Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 34
En hver er þessi gyðja? Við spurð-
um hana nokkurra spurninga til að
kynnast henni betur.
Fullt nafn: Sigrún Lilja Gyðja Guð-
jónsdóttir.
Aldur: 35 ára.
Sambandstatus: Trúlofuð æskuástinni
minni, Reyni Daða.
Börn: Tvær Siberian husky-fjórfætlur,
þær Ísey og Skriða.
Augnlitur: Grænn, brúnn, gulur. Fer
eftir því hvernig skapi ég er í.
Uppáhaldsmatur: Oh, ég bara elska
góða pizzu, fátt sem toppar eina
með pepperoni, extraosti, ananas,
rjómaosti og jafnvel jalapeno, en
þessa dagana bý ég til minn eigin
lágkolvetnabotn þar sem ég er alveg
sykurlaus heilsunnar vegna.
Fyrirmynd: Amal Clooney sem
er rosalega flott og öflug kona
og höfðar mikið til mín, hún er
mannréttindalögfræðingur sem
notar krafta sína til góðs og svo er
George Clooney líka svo heppinn
að vera maðurinn hennar. Angel-
ina Jolie þykir mér líka vera flott
að nýta frægð sína til öflugs starfs í
góðgerðarmálum, en hún er fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna og vinnur fyrir
hag flóttafólks. Hún virðist vera í
þessu af alvöru, en ekki bara til að
vera tengd einhverju góðgerðarmáli
eins og svo margar stjörnur gera
fyrir ímynd sína.
Heilsa, líkamsrækt og mataræði: Mér
finnst gríðarlega hressandi að fara út
að hlaupa og reyni að gera það 2-3
sinnum í viku með voffadömunum
mínum. Það er svo yndislegt að njóta
náttúrunnar og hreyfa sig í leiðinni.
Ég reyni einnig að komast í ræktina
reglulega til að móta kroppinn, en
á sumrin æfi ég meira úti. Ég er á
lágkolvetna- og sykurlausu fæði og
leyfi mér lítið sem hækkar blóðsyk-
urinn. Það hentar mér mjög vel, bætti
heilsu mína og bætir líðanina þegar
öll sykurþörfin fer og slenið sem
sykrinum fylgir.
Uppáhaldsfegrunarráð: Það er erfitt
að velja eitt en ætli ég þurfi ekki að
nefna dermorúlluna. Dermórúllan er
alveg magnað tæki fyrir „gerðu-það-
sjálf “- fegurðarmeðferð heima fyrir.
Ég nota hana 1-2 sinnum í viku fyrir
svefninn og rúlla andlitið vel. Með
því er ég að gata húðina með örlitlum
götum sem ekki sjást, en það neyðir
húðina til að endurnýja sig hraðar
með þeim afleiðingum að maður
ljómar á eftir. Þetta dregur úr hrukk-
um, fínum línum, rósroða og hjálpar
vandamálahúð. Maður sér strax
mun á sér daginn eftir. Þetta er án
efa uppáhalds og geri ég þetta alltaf
daginn áður en ég fer í myndatökur
eða á mikilvæga viðburði.
Besta bíómynd: Notting Hill kemur
fyrst upp, en Pretty Woman fylgir þar
fast á eftir.
Uppáhaldsþættir: Friends verða alltaf
í algjöru uppáhaldi. Mamma segir
stundum að þetta sé eins og einhver
einhverfa hjá mér, ég hef þetta oft á
þegar ég er að dúlla mér heima og
sofna jafnvel út frá Friends á kvöldin.
Það er eitthvað við þættina sem léttir
lundina og lætur mér líða þannig að
sama hvað gangi á verði alltaf allt í
lagi að lokum.
Uppáhaldsbókin: Ég er háð hljóðbók-
um og þá eru þær oft markaðs- eða
viðskiptalegs eðlis með svona inn-
blástursívafi. Ég hlusta á þær þegar ég
æfi, keyri og við hin ýmsu tækifæri
og það er erfitt að velja einhverja
eina. Núna er ég til dæmis að hlusta
á bók sem heitir The 10x Rule, the
only difference between success and
failure eftir Grant Cardone og hún er
frábær.
Plön þín á næstu misserum: Ég hef
haft það að markmiði undanfarið
að einfalda líf mitt. Því er ég að
einfalda reksturinn minn til muna
og fara að einbeita mér að því sem
hjarta mitt vill, sem er að skapa, en í
dag rek ég til dæmis vinsæla verslun
ásamt ýmsu öðru. Ég er með um 30
nýjar vörur sem bíða eftir að verða
að veruleika og hafa þurft að bíða
vegna anna hjá mér. Nú breytist það
vonandi og ég er gríðarlega spennt.
Sumarið fer því í að undirbúa þetta
nýja líf mitt. Í haust fer ég svo með
hóp kvenna í Empower Women-upp-
byggingarferð á skemmtiferðaskip í
Karíbahafinu. Bókanir standa nú yfir
og ganga vel en ferðin snýst um að
þátttakendur byggi upp sjálfstraustið
og fylgi draumum sínum eftir með
dekur- og lúxusívafi í góðum hópi
kvenna. Það gerist varla betra.
Uppáhaldsstaður
sem þú hefur ferðast til: Suður-
Frakkland er í miklu uppáhaldi hjá
mér þegar ég vil slaka á og njóta í
rólegheitunum. Mér líður líka alltaf
voða vel í Los Angeles í Bandaríkun-
um, svolítið eins og maður sé heima,
nema bara í betra veðri.
Ertu með opið Snapchat: Já, snappið
mitt er: theworldofgydja.
Ertu með Instagram og/eða opið
Facebook: Já, Instagrammið mitt er:
theworldofgydja og opna Facebook-
síðan
mín er undir Sigrun Lilja Gydja
Gudjonsdottir.
Hverju mega lesendur Birtu búast
við frá þér: Eitt af mínum mark-
miðum er að hvetja fólk áfram í
því að fylgja draumum sínum. Því
munu pistlarnir mikið snúast um
hvatningu og góð ráð um allt milli
himins og jarðar. Ég er gríðarlega
spennt fyrir þessari nýju áskorun
og veit að þetta verður skemmtilegt
og ef það nýtist einhverjum þarna
úti, er ég sátt.
„Draumarnir rætast hver af öðrum“
Sigrún Lilja Gyðja setur markið og draumana hátt
Sigrún Lilja Gyðja Guðjónsdóttir, oft kölluð Gyðjan sem má rekja til
hönnunarmerkis hennar Gyðja Collection, mun vera með reglulega pistla í Birtu. Þar
mun hún deila með lesendum innblæstri sínum, daglegu lífi sínu ásamt því að gefa
góð ráð og svara spurningum lesenda um allt frá því hvernig koma megi viðskipta-
hugmynd í framkvæmd til hinna ýmsu ráða tengdum heilsu og mataræði. Fyrir þá
sem vilja hleypa út sinni innri Gyðju munu hugmyndir um hvernig megi huga vel að
heilbrigðu útliti slæðast inn á milli líka.
ÆSkuáStin Sigrún Lilja og Reynir Daði eru trúlofuð.
Veröld
Gyðju