Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Side 47
Verslunarmannahelgin 3Helgarblað 28. júlí 2017 KYNNINGARBLAÐ
Innipúkinn verður haldinn 16. árið í röð núna um verslunarmannahelgina,
5.-6. ágúst. „Í upphafi var
Innipúkinn stofnaður af
Grími Atlasyni, Dr. Gunna
og fleiri góðum og var hann
haldinn í Viðey. Hugsunin var
sú að halda tónlistarhátíð
sem mótvægisaðgerð gegn
útihátíðum landsins,“ segir
Ásgeir Guðmundsson sem
er umsjónarmaður Inni-
púkans í ár ásamt Steindóri
Helga Arnsteinssyni og Eldari
Ástþórssyni. „Enn þann dag í
dag er þetta eina tónlistarhá-
tíðin sem heita má af öllum
þessum úti- og fylliríshátíðum
sem haldnar eru ár hvert um
Verslunarmannahelgina um
allt land á rafmagnslausum
og rigningarblautum tjald-
svæðum.“ Innipúkinn er, eins
og nafnið gefur til kynna,
svolítill púki. Hann getur
verið dálítið hrokafullur og
kaldhæðinn og leyfir sér að
segja hluti sem geta farið
fyrir brjóstið á fólki. „Þegar við
förum að skipuleggja Innipúk-
ann í apríl kemur smápúki í
okkur alla. Þá leyfum við okkur
þá skammarlaust að lasta
allar þessar fylliríshátíðir úti
á landi. Við meinum auðvitað
ekkert með þessu. Þetta er
bara púkinn sem talar,“ segir
Ásgeir og hlær.
Hverjir eru þessir Innipúkar?
„Innipúkinn hefur ekkert á
móti því að fara út á land.
Hann vill bara ekki ferðast á
sama tíma og allir aðrir eru
að ferðast. Honum þykir það
ekki fýsilegt að fara út í nátt-
úruna þegar þar finnst enginn
friður. Þess vegna er versl-
unarmannahelgin úti á landi
ekki eitthvað sem Innipúkinn
tekur þátt í. Frekar vill hann
vera í borginni þar sem ró er
og friður og þar sem hægt er
að setjast niður. Innipúkinn
vill ekki gista í tjaldi á harðri
og blautri jörð með pissulykt
í loftinu og drekka hland-
volgan bjór úr poka. Hann vill
geta sest á barinn og fengið
sér einn ískaldan í glerglasi,
hlustað á alvörutónlist flutta
af ekta tónlistarmönnum í
gæðahljóðkerfi. Svo vill hann
geta farið heim til sín og sofið
í eigin rúmi,“ segir Ásgeir.
Konur í framlínunni
Það hefur borið á að konur
séu í minnihluta þegar kemur
að tónlistarhátíðum á Íslandi
og þetta virðist alltaf koma
tónleikahöldurum jafnmikið
á óvart. Ásgeir bendir á að
þeir hafi aldrei átt í neinum
vandræðum með kynjakvót-
ann hvað varðar tónlistar-
flytjendur á Innipúkanum. „Við
höfum aldrei farið í skipulagið
með sérstakan kynjakvóta í
huga. Hann kemur bara frá
náttúrunnar hendi þegar við
förum saman í gegnum alla
þá tónlistarmenn og -konur
sem okkur finnst vera að gera
góða hluti. Það hefur aldrei
hallað á konur hjá Innipúk-
anum og í ár eru konur í
framlínunni meira að segja í
meirihluta,“ segir Ásgeir.
Brekkusöngur á Innipúkanum?
Innipúkinn verður í Naustinu
í miðbæ Reykjavíkur þetta
árið eins og síðustu þrjú ár, og
þá inni á skemmtistöðunum
Húrra og Gauk á Stöng. Þá
verða í boði tvö svið þar sem
má sjá rjómann af íslensku
tónlistarfólki flytja frábæra
tónlist. Um er að ræða um
24 hljómsveitir sem þenja
hljóðfæri sín þrjú kvöld í röð,
föstudag, laugardag og
sunnudag. „Svo er vert að
minnast á hið þversagna-
kennda útisvæði Innipúkans.
