Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 3

Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 3
LÆKNAblaðið 2017/103 59 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Hávar Sigurjónsson (í leyfi) havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1900 Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 14.900,- m. vsk. Lausasala 1490,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð- ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Cita- tion Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Teikningar Sigurðar Ámundasonar (f. 1986) fara bil beggja, milli hins hlutbundna og óhlutbundna, raun- veruleika og fantasíu, háleitra og list- sögulegra skírskotana annars vegar og hversdagslegra skrípómynda hins vegar. Þær eru unnar með blandaðri tækni, trélitum, kúlupenna, blýanti og túss. Þessum ólíku teiknitólum ægir oft á tíðum saman í einu og sama verkinu. Teikningarnar bera sterkt handbragð höfundarins, form sem flæða úr einu í annað og tilfinningu fyrir gusti sem stafar af taktföstum línum þvers og kruss. Ekki er laust við að súrrealistar eins og Salvador Dalí komi í hugann og draumkennd málverk hans af bráðnandi hlutum og bjöguðum fígúrum í yfirgefnu landslagi. Þá minnist maður annars listamanns nær okkur í tíma og rúmi, Alfreðs Flóka, sem einnig var hallur undir súrrealisma og náði frábæru valdi á teikningunni. Á forsíðu Læknablaðsins varð fyrir valinu teikning eftir Sigurð sem kallast á sinn hátt á við atburði líðandi stundar. Þar stekkur inn á sjónarsviðið valdsmanns- legur og herskár náungi, hálfur maður og hálfur hestur. Hann reiðir blóðuga sveðju til höggs í hrjóstrugu landslagi undir dreyrrauðum skýjabólstrum. Á vegi hans verður minnisvarði fortíðar sem hörfar eða riðar til falls og úr svip brjóstmyndarinnar má lesa efa og jafnvel ótta. Verkið heitir Gerðu hetj- ur þínar stoltar og er frá árinu 2015, stærð þess er 57 x 41 sm. Sigurður er búsettur í Reykjavík, hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Ásamt teikningunum hefur hann meðal annars fengist við gjörningalist og bókverkagerð. Markús Þór Andrésson L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S * Eliquis : Hemill með beina verkun á storkuþátt Xa, sem er ætlaður til: - Forvarnar gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum, svo sem sögu um heilablóðfall eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic attack, TIA), aldur ≥ 75 ára, háþrýstingi, sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥ II). 1 - Meðferðar við segamyndun í djúplægum bláæðum (DVT) og lungnasegareki (PE) og forvarnar gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum (báðir styrkleikar). 1 - Forvarnar gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti (eingöngu fyrir Eliquis 2,5 mg). 1 Heimild: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Eliquis. Maí 2016 Forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki Meðferð við lungnasegareki Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum Eliquis ® Forvörn gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum Forvörn gegn bláæðasegareki eftir valfrjáls mjaðmarliðskipti Forvörn gegn bláæðasegareki eftir valfrjáls hnéliðskipti ® ® ® PFI-16-11-04 EUAPI759 Eliquis® sýnt hefur verið fram á verkun og öryggi lyfsins í notkun við nokkrum ábendingum*1 Margt skemmtilegt bar við á Læknadögum, - samt var þar ekkert sem maður væri til í að hlusta á aftur, - nema ef vera kynni dagskráin um Sigvalda Kaldalóns (1881-1946) sem flutt var í hádeginu á mánudeginum í Norðurljósum, þótt hún hefði náttúrlega átt heima í Kaldalóni eðli málsins samkvæmt. Hana ætti eiginlega að flytja árlega, - það væri hægt að fjalla um Sigvalda lið fyrir lið og bræðurnir úr Fóstbræðrum hafa úr nægu efni að moða eftir hann til að syngja. Hann var náttúrlega læknir og Óttar Guðmunds- son smíðaði dagskrána og rakti ævi hans og samskipti við Læknafélag Íslands, en félagið rak Kaldalóns úr sínum röðum árið 1929. Óttar fléttaði sérlega haganlega saman æviatriðum Kaldalóns og guðdómlegri tónlist hans. Ævisaga Sigvalda er mögnuð, hann gegndi læknisstarfi á Snæfjallaströnd við Djúp sem var og er afskekkt og alllangt utan þjónustusvæðis. Hann veiktist af taugaveiki 1918 og flutti sig um set, fyrst út í Flat- ey en síðan til Grindavíkur og gegndi Keflavíkur- héraði, og komu bæði Guðmundur Hannesson og Jónas frá Hriflu við þá sögu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri: – Árni Harðarson stýrði sérvöld- um læknisfræðilega rétt tengdum félögum úr karlakórnum Fóstbræðrum sem sungu hverja perlu Kaldalóns af annarri, Á Sprengisandi, Suðurnesjamenn, Ave Maríu, Svanasöng á heiði, Þú eina hjartans yndið mitt, og fleiri. Páll Torfi Önundarson var feikilega ánægður með Aðal- heiði Þorsteinsdóttur píanóleikara og Hildigunni Einarsdóttur söngkonu. Barnabarn tónskáldsins, Ester Kaldalóns, og Eiríkur Jónsson læknir og Fóstbróðir tóku tal saman. - VS Sigvaldi Kaldalóns á Læknadögum

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.