Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2017, Síða 4

Læknablaðið - 01.02.2017, Síða 4
60 LÆKNAblaðið 2017/103 F R Æ Ð I G R E I N A R 2. tölublað, 103. árgangur, 2017 63 Þorbjörn Jónsson Ný ríkisstjórn – ný stefna í heilbrigðismálum? Framundan eru stór mál sem nýr ráðherra þarf að kljást við. Læknar eru nú sem fyrr reiðubúnir til að veita stjórn- völdum ráðgjöf um flest það sem að heilbrigðismálum lýtur. 67 Hlíf Vilhelmsdóttir, Magnús Jóhannsson Viðhorf Íslendinga til lyfja og lyfjameðferðar Niðurstöðurnar gefa góða mynd af viðhorfum Íslendinga til lyfja og lyfjameðferðar. Þær gætu skapað grundvöll umbótastarfs fyrir klíníska vinnu og til hagræðingar fyrir heilbrigðiskerfið. Slík vinna gæti stuðlað að málefnalegri umræðu um þátt lyfja í meðferð sjúkdóma, vanda tengdum meðferðarfylgni og betri samskiptum lækna við sjúklinga og lyfjafyrirtæki. 73 Kristín Jónsdóttir, Elsa B. Valsdóttir, Shreekrishna Datye, Fritz Berndsen, Páll Helgi Möller Nýgengi, orsakir og meðferð við bráðu rofi á ristli á Íslandi 1998-2007 Sarpabólga var algengasta orsök rofs á ristli á Íslandi á rannsóknartímabilinu. Á sama tímabili jókst notkun stuðningsmeðferðar á meðan skurðaðgerðum fækkaði. Hlutfall þeirra sjúklinga sem fékk stóma og sem síðar fóru í aðgerð þar sem gerð var endurtenging er hátt hérlendis og fyllilega sambærilegt því sem lýst er í erlendum rannsóknum. 79 Ragnheiður Martha Jóhannesdóttir, Tómas Guðbjartsson, Arnar Geirsson Skurðaðgerðir við hjartaþelsbólgu á Íslandi 1997-2013 Fimmti hver sjúklingur með hjartaþelsbólgu þurfti á hjartalokuaðgerð að halda, ósæðarloku- eða míturlokuskipti. Árangur er sambærilegur við erlendar rannsóknir en fylgikvillar eru tíðir, 30-daga dánartíðni hærri og langtímalifun lakari en eftir hefðbundnar lokuskiptaaðgerðir. 65 Runólfur Pálsson Lög um líffæragjafir á Íslandi: Er tíma- bært að taka upp ætlað samþykki? Mikilvægt að leita leiða til að sem flestir gefi líffæri sín við andlát. Meðal úrræða sem hefur verið kallað eftir er breyting laga um líffæragjafir þannig að þau feli í sér ætlað samþykki. L E I Ð A R A R Mynd 1. Ástæður rofs á ristli (n=225).

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.