Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Side 26
2 Verslunarmannahelgin Helgarblað 28. júlí 2017KYNNINGARBLAÐ
Þetta er ein stærsta vímuefnalausa hátíðin á landinu um verslun-
armannahelgina og er orðin
gríðarlega vinsæl,“ segir
Ögmundur Ísak Ögmunds-
son, einn skipuleggjenda
hátíðarinnar. „Hátíðin hefur
verið haldin frá árinu 1992 og
stækkar með hverju árinu. Við
bjóðum upp á dagskrá fyrir
alla fjölskylduna frá morgni til
kvölds, bæði fasta liði og nýja.
Og við erum með sérstaka
dagskrá fyrir unglingana öll
kvöldin.“
Fjöldi viðburða, skemmtiatriða
og fyrirlestra.
Boðið er upp á fjölda við-
burða og skemmtiatriða
og ættu allir í fjölskyldunni
að finna eitthvað við sitt
hæfi. Á föstudagskvöldinu
eru flottir tónleikar, en þá
stíga bræðurnir Friðrik Dór
og Jón Jónssynir á stokk. Á
laugardag er Brúðuleikhúsið
Íslenski fíllinn með sýningu,
sem Bernd Ogrodnik sér um
og sama dag mætir leikarinn
Björgvin Franz Gíslason og
Bíbí. Sveitaball fyrir alla fjöl-
skylduna er einnig á laugar-
dagskvöldinu.
Á sunnudag er poppguðs-
þjónusta í boði fyrir alla
fjölskylduna og Hæfileikasýn-
ing barnanna, sem öll börn
geta tekið þátt í og þarna
hafa margir stigið sín fyrstu
skref á sviði. Á sunnudag fara
Sæludagaleikarnir líka fram,
þar er keppt í ýmsum grein-
um eins og sterkasta Vatna-
skógarvíkingnum og frjálsum
íþróttagreinum og einnig er
boðið upp á Wipeout-braut,
þar sem leysa þarf alls konar
þrautir til að komast í gegnum
brautina. Og á sunnudags-
kvöld er brekkusöngur og
varðeldur, sem hefur fest sig í
sessi á hátíðinni og hafa ýmsir
einstaklingar í hópi gesta séð
um að skemmta. Jafnframt
er boðið upp á fimm fræðslu-
stundir, sem nokkrir einstak-
lingar sjá um, meðal annars
þau Guðni Már Harðarson,
prestur í Lindakirkju, og séra
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
í Árbæjarkirkju og Erla Björg
Káradóttir markþjálfi.
Fastir liðir á sínum stað
„Það er hoppukastalaþorp
fyrir börnin og bátar til út-
láns án endurgjalds. Fastir
liðir, eins og Vatnafjör eru á
sínum stað. Tuðrudráttur um
Eyrarvatn, koddaslagur og
vatnatrampólín úti á vatni.
Glæný ískjakarennibraut
verður vígð á hátíðinni.Leitin
að gáfuðustu fjölskyldunni
er líka á sínum stað, þá
er spurningablaði svarað
og svo valinn vinningshafi.
Kvöldvökur eru öll kvöldin,“
segir Ögmundur.
Vænlegur kostur fyrir fjöl-
skylduna
„Sæludagar er góður val-
kostur fyrir fjölskylduna,“
segir Ögmundur. Það eru
margir sem koma á hverju
ári, maður sér margar af
sömu fjölskyldunum ár eftir
ár. Undanfarin ár hafa samt
komið inn ný andlit líka sem
er rosalega skemmtilegt. Hér
myndast góð stemning og
góður andi. Allir eru vel-
komnir á Sæludaga.“
Vinsæll og vænlegur val-
kostur fyrir fjölskylduna
SæLUDAGAr Í VATnASKóGi UM VErSLUnArMAnnAHELGinA
Mýrarboltinn er haldinn núna í ár með pomp og prakt í
fjórtánda skiptið um verslun-
armannahelgina. Undanfarið
hafa leikar farið fram á Ísa-
firði en í ár verður Mýrarbolt-
inn haldinn í hinum fallega
bæ Bolungarvík. „Vellirnir í
Bolungarvík eru miklu betri
en á Ísafirði og hér verður
allt til alls á sama svæðinu.
