Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Blaðsíða 31
NUTRILENK HOLLRÁÐ VIÐ LIÐKVILLUMNÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA Hvað getur NUTRILENK gert fyrir þig? Við mikið álag of eftir því sem árin færast yfir getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamótunum í mjöðmum, hrygg og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Hefur hjálpað fjölmörgum Nutrilenk Gold inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk, enda ríkt af konditríni, mangani, kollageni og kalki. Nutrilenk hefur hjálpað fjölmörgum sem þjást af liðverkjum. Prófið sjálf – finnið breytinguna! Nutrilenk fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana Heilbrigður liður Liður með slitnum bjóskvef Öðlaðist nýtt líf – verkirnir voru hreint helvíti á jörð „Ég starfa sem leikskóla­ kennari og vinn mikið á gólfinu með börnunum. Ég þarf þar af leiðandi sífellt að vera að setjast og standa upp aftur. Ég var greind með slitgigt og hef fundið fyrir verkjum í hægri mjöðminni um árabil. Á tímabili varð ég svo slæm að ég þurfti að fá sprautur og sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Ég skánaði við það en var alltaf með seyðing og verki. Suma daga var ég þokkaleg en aðrir voru hreint helvíti á jörð. Næturnar hafa líka í gegnum árin verið mér erfiðar. Ég var með eilífan seyðing í mjöðminni og niður í tá og gat ómögulega legið á hægri hliðinni. Ég var farin að haltra. Eftir að ég fór að taka NUTRILENK öðlaðist ég hreinlega nýtt líf. Ég hef notað NUTRILENK GOLD síðan í september 2012 með frábærum árangri, og þá meina ég ÁRANGRI. Í byrjun tók ég 6 töflur á dag í 2 mánuði en í dag tek ég 3 töflur á dag. Núna sef ég allar nætur og get beygt mig án alls sársauka. Ég þurfti orðið aðstoð við að klæða mig í skó og sokka á morgnana, svo slæm var ég orðin. Í dag get ég bókstaflega allt! Ykkur finnst þetta kannski vera ýkt saga … en hún er sönn. Ég öðlaðist nýtt líf með NUTRILENK GOLD.” Ragnheiður Garðarsdóttir leikskólakennari Losnaði við verki vegna slitgigtar með NUTRILENK GOLD „Ég hef verið að kljást við slitgigt í hnjám og mjóbaki í fjölmörg ár og prófað margt, bæði lyf og náttúrulyf sem dugað hafa skammt, auk þess að hafa farið í liðþófaaðgerðir. Fyrir rúmum þremur árum gat ég varla beygt mig, var með bólgur í liðum og hreyfigetan takmörkuð. Þá pantaði ég tíma hjá bæklunarlækni sem benti mér á að huga betur að lífstílnum og taka inn NUTRILENK GOLD. Ég fór að hans ráðum og batinn er ótrúlegur. Ég finn ekki lengur til í hjánum og get hreyft mig óhindrað. Ég er einnig mjög meðvitaður um mataræðið og stunda sjóböð sem eru allra meina bót. Ef ég sleppi því að taka inn NUTRILENK GOLD þá finn ég verkina koma aftur. Ég er því bjartsýnn á að þurfa ekki að heimsækja lækninn aftur fyrr en í fyrsta lagi 75 ára. Ég mæli heilshugar með NUTRILENK GOLD.“ Hinrik Ólafsson leikari, kvikmyndagerðarmaður og leiðsögumaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.