Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 41
Við lentum bara hérna,“ segir Helga og hlær. Hjónin bjuggu í Sand-
gerði og Keflavík og voru ekkert
í veitingabransanum þar. „Ég var
búin að hugsa um að opna kaffi-
hús, en var kannski of hrædd að
stíga skrefið. Kaffihús hafa ekki
gengið of vel í Keflavík.“
Helga og Ólafur tóku svo
af skarið saman, seldu húsið í
Keflavík, fluttu að Hellnum og
stofnuðu fyrirtækið Birkisól,
sem nefnt er eftir feðrum þeirra
og í framhaldinu kaffihúsið
Prímuskaffi. Og fyrir átta vikum
opnuðu þau veitingastaðinn
Stapann, á Arnarstapa.
„Ég elska Keflavík, það er bara
þannig,“ segir Helga. „En ég elska
líka að vera hér. Það er svo mikil
víðátta hérna og á hverjum degi
er Stapafell fyrir framan mig.
Fuglalífið hér er líka einstakt, ég
veit ekki hvað þeir heita allir einu
sinni. Ég get varla keyrt heim til
mín fyrir ungum á veginum. Það
er mikil orka hérna fyrir vestan.“
Prímus var skref út fyrir þæginda-
hringinn
„Það var kominn tímapunktur
á að gera eitthvað,“ segir Helga,
sem segist hafa verið komin í
góðan þægindahring. Hún var
búin að vinna nokkur störf í
Keflavík, meðal annars sem
meðhjálpari í Hvalsnessókn og í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Á Prímus er allt heimagert af
mér, bæði uppskriftir, kökur og
matur,“ segir Helga. Kaffihúsið er
frekar stórt og voru fjárhús áður,
sem breytt var í kaffihús. Prímus
er vinsælt meðal ferðamanna og
fullt af gestum sem koma þangað
með rútum og er til dæmis fullt
að gera í hádeginu.„Fyrsta árið
kom varla Íslendingur hingað,“
segir Helga. „Við getum tekið á
móti allt að 160 manns, við erum
með einn 100 manna sal og svo
annan 60 manna. Við vorum
sem dæmi með brúðkaupsveislu
fyrir Frakka síðastliðna helgi og
stelpurnar sem vinna hjá okk-
ur sáu um að klippa út hjörtu
og handmála með málsháttum
og tilvitnunum. Gestirnir voru
einstaklega ánægðir með þetta
framtak.“
Stapinn er gæluverkefnið okkar
Hjónin tóku síðan ákvörðun um
að auka við veitingaúrvalið á
svæðinu og opnuðu Stapann fyrir
nokkrum vikum. „Stapinn er
gæluverkefnið okkar og er í öðr-
um stíl, en Prímus. Hér fáum við
meira einstaklinga, sem koma á
eigin bílum og hafa tímann fyrir
sér. Hér reynum við að koma til
móts við þarfir allra, bjóðum upp
á mat af grillinu, bæði ham-
borgara og fisk, við erum líka
með tapasrétti sælgæti og ís. Hér
getur þú sest inn og fengið þér öl.
Við erum einnig með stóran pall,
sem við leggjum áherslu á.“
Fimm mínútna keyrsla er á
milli staðanna og því hægt um
vik að velja þann sem hentar bet-
ur. Stapinn er opinn lengur og er
opnunartími miðaður við fólkið
á staðnum, ef fólk er á svæðinu
þá er opið lengur. Helga segir að
það hafi komið henni nokkuð á
óvart hversu margt fólk væri á
ferli þar á kvöldin. „Hér er fólk á
kvöldin og jafnvel á nóttunni að
rölta um og njóta náttúrunnar.
Hér á svæðinu eru fjölbreyttir
gistimöguleikar, fólk á
sumarhús hér, það er hótel
á Hellnum, gistiheimili og
tjaldsvæði.“
Það er mikil vinna sem
liggur að baki því að opna
staði, eins og Prímus kaffi
og Stapann og nefnir Helga
sem dæmi að í ár fór hún
í vikufrí í janúar og núna
í júlí tók hún sér einn
frídag. „Fyrsta árið tók ég
mér eitt kvöld frí og fór
í skírnarveislu. Þetta eru
svona 16 tímar á dag, sem
maður er að vinna. Maður
vill auðvitað vera
hér og halda utan
um staðina og
gæðin. En á móti
kemur að fjölskylda
og vinir eru dugleg
að koma og heim-
sækja okkur, þar
á meðal dæturnar
okkar þrjár, sem eru
búnar að standa sig
vel með okkur og
þrjú barnabörn.
Mér líður
ofsalega vel hérna
og fólkið sem býr
hér er alveg yndis-
legt,“ segir Helga.
„Þegar ég var yngri
var ég alltaf að
mála Snæfellsjökul
og málaði þá ætíð
Stapafellið með, þau
eru bara saman, eru bara
systkini. Og þegar ég keypti
bústaðinn hér voru tvær
leirmyndir eftir mig uppi
á vegg þar.“ Það var því
kannski röð tilviljana sem
olli því að u-beygjan færði
þau hjón á Snæfellsnesið.
„Ég hlakka til þegar
Stapinn verður orðinn
100% klár, en við erum
enn þá að hanna hann.
Vinnan hér er ofsalega
skemmtileg og gefur okkur
mikið, þetta er erfitt en
þess virði.“
Hjónin Helga Magnea Birkisdóttir og Ólafur
Sólmundsson tóku u-beygju í lífinu árið 2014, fluttu
úr Keflavík vestur á Snæfellsnes og opnuðu kaffihús á
Hellnum. Nýlega opnuðu þau svo annan veitingastað
á sömu slóðum, Stapann. Hjónin una sér vel fyrir
vestan, umvafin fallegri náttúru og góðum nágrönnum.
Helga og Ólafur tÓKu SKref
út úr þægiNdaHriNgNum
Reka tvo veitingastaði í náttúrufegurðinni á Snæfellsnesi
Una Sér vel á HellnUM. Hjónin
Ólafur Sólmundsson og Helga
Magnea Birkisdóttir una sér vel í
náttúrunni á Snæfellsnesi.
Kata Mætt þriðja SUMarið í röð
. „Við vinnum saman hérna hjónin og við
erum með ofsalega flott starfsfólk á báðum
stöðum hjá okkur, krakka frá tékklandi
sem eru metnaðarfull, glaðleg og áhugasö
m. Sum þeirra, eins og Kata, eru hjá
okkur þriðja sumarið í röð, þau eru öll að m
ennta sig í heimalandinu, en vilja eiga
heima hérna á Íslandi.
HjÓnin á pallinUM „Ég legg mikla áherslu á að spila íslenska tónlist á Stapnum og mig langar að þróa staðinn frekar og bjóða til dæmis upp á tónleika, jafnvel útitónleika á pallinum. Það er freistandi með þennan stóra pall, að bjóða upp á eitthvað, hér er aðgengi í rafmagn.“ Helga er ekki óvön því að bjóða upp á viðburði, á Prímus kaffi hafa verið fimm myndlistarsýningar.
Stapinn arnarStapa Stapann einkennir stór og mikill pallur sem snýr að Arnarstapavegi. „Ég er ofsalega ánægð með staðinn, Ómar pétursson teiknaði húsið og Kristján pétursson bróðir hans og fyrirtæki hans byggðu það. Þeir eru vandvirkir og vel gert hjá þeim. Það er svo fallegt hvernig veggurinn liggur í gegnum húsið.“