Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 28. júlí 2017
Þ
egar Bryndís samþykkti
að koma í viðtal tók hún
fram að hún nennti ekki
að endurtaka sig og tala
um hluti sem hún hefði margoft
rætt um: „Mér finnst ég alltaf vera
spurð sömu spurninganna.“
Viðtalið hefst því á spurningu
um lífið í dag og hvers vegna þau
hjón kjósi að búa hluta árs í litlu
þorpi á Spáni.
„Þetta var gamall draumur,“
segir Bryndís. Ég hafði mikinn
áhuga á latínu í menntaskóla og
stóð mig vel í frönsku líka, sem
er latneskt mál. Seinna tók ég há-
skólapróf í báðum þessum tungu-
málum. Ítölsku lærði ég af því að
vinna í fimm sumur sem leið-
sögumaður fyrir Ingólf í Útsýn á
Ítalíu.
Svo kom að því, mörgum árum
seinna, að maðurinn minn varð
sendiherra í Bandaríkjunum, þar
sem við áttum fimm góð ár. Vegna
starfa hans kynntumst við Suð-
ur-Ameríku. Það var í fyrsta sinn,
sem ég var í löndum, þar sem ég
gat ekki tjáð mig á máli heima-
manna. Mér fannst það óþægi-
legt svo ég ákvað að gera eitthvað
í málinu. Fann mér argentínsk-
an kennara, unga kvikmynda-
gerðarkonu, Andreu, sem kenndi
mér málfræði í stofunni sinni, og
þegar ég útskrifaðist frá henni, gat
ég sótt tíma í George Washington-
háskólanum.
Þegar við fluttum svo til
Helsinki hélt ég náminu áfram
í háskólanum þar. Sat með tán-
ingsstelpum í tímum og reyndi
hvað ég gat að verða unglingur á
ný. Gaman.
Eftir átta ár í útlöndum urðum
við Jón Baldvin frjáls á ný – og þá
var komið að því að láta draum
minn rætast og kynnast Spáni –
Bryndís Schram skiptir tíma sínum milli Íslands og Spánar þar sem hún er að
læra flamenco. Hún segir síðustu ár hafa verið eins og ævintýri. Kolbrún Berg-
þórsdóttir hitti Bryndísi og forvitnaðist um hið nýja líf hennar - og að sjálfsögðu
kom pólitíkin einnig til tals.
Við þurfum að hugsa allt upp á nýtt„Pólitík dagsins
snýst um óbreytt
ástand. Það gengur
ekki. Það þarf róttækar
breytingar. Við þurfum að
byrja upp á nýtt.Kolbrún Bergþórsdóttirkolbrun@dv.is