Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 60
36 menning Helgarblað 28. júlí 2017
Faðir hinna lifandi dauðu
E
inn áhrifamesti hryllings-
myndaleikstjóri heims –
guðfaðir zombímyndarinn-
ar – bandaríkjamaðurinn
George Romero lést 16. júlí síð-
astliðinn. Þjóðsögur um lifandi
dauðar manneskjur hafa verið
til á mörgum ólíkum tímabilum
og menningarheimum í ein-
hverri mynd, en hin nútímalega
hugmynd um uppvakninginn –
zombíinn – er að stórum hluta
mótuð af ódýrum en snjöllum
zombí-kvikmyndum Romeros.
Night of the living dead (1968),
Dawn of the Dead (1978) og Day of
the dead (1985) fjölluðu um hrun
hins siðaða samfélags, heimsendi
þar sem hinir dauðu fóru af ein-
hverjum ástæðum að vakna af
svefninum langa og reyna að
borða hina lifandi. Kvikmyndir
Romeros hafa haft varanleg áhrif
á hugmyndir fólks um zombía,
hryllingsfyrirbæri sem hafa birst
ítrekað æ síðan í kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum, myndasögum,
bókum og tölvuleikjum. DV tók
saman nokkra hluti sem flestar
zombímyndir og -ævintýri sækja
í kvikmyndir Romeros.
Svona mótaði hryllingsmyndaleikstjórinn George
Romero hugmyndir okkar um zombía
1. Ógnin í fjöldanum.
Eitt af einkennum uppvakninganna í kvikmyndum Romero var hvernig þeir stauluðust hægum skrefum áfram og drógu lappirnar – hættan af
þeim fólst þannig fyrst og fremst í fjöldanum frekar en hraða hvers og eins. Hið einkennandi göngulag var gert ódauðlegt og heimsfrægt í dans-
inum í hinu óhemju vinsæla myndbandi við Thriller eftir Michael Jackson árið 1985. Margir sem hafa spreytt sig á zombí-myndagerð á undan-
förnum áratugum hafa breytt út frá hefðinni og látið uppvakningana hlaupa - en það fannst Romero vera algjörlega fáránleg hugmynd.
5. Þeir eru leið til að gagnrýna nútímamenningu.
Fyrstu zombímyndir Romeros komu fram á einhverju helsta hagvaxtartímabili í
sögu mannkyns, neyslumenning og verslun var orðin að almennri tómstundar-
iðju í Bandaríkjunum. Önnur mynd Romeros, Dawn of the dead, gerist í verslun-
armiðstöð þar sem dregnar eru upp hliðstæður milli hins óslökkvandi neyslu-
þarfar nútímamannsins og óseðjandi löngun uppvakninganna í mannakjöt.
Romero og aðrir leikstjórar hafa notað zombíana sem skondið og kaldhæðið tæki
til að gagnrýna hin ýmsu samfélagsmein í nútímanum.
2. Þú verður að eyðileggja hausinn.
Það segir sig ekki sjálft hvernig best er að drepa uppvakning
- því hann er jú þegar dauður. Í kvikmyndinni Day of the Dead
kom fyrst fram hin alþekkta regla að eina leiðin til að drepa upp-
vakning endanlega sé að skaða eða eyðileggja hausinn. Sú regla
hefur verið látin gilda í flestum zombímyndum síðan og í ótal
tölvuleikjum hefur meginmarkmiðið verið að rota eða afhöfða
heiladauða uppvakningana.
3. Þeir eru næstum því eins og menn.
Ein ástæðan fyrir því að zombímyndir urðu svo fýsilegur kostur fyrir
hryllingsmyndagerðarmenn var að þær gátu verið mjög ódýrar í
framleiðslu - það þurfti mun minni gervi en í varúlfa- eða vampíru-
myndir. Þá þurftu leikararnir sem léku illmennin ekki að vera sér-
staklega góðir, heldur fyrst og fremst margir.
4. Hinir lifandi eru ekki síður hættulegur.
Þó að vondu kallarnir séu yfirleitt hinir skjögrandi hálfrotnuðu og
holdhungruðu uppvakningar fjalla zombímyndir þó ekki síður um
vonsku hinna lifandi – og það eru oftar en ekki þeir sem eru hin
raunverulega ógn.
Guðfaðir uppvakning-
anna Kvikmyndagerðar-
maðurinn George Romero
lést í júlí. Mynd EPA
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Metsölulisti
Eymundsson
5.–12. júlí 2017
Allar bækur
1 NorninCamilla Läckberg
2 FjalliðLuca D’Andrea
3 Með lífið að veði Yeonmi Park
4 Sagas of the Icelanders
Ýmsir höfundar
5 Hús tveggja fjöl-skyldna
Lynda Cohen Loigman
6 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
7 Independent PeopleHalldór Laxness
8 Litla bakaríið við Strandgötu
Jenny Colgan
9 Konan í dalnum og dæturnar sjö
Guðmundur G. Hagalín
10 Drekkingarhylur Paula Hawkins
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 Konan í dalnum og dæturnar sjö
Guðmundur G. Hagalín
3 Kortabók 2016–2017
4 VegahandbókinSteindór Steindórsson
5 Leitin að svarta víkingnum
Bergsveinn Birgisson
6 Volcano Sudoku Ýmsir höfundar
7 171 Ísland - Áfanga-staðir í alfaraleið
Páll Ásgeir Ásgeirsson
8 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson
9 Býr Íslendingur hérGarðar Sverrisson
10 LitagleðiHelga Jóhannesdóttir