Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 52
28 sakamál Helgarblað 28. júlí 2017 P acific Northwest-drápin í Bandaríkjunum hófust 26. september árið 2011. Gerendur voru Holly Grigsby og kærasti hennar, David Pedersen. Þannig var mál með vexti að David sagði Holly að hann lang- aði til að hefja byltingu og beina spjótum sínum að leiðtogum gyðinga. Ljóst er að grunnt hefur verið á kynþáttafordómum hjá David því hann hefur síðan fyrrnefnd- ir atburðir áttu sér stað komið á laggirnar fangelsisgengi sem samanstendur af mönnum sem trúa á yfirburði hvíta mannsins. En það er önnur saga. Faðir og stjúpmóðir myrt Skötuhjúin hófust, sem fyrr segir, handa 26. september árið 2011. Þau höfðu farið til föður Davids og stjúpmóður í Washington-ríki og varið þar nokkrum dögum. Faðir Davids, Red, var að rúnta með David og Holly þegar David skaut hann í höfuðið. Red gaf ekki upp öndina fyrr en að hálftíma liðnum, en David og Holly óku heim til hans. Þar var stjúpmóðir Davids, Leslie Mae „Dee Dee“ Pedersen og átti sér einskis ills von. Dee Dee var bundin með einangr- unarlímbandi og síðan skorin í hálsinn og blæddi út. Systir Davids, Holly Perez, sagði síðar: „Meðferð á skepn- um á leið til slátrunar er mann- úðlegri en sú sem fórnarlömb ykkar fengu.“ Handtekin Síðan fór parið, á bifreið föð- ur Davids, til Oregon. Þar varð á vegi þeirra 19 ára piltur, Cody Faye Myers. Þau skutu hann til bana og stálu bíl hans. Sam- kvæmt framburði þeirra síðar meir myrtu þau Cody Faye Myers vegna þess að þeim fannst nafn hans gyðingslegt. Cody sem reyndar var kristinn hafði verið á leið heim af tón- leikum og boðið Holly far. Nú lá leið Davids og Holly til Norður-Kaliforníu þar sem þau skutu til bana 53 ára blökku- mann, Reginald Alan Clark sem, líkt og Cody, hafði tekið þau upp í bíl sinn. Þann 5. október, 2011, voru David og Holly handtekin fyrir utan Yuba City í Kaliforníu. Að sögn Holly voru þau þá á leið til Sacramento til að „drepa fleiri gyðinga“. Iðrun Holly Við réttarhöldin, árið 2014, baðst Holly afsökunar á gjörð- um sínum en ekki skoðun- um. Hún sagði meðal annars: „Gjörðir mínar hafa enn fremur skaðað orðstír hreyfingar sem fyrir er misskilin. Ég sé mikið eftir þessu.“ David Pedersen játaði sig sekan um tvo bílþjófnaði með banvænum afleiðingum fyrir Cody Myers og Reginald Clark. Í Washington-ríki, hafði hann áður játað að hafa myrt föður sinn, Red, og stjúpmóður, Dee Dee. Skötuhjúin fengu bæði lífs- tíðardóm, Holly í júlí 2014 og David mánuði síðar. n DaviD og Holly n Trúðu á yfirburði hvíta kynstofnsins n Faðir og stjúpa á meðal fórnarlambanna„Meðferð á skepnum á leið til slátrun- ar er mannúð- legri en sú sem fórnarlömb ykk- ar fengu. Holly Grigsby Iðraðist gjörða sinna, afsakaði ekki skoðanir sínar. David Pedersen Vílaði ekki fyrir sér að myrða föður sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.