Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Qupperneq 31
Jaðarrokksveitin Dinosaur jr. hélt nýverið tónleika í Silfurbergi í Hörpu. Hljóm-
sveitin er kannski ekki vel þekkt hér heima en aðdáendur hennar létu sig ekki
vanta og sveif nostalgían yfir indítónlistinni sem sveitin hóf að spila á níunda
áratugnum.
Dinosaur jr. var stofnuð árið 1984 af þeim J Mascis gítarleikara, Lou Barlow
bassaleikara og Murph trommara
og tóku þeir upp þrjár plötur áður
en mannabreytingar urðu á síðustu
öld. Árið 2005 komu upprunalegir
meðlimir aftur saman og hafa
þeir gefið út fjórar plötur eftir
sameininguna. Alls hefur Din-
osaur jr. gefið út ellefu plötur og
kom sú nýjasta, Give a Glimpse of
What Yer Not, út árið 2016. Platan
innihélt talsvert af nýju efni og
hlaut mikið lof gagnrýnenda og
aðdáenda sveitarinnar.
Oyama sá um upphitun, en
sveitin spilar jaðarrokk í anda
tíunda áratugarins og
sækir mikinn innblástur
í Dinosaur Jr. Sveitin gaf
plötuna Coolboy út árið
2014 við góðar undirtekt-
ir og síðastliðið vor kom
smáskífan Handsome Devil
út. Oyama vinnur nú að efni
fyrir næstu plötu.
Nostalgískir jaðarrokktónar Dinosaur jr.
Rokktónleikar í Silfurbergi
Hefur engu gleymt J mascis
gítarleikari og söngvari hefur engu gleymt
frá því sveitin kom fyrst fram. Hann er
jafnframt aðallagahöfundur sveitarinnar.
Mynd MuMMi Lú
Húðirnar lamdar
murph trommari ein-
beittur á bak við settið.
Mynd MuMMi Lú
afslappað andrúmsloft
Bassaleikarinn lou Barlow
kemur sér fyrir, en stemningin á
tónleikunum var eins og á góðri
hljómsveitaræfingu. Mynd MuMMi Lú
rokkaðdáendur karl Óttar pétursson, meðlimur pönksveitarinnar saktmóðigur og fram-
kvæmdastjóri Eistnaflug, Helga dóra Dimmumamma og Bergur geirsson bassaleikari Buffsins með
meiru, eru öll miklir rokkaðdáendur og fylgjast með fleiri sveitum en sínum eigin. Mynd MuMMi Lú
oyama Hitar upp mannskapinn
kári
einarsson gítarleikari. Mynd MuMMi Lú
úlfur alexander einarsson, gítarleikari og söngvari. Mynd MuMMi Lú
Júlía HermannsdÓttir, söngkona
oyama. Mynd MuMMi Lú
ingvi rafn, bassaleikari Oyama Mynd MuMMi
Lú
Varningur til sölu Á tónleikum er jafnan einhver varningur til sölu með nafni og mynd viðkomandi
listamanns. Mynd MuMMi Lú