Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Side 53
Helgarblað 28. júlí 2017 KYNNING
Ragna Björg Arnar-dóttir og Kristín Sigur-steinsdóttir hafa rekið
Snyrtistofuna Evu á Selfossi
frá 2011. Þar bjóða þær upp á
rólegt og afslappað andrúms-
loft, ásamt því að veita góða,
faglega og persónulega þjón-
ustu, bæði í meðferðum sem
og ráðgjöf við vöruval. Boðið er
upp á alhliða úrval meðferða
fyrir bæði dömur og herra. Í
boði eru andlitsmeðferðir, and-
litsböð, litun og plokkun, vax,
fótsnyrtingar, handsnyrtingar,
gelneglur, förðun og varanleg
förðun.
„Við erum einnig með nokkr-
ar gerðir af dekurpökkum sem
eru mjög vinsælir í gjafir hjá
okkur. Einnig bjóðum við upp
á gjafabréf sem henta öllum
hvort sem meðferð er valin eða
inneign á stofunni. Við erum
líka mjög liðlegar ef fólk langar
að skipta í aðrar meðferðir eftir
á. Hér fást einnig ýmsar vörur
fyrir húðina og förðunarvörur
í ýmsum verðflokkum. Það má
segja að við séum snyrtistofa
fyrir alla sem langar að gera
vel við sig í dekri,“ segir Ragna.
Frábærar vörur og enn betri
þjónusta
Þær vörur sem eru í sölu hjá
Snyrtistofunni Evu eru Artdeco
húðsnyrtivörur, förðunarvörur
og handsnyrtivörur, vörur frá
Helena Rubinstein og Diesel
ilmir. „Markmið okkar er að
viðskiptavinir geti gengið að
því vísu að fá bestu mögu-
legu meðferð og þjónustu
hverju sinni, sem hentar þeirra
húðgerð og tilgangi. Í snyrti-
meðferðum okkar notum við
Pure Minerals-vörurnar frá
Artdeco. Um er að ræða frá-
bæra steinefnalínu sem er án
allra parabena. Í vörunum er
einnig mikið af náttúrulegum
efnum og vítamínum. Artdeco-
vörurnar eru þýskar og hafa
notið mikilla vinsælda þar í
landi og einnig í Frakklandi og
á Ítalíu,“ segir Ragna.
Sérmeðferðir
Elísabet veitir ýmsar sér-
meðferðir svo sem varanlega
förðun eða tattú á auga-
brúnir, kringum augun og á
varir. Einnig framkvæmir hún
Meta Therapy frá Dermatute.
„Sú meðferð hefur verið afar
vinsæl Anti Aging-meðferð
hjá fræga fólkinu í Hollywood.
Meðferðin kom til Íslands fyrir
rúmum tveimur árum,“ seg-
ir Elísabet. „Um er að ræða
rakameðferð sem vinnur vel
á öldrunareinkennum eins
og litablettum, slappleika og
hrukkum, en einnig örum.
Árangurinn er endurnýjun og
endurbygging húðarinnar og
bætt ásýnd. Meðferðin er 100%
náttúruleg og sársaukalaus.
Meðferðartíminn er stuttur
og árangurinn er sjáanlegur
strax,“ segir Elísabet, sem gerir
einnig gelneglur.
Snyrtistofan Eva er staðsett
í Miðgarði að Austurvegi 4,
Selfossi. Opið er alla virka daga
frá kl. 10-17. Tímabókanir eru í
síma 482-3200. Nánari upp-
lýsingar má nálgast á Face-
book-síðu Snyrtistofunnar Evu.
Fyrir alla sem langar að
gera vel við sig í dekri
SNYRTISTOFAN EVA SElFOSSI