Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 41
Við lentum bara hérna,“ segir Helga og hlær. Hjónin bjuggu í Sand- gerði og Keflavík og voru ekkert í veitingabransanum þar. „Ég var búin að hugsa um að opna kaffi- hús, en var kannski of hrædd að stíga skrefið. Kaffihús hafa ekki gengið of vel í Keflavík.“ Helga og Ólafur tóku svo af skarið saman, seldu húsið í Keflavík, fluttu að Hellnum og stofnuðu fyrirtækið Birkisól, sem nefnt er eftir feðrum þeirra og í framhaldinu kaffihúsið Prímuskaffi. Og fyrir átta vikum opnuðu þau veitingastaðinn Stapann, á Arnarstapa. „Ég elska Keflavík, það er bara þannig,“ segir Helga. „En ég elska líka að vera hér. Það er svo mikil víðátta hérna og á hverjum degi er Stapafell fyrir framan mig. Fuglalífið hér er líka einstakt, ég veit ekki hvað þeir heita allir einu sinni. Ég get varla keyrt heim til mín fyrir ungum á veginum. Það er mikil orka hérna fyrir vestan.“ Prímus var skref út fyrir þæginda- hringinn „Það var kominn tímapunktur á að gera eitthvað,“ segir Helga, sem segist hafa verið komin í góðan þægindahring. Hún var búin að vinna nokkur störf í Keflavík, meðal annars sem meðhjálpari í Hvalsnessókn og í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Á Prímus er allt heimagert af mér, bæði uppskriftir, kökur og matur,“ segir Helga. Kaffihúsið er frekar stórt og voru fjárhús áður, sem breytt var í kaffihús. Prímus er vinsælt meðal ferðamanna og fullt af gestum sem koma þangað með rútum og er til dæmis fullt að gera í hádeginu.„Fyrsta árið kom varla Íslendingur hingað,“ segir Helga. „Við getum tekið á móti allt að 160 manns, við erum með einn 100 manna sal og svo annan 60 manna. Við vorum sem dæmi með brúðkaupsveislu fyrir Frakka síðastliðna helgi og stelpurnar sem vinna hjá okk- ur sáu um að klippa út hjörtu og handmála með málsháttum og tilvitnunum. Gestirnir voru einstaklega ánægðir með þetta framtak.“ Stapinn er gæluverkefnið okkar Hjónin tóku síðan ákvörðun um að auka við veitingaúrvalið á svæðinu og opnuðu Stapann fyrir nokkrum vikum. „Stapinn er gæluverkefnið okkar og er í öðr- um stíl, en Prímus. Hér fáum við meira einstaklinga, sem koma á eigin bílum og hafa tímann fyrir sér. Hér reynum við að koma til móts við þarfir allra, bjóðum upp á mat af grillinu, bæði ham- borgara og fisk, við erum líka með tapasrétti sælgæti og ís. Hér getur þú sest inn og fengið þér öl. Við erum einnig með stóran pall, sem við leggjum áherslu á.“ Fimm mínútna keyrsla er á milli staðanna og því hægt um vik að velja þann sem hentar bet- ur. Stapinn er opinn lengur og er opnunartími miðaður við fólkið á staðnum, ef fólk er á svæðinu þá er opið lengur. Helga segir að það hafi komið henni nokkuð á óvart hversu margt fólk væri á ferli þar á kvöldin. „Hér er fólk á kvöldin og jafnvel á nóttunni að rölta um og njóta náttúrunnar. Hér á svæðinu eru fjölbreyttir gistimöguleikar, fólk á sumarhús hér, það er hótel á Hellnum, gistiheimili og tjaldsvæði.“ Það er mikil vinna sem liggur að baki því að opna staði, eins og Prímus kaffi og Stapann og nefnir Helga sem dæmi að í ár fór hún í vikufrí í janúar og núna í júlí tók hún sér einn frídag. „Fyrsta árið tók ég mér eitt kvöld frí og fór í skírnarveislu. Þetta eru svona 16 tímar á dag, sem maður er að vinna. Maður vill auðvitað vera hér og halda utan um staðina og gæðin. En á móti kemur að fjölskylda og vinir eru dugleg að koma og heim- sækja okkur, þar á meðal dæturnar okkar þrjár, sem eru búnar að standa sig vel með okkur og þrjú barnabörn. Mér líður ofsalega vel hérna og fólkið sem býr hér er alveg yndis- legt,“ segir Helga. „Þegar ég var yngri var ég alltaf að mála Snæfellsjökul og málaði þá ætíð Stapafellið með, þau eru bara saman, eru bara systkini. Og þegar ég keypti bústaðinn hér voru tvær leirmyndir eftir mig uppi á vegg þar.“ Það var því kannski röð tilviljana sem olli því að u-beygjan færði þau hjón á Snæfellsnesið. „Ég hlakka til þegar Stapinn verður orðinn 100% klár, en við erum enn þá að hanna hann. Vinnan hér er ofsalega skemmtileg og gefur okkur mikið, þetta er erfitt en þess virði.“ Hjónin Helga Magnea Birkisdóttir og Ólafur Sólmundsson tóku u-beygju í lífinu árið 2014, fluttu úr Keflavík vestur á Snæfellsnes og opnuðu kaffihús á Hellnum. Nýlega opnuðu þau svo annan veitingastað á sömu slóðum, Stapann. Hjónin una sér vel fyrir vestan, umvafin fallegri náttúru og góðum nágrönnum. Helga og Ólafur tÓKu SKref út úr þægiNdaHriNgNum Reka tvo veitingastaði í náttúrufegurðinni á Snæfellsnesi Una Sér vel á HellnUM. Hjónin Ólafur Sólmundsson og Helga Magnea Birkisdóttir una sér vel í náttúrunni á Snæfellsnesi. Kata Mætt þriðja SUMarið í röð . „Við vinnum saman hérna hjónin og við erum með ofsalega flott starfsfólk á báðum stöðum hjá okkur, krakka frá tékklandi sem eru metnaðarfull, glaðleg og áhugasö m. Sum þeirra, eins og Kata, eru hjá okkur þriðja sumarið í röð, þau eru öll að m ennta sig í heimalandinu, en vilja eiga heima hérna á Íslandi. HjÓnin á pallinUM „Ég legg mikla áherslu á að spila íslenska tónlist á Stapnum og mig langar að þróa staðinn frekar og bjóða til dæmis upp á tónleika, jafnvel útitónleika á pallinum. Það er freistandi með þennan stóra pall, að bjóða upp á eitthvað, hér er aðgengi í rafmagn.“ Helga er ekki óvön því að bjóða upp á viðburði, á Prímus kaffi hafa verið fimm myndlistarsýningar. Stapinn arnarStapa Stapann einkennir stór og mikill pallur sem snýr að Arnarstapavegi. „Ég er ofsalega ánægð með staðinn, Ómar pétursson teiknaði húsið og Kristján pétursson bróðir hans og fyrirtæki hans byggðu það. Þeir eru vandvirkir og vel gert hjá þeim. Það er svo fallegt hvernig veggurinn liggur í gegnum húsið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.