Þarna verða tilbúnir tveir vel
drullugir vellir og hægt er
að bæta þeim þriðja við ef
liðafjöldinn eykst verulega á
næstu dögum. Svo er sund-
laugin hér stutt frá, veitinga-
staðurinn rétt við hliðina
og böllin eru haldin í næsta
húsi. Þetta getur ekki klikkað,“
segir Benni Sigurðsson, eða
Benni Sig eins og hann er
yfirleitt kallaður.
Rússneskt lið
„Stærsta Mýrarboltahátíð-
in var árið 2014 þegar 130
lið tóku þátt. Í fyrra voru
aðeins færri lið en þá var
veðurspáin ekki upp á marga
fiska. Það hefur kannski haft
einhver áhrif. Svo kom bara
á daginn að sólin lét sjá sig
og það varð algjör veður-
blíða. Það má reyndar segja
að það hefur yfirleitt verið
gott veður á Mýrarboltan-
um, svona án gríns, þó svo
það sé alls ekkert ómögu-
legt að spila Mýrarbolta í
vondu veðri,“ segir Benni.
Það eru þónokkur lið búin að
skrá sig á Mýrarboltann í ár
og mun liðum væntanlega
fjölga þegar líður á næstu
viku. „Það eru annars sex
erlend lið búin að skrá sig á
mótið nú í ár og hafa erlendu
liðin aldrei verið fleiri. Meðal
þeirra er rússneskt lið sem
segist ætla að sigra leikana.
Ég veit ekki með það enda
erum við Íslendingar mjög
keppnisglatt fólk. Við verðum
bara að sjá hvað setur, hvort
rússinn hafi þetta, íslenskt
lið eða eitthvað annað.
Svo má nefna að íslenska
kvennalandsliðinu í fótbolta
hefur verið boðið að taka
þátt,“ segir Benni vongóður
um þátttöku stelpnanna.
En er eitthvað gaman að spila
boltaleik í drullusvaði?
„Það er drullugaman að
spila mýrarbolta, en það er
líka ógeðslega erfitt. All-
ar snögghreyfingar verða
miklu hægari og sleip mýrin
hindrar mann mjög. Maður
er alveg búinn eftir tvær
mínútur. Sjálfur er ég mara-
þonhlaupari og hver leikur í
Mýrarboltanum er mér mjög
erfiður. En það er fátt jafn-
skemmtilegt. Þó svo þetta
sé erfið íþrótt þá er hún að
sjálfsögðu fyrir alla. Þau lið
sem hafa tekið þátt síðustu
ár hafa mörg hver verið mjög
skrautleg og eru margir sem
klæða sig upp í ýmiss kon-
ar búninga. Svo fara allir í
sund til þess að þrífa af sér
drulluna og gera sig klára
fyrir ballið um kvöldið,“ segir
Benni.
Fjögur böll
„Það eru nokkrir þekktir
tónlistarmenn sem koma
fram á Mýrarboltaböllunum
föstudag til sunnudags. Þar
má nefna hinn gífurlega kyn-
þokkafulla Helga Björns, sem
sver sig alveg inn í hátíðina,
enda eru allir alveg ótrúlega
sexí í drullunni,“ segir Benni
og hlær. Þær hljómsveitir
sem spila fyrir dansi eru SS-
Sól með Helga Björns í fram-
línunni, Páll óskar og MC
Gauti. Svo spilar Ögurballs-
bandið sem samanstendur
af heimafólki fyrir dansi á
föstudagskvöldinu,“ segir
Benni. Því má gera ráð fyrir
gífurlega góðri stemningu á
Mýrarboltanum í ár og fátt
annað að gera en að skrá
eitt lið eða svo til leika.
Mýrarboltinn er haldinn
um verslunarmannahelgina
í Bolungavík. Dagskrá og
upplýsingar má nálgast
á vefsíðu Mýrarboltans,
myrarbolti.com eða á Face-
book-síðunni. Hægt er að
kaupa keppnisarmbönd og
ballarmbönd á www.tix.is
Skráðu liðið á myrarbolti@
myrarbolti.com
Vel drullugt á Mýrarboltanum
rúSSnESKT Lið SEGiST æTLA TAKA ÞETTA