Gatan fyrir framan staðina
tvo er þá tyrfð eins og venja
hefur verið síðustu ár. Það
er helst gert fyrir þá sem
sakna þess að hafa mjúkt
gras undir fótum og geta ekki
verið án grasilms og brekku-
söngsstemningarinnar. Þarna
myndast alltaf skemmtileg
stemning innan um markaði,
matarbíla og útitónleika og er
svæðið opið öllum gestum og
gangandi. Ástæðunum fyrir
því það að fara út á land um
verslunarmannahelgina fer
því sífellt fækkandi. Á útisvæði
Innipúkans verður þó ekki leyft
að tjalda enda myndu tjald-
hælarnir duga skammt þegar
kemur að hörðu malbikinu,“
segir Ásgeir.
Það eru allir á Innipúkanum
Á Innipúkanum kennir ýmissa
grasa eins og undanfarin ár.
Tónlistaratriðin eru gífurlega
fjölbreytt og má þar finna alla
þá tónlistargeira sem hugur-
inn girnist. Ásamt því að vera
með risa í íslensku tónlistar-
lífi þá fær grasrótin einnig
að spretta eins og malbikið
fyrir framan skemmtistað-
ina. Tónlistarunnendur geta
hlýtt á allt frá þungarokki,
Dimmu, rappandi Rottweiler-
hundum og trylltri raftónlist,
frá FM Belfast yfir í léttasta
gítarpopp Jóns Jónssonar
og yndismjúkt indí frá Sól-
eyju. „Við vorum að bæta
tveimur nýjum atriðum núna
við dagskrána. Það eru
XXX Rottweilerhundar og
Joey Christ sem er sólónafn
Jóhanns Kristófers í Sturlu
Atlas,“ segir Ásgeir. Sú hefð
hefur myndast á Innipúkan-
um að taka eina goðsögn úr
íslensku tónlistarlífi og stefna
saman við eitthvað ungt,
ferskt og móðins tónlistarfólk.
Þannig var Megasi skeytt
saman við Grísalappalísu,
Jakob Frímann kom fram
með Amabadama, Boogie
Trouble og Helgi Björns
brilleruðu í fyrra og í ár mun
Sigga Beinteins og unga
ballhljómsveitin Beibies draga
alla púka út á dansgólfið.
Dagskrá yfir tónlistaratriði á
Innipúkanum má nálgast á
vefsíðu Innipúkans, innipukinn.
is og á Facebook-síðunni.
Kommúnísk hátíð
Stemningin á Innipúkanum er
einstök hvað varðar tónlistar-
og útihátíðir og má segja að
það sé svolítill hippafílíngur á
hátíðinni, eins og Ásgeir orðar
það. „Við sem skipuleggjum
Innipúkann gerum það sem
ástríðuverkefni í okkar eigin
frístundum. Það sem er svo
sérstakt við þessa hátíð er
að hún er ekki rekin í hagn-
aðarskyni eins og flestar
hátíðir, þó svo það komi alltaf
inn einhverjir peningar. Þeim
hagnaði er þá skipt hnífjafnt
á milli þeirra tónlistamanna
sem koma fram á hátíðinni,
burtséð frá því hversu frægir
eða óþekktir þeir eru. Því er
hátíðin eign þeirra listamanna
sem koma fram hverju sinni.“
Um að gera að næla sér í miða
Það hefur selst upp flest árin
sem Innipúkinn hefur verið
haldinn. Bæði má fjárfesta í
helgararmböndum fyrir alla
hátíðina á tix.is eða í dag-
spassa fyrir hvert kvöld fyrir
sig. Þá eru armböndin sótt
í Naustið fyrir hátíðina. „Oft
er eitthvað eftir af dag-
spössum eða armböndum
sem seld eru þá við dyrnar
yfir hátíðina. En síðustu ár
hefur allt selst upp þegar
líður á hátíðina og við höfum
þurft að vísa fólki frá, sem er
auðvitað mjög leiðinlegt. Því
viljum við benda fólki á að
tryggja sér miða sem fyrst,“
segir Ásgeir.
Innipúkinn verður haldinn
á skemmtistöðunum Gaukur
á Stöng og Húrra í Naustinu,
miðbæ Reykjavíkur. Dagskrá
og upplýsingar um hátíðina
má nálgast á vefsíðu Inni-
púkans, innipukinn.is og á
Facebook-síðu hátíðarinnar.
Miða og helgararmbönd má
nálgast á tix.is.
Innipúkinn til höfuðs
fyllirísútihátíðum
EINA TóNlISTARHÁTÍðIN UM VERSlUNARMANNAHElGINA