Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Side 52
28 sakamál Helgarblað 28. júlí 2017
P
acific Northwest-drápin
í Bandaríkjunum hófust
26. september árið 2011.
Gerendur voru Holly
Grigsby og kærasti hennar,
David Pedersen.
Þannig var mál með vexti að
David sagði Holly að hann lang-
aði til að hefja byltingu og beina
spjótum sínum að leiðtogum
gyðinga.
Ljóst er að grunnt hefur verið
á kynþáttafordómum hjá David
því hann hefur síðan fyrrnefnd-
ir atburðir áttu sér stað komið
á laggirnar fangelsisgengi sem
samanstendur af mönnum sem
trúa á yfirburði hvíta mannsins.
En það er önnur saga.
Faðir og stjúpmóðir myrt
Skötuhjúin hófust, sem fyrr
segir, handa 26. september
árið 2011. Þau höfðu farið til
föður Davids og stjúpmóður í
Washington-ríki og varið þar
nokkrum dögum. Faðir Davids,
Red, var að rúnta með David
og Holly þegar David skaut
hann í höfuðið. Red gaf ekki
upp öndina fyrr en að hálftíma
liðnum, en David og Holly óku
heim til hans.
Þar var stjúpmóðir Davids,
Leslie Mae „Dee Dee“ Pedersen
og átti sér einskis ills von. Dee
Dee var bundin með einangr-
unarlímbandi og síðan skorin í
hálsinn og blæddi út.
Systir Davids, Holly Perez,
sagði síðar: „Meðferð á skepn-
um á leið til slátrunar er mann-
úðlegri en sú sem fórnarlömb
ykkar fengu.“
Handtekin
Síðan fór parið, á bifreið föð-
ur Davids, til Oregon. Þar varð
á vegi þeirra 19 ára piltur, Cody
Faye Myers. Þau skutu hann til
bana og stálu bíl hans. Sam-
kvæmt framburði þeirra síðar
meir myrtu þau Cody Faye
Myers vegna þess að þeim
fannst nafn hans gyðingslegt.
Cody sem reyndar var kristinn
hafði verið á leið heim af tón-
leikum og boðið Holly far.
Nú lá leið Davids og Holly til
Norður-Kaliforníu þar sem þau
skutu til bana 53 ára blökku-
mann, Reginald Alan Clark
sem, líkt og Cody, hafði tekið
þau upp í bíl sinn.
Þann 5. október, 2011, voru
David og Holly handtekin fyrir
utan Yuba City í Kaliforníu. Að
sögn Holly voru þau þá á leið til
Sacramento til að „drepa fleiri
gyðinga“.
Iðrun Holly
Við réttarhöldin, árið 2014,
baðst Holly afsökunar á gjörð-
um sínum en ekki skoðun-
um. Hún sagði meðal annars:
„Gjörðir mínar hafa enn fremur
skaðað orðstír hreyfingar sem
fyrir er misskilin. Ég sé mikið
eftir þessu.“
David Pedersen játaði sig
sekan um tvo bílþjófnaði með
banvænum afleiðingum fyrir
Cody Myers og Reginald Clark.
Í Washington-ríki, hafði hann
áður játað að hafa myrt föður
sinn, Red, og stjúpmóður, Dee
Dee.
Skötuhjúin fengu bæði lífs-
tíðardóm, Holly í júlí 2014 og
David mánuði síðar. n
DaviD og Holly
n Trúðu á yfirburði hvíta kynstofnsins n Faðir og stjúpa á meðal fórnarlambanna„Meðferð á
skepnum
á leið til slátrun-
ar er mannúð-
legri en sú sem
fórnarlömb ykk-
ar fengu.
Holly Grigsby
Iðraðist gjörða
sinna, afsakaði
ekki skoðanir
sínar.
David Pedersen
Vílaði ekki fyrir sér að
myrða föður sinn.