Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 31
Jaðarrokksveitin Dinosaur jr. hélt nýverið tónleika í Silfurbergi í Hörpu. Hljóm- sveitin er kannski ekki vel þekkt hér heima en aðdáendur hennar létu sig ekki vanta og sveif nostalgían yfir indítónlistinni sem sveitin hóf að spila á níunda áratugnum. Dinosaur jr. var stofnuð árið 1984 af þeim J Mascis gítarleikara, Lou Barlow bassaleikara og Murph trommara og tóku þeir upp þrjár plötur áður en mannabreytingar urðu á síðustu öld. Árið 2005 komu upprunalegir meðlimir aftur saman og hafa þeir gefið út fjórar plötur eftir sameininguna. Alls hefur Din- osaur jr. gefið út ellefu plötur og kom sú nýjasta, Give a Glimpse of What Yer Not, út árið 2016. Platan innihélt talsvert af nýju efni og hlaut mikið lof gagnrýnenda og aðdáenda sveitarinnar. Oyama sá um upphitun, en sveitin spilar jaðarrokk í anda tíunda áratugarins og sækir mikinn innblástur í Dinosaur Jr. Sveitin gaf plötuna Coolboy út árið 2014 við góðar undirtekt- ir og síðastliðið vor kom smáskífan Handsome Devil út. Oyama vinnur nú að efni fyrir næstu plötu. Nostalgískir jaðarrokktónar Dinosaur jr. Rokktónleikar í Silfurbergi Hefur engu gleymt J mascis gítarleikari og söngvari hefur engu gleymt frá því sveitin kom fyrst fram. Hann er jafnframt aðallagahöfundur sveitarinnar. Mynd MuMMi Lú Húðirnar lamdar murph trommari ein- beittur á bak við settið. Mynd MuMMi Lú afslappað andrúmsloft Bassaleikarinn lou Barlow kemur sér fyrir, en stemningin á tónleikunum var eins og á góðri hljómsveitaræfingu. Mynd MuMMi Lú rokkaðdáendur karl Óttar pétursson, meðlimur pönksveitarinnar saktmóðigur og fram- kvæmdastjóri Eistnaflug, Helga dóra Dimmumamma og Bergur geirsson bassaleikari Buffsins með meiru, eru öll miklir rokkaðdáendur og fylgjast með fleiri sveitum en sínum eigin. Mynd MuMMi Lú oyama Hitar upp mannskapinn kári einarsson gítarleikari. Mynd MuMMi Lú úlfur alexander einarsson, gítarleikari og söngvari. Mynd MuMMi Lú Júlía HermannsdÓttir, söngkona oyama. Mynd MuMMi Lú ingvi rafn, bassaleikari Oyama Mynd MuMMi Lú Varningur til sölu Á tónleikum er jafnan einhver varningur til sölu með nafni og mynd viðkomandi listamanns. Mynd MuMMi Lú

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.