skógargengið (19:52)
18.35 Undraveröld Gúnda
18.50 Krakkafréttir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.15 Ofurskynjun
dýranna (1:3) (Animal
Super-senses) Heim-
ildarþáttaröð í þremur
hlutum sem rannsakar
skynjun og skynfæri
dýra. Þættirnir kanna
ítarlega mismunandi
tegundir dýra og ótrú-
lega getu þeirra til að
skynja umheiminn með
skynfærum sínum.
21.10 Dicte (7:10) (Dicte
III) Þriðja þáttaröð
um Dicte Svendsen
klóku rannsóknar-
blaðakonuna í Árósum
sem einsetur sér að
leysa hverja gátuna á
fætur annarri. Meðal
leikenda eru Iben
Hjejle, Lars Brygmann,
Lars Ranthe, Ditte
Ylva Olsen og Lærke
Winther Andersen.
Atriði í þáttunum eru
ekki við hæfi ungra
barna.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Jóhanna af Örk (Joan
of Arc) Heimildarmynd
um goðsögnina Jóhönnu
af Örk. Ótrúleg frásögn
af nítján ára sveita-
stúlku sem gerðist einn
þekktasti bardagamað-
ur frönsku þjóðarinna.
23.20 Mótorsport (1:12)
(Torfæra og rallycross)
Þáttur um Íslands-
mótin í rallý, torfæru
og ýmsu öðru á fjórum
hjólum.
23.50 Kastljós
00.25 Dagskrárlok
Mánudagur 22. maí
R
aunveruleikaþættir byggj-
ast yfirleitt á spennu og
samkeppni og mikið er lagt
upp úr því að áhorfend-
um leiðist ekki. Þetta á ekki
við um raunveruleikaþáttinn Keep-
ing Up With the Kattarshians sem
ég fyrir tilviljun uppgötvaði þegar
ég var að flakka milli sjónvarps-
stöðva. Þetta hlýtur að vera einhver
allra hægasti raunveruleikaþáttur
heims því það gerist afskaplega lítið
í honum. Ástæðan er sú að þátttak-
endurnir eru kettlingar og þeir sofa
vært megnið af tímanum. Þrátt fyrir
áberandi tíðindaleysi er þátturinn
einkennilega heillandi. Allavega
fyrir þau okkar sem erum nokkuð
gefin fyrir einfalt líf.
Kettlingarnir búa á tveimur
hæðum, í ansi fallegum húsakynnum,
með kojum og alls kyns fíneríi. Þeim
virðist líða afskaplega vel. Áberandi
er hversu lítið þeir eru gefnir fyrir til-
breytingu, þeir sofa, vakna, borða,
fara í spássitúr og sofa. Svona líf er
ekki bara einfalt, það er þægindin ein.
Nú er ég farin að horfa á þessa
ketti á hverju kvöldi. Ekki lengi í einu,
bara stutta stund. Það er alltaf allt í
lagi með kettlingana. Ég hef alltaf
haldið að ég væri meira fyrir hunda
en ketti, en það er að breytast. Kett-
lingarnir í Kattarshians eru orðnir
heimilisvinir. Þótt þeir geri ekki mik-
ið annað en að sofa og borða þá eru
þeir yfirmáta krúttlegir. n
kolbrun@dv.is
Krúttlegur raunveruleikaþáttur
B
reska heimildamyndin,
sem RÚV sýndi síðastliðið
mánudagskvöld, um síð-
ustu árin í lífi Rembrandts,
kannski mesta málara
allra tíma, var á köflum býsna
áhrifa mikil. Ekki síst undir lok-
in þegar umsjónarmaður þátt-
arins rýndi mjög nákvæmlega í
mynd Rembrandts af sjálfsmorði
Lucretiu. Þarna var sögð afar
átakan leg saga um grimm örlög
ungrar konu. Lengi var staldrað
við þessa mynd og aðra sem
Rembrandt málaði af Lucretiu. Svo
ítarlega var sagan sögð að maður á
alltaf eftir að hafa sterkar taugar til
þessara tveggja mynda og Lucretiu.
Og auðvitað gleymir maður ekki
Rembrandt, þessum stórkostlega
listamanni sem kunni betur á ljós
og skugga en nokkur annar.
Í myndinni var sagt eitthvað
á þá leið að fáir hafi vitað betur
en Rembrandt hvernig tíminn
fer með andlitið. Því til sönnunar
voru sýndar myndir listamanns-
ins af gömlu fólki, þar sem hver
hrukka og lína var til marks um
lífsreynslu og þroska. Um leið
áttaði maður sig á því að slétt og
hrukkulaus andlit eru ekkert sér-
lega spennandi, því þau segja svo
litla sögu.
Snilldarleg listaverk ættu ekki
að fara úr tísku en samt henti það
að ekki varð lengur eftirspurn eft-
ir verkum listamannsins. Þau
þóttu of gróf og ljótleiki sömuleið-
is of fyrirferðarmikill. Okkur voru
sýnd málverk sem þóttu betri en
verk Rembrandts og það var vand-
ræðalegt að sjá þær líflausu glans-
myndir. Furðulegt hvað samtíma-
menn geta misreiknað sig illilega í
mati í list.
Rembrandt lifði það að verða
gjaldþrota, sárafátækur og aleinn.
Hann átti svo miklu betra skilið. n
Rembrandt og Lucretia
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið
Rembrandt Kannski mesti málari allra
tíma.
Lucretia Um
það bil að deyja.
„Og auð-
vitað
gleymir
maður ekki
Rembrandt
Sofið í
baðkari
Allir hljóta
að falla fyrir
kettlingunum
í Keeping Up
With the Katt-
arshians.
„Svona líf er ekki
bara einfalt, það er
þægindin ein.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið