Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 13
LÆKNAblaðið 2017/103 69
ekkert ósamræmi var milli þýðinganna þriggja og þótti nægilegt
að leggja listann fyrir 15 háskólastúdenta til prófunar og ekki var
talin þörf á tölfræðiprófum. Að þessu loknu hittust þýðendurnir
og fóru yfir þær athugasemdir á BMQ sem bárust frá þátttakend-
um og komu sér saman um lagfæringar. Aðeins var talin þörf á að
breyta lítillega þýðingu á tveimur spurningum listans. Því næst
fóru tveir sérfræðingar á sviði próffræði við Háskóla Íslands, með
töluverða reynslu af gildun mælitækja og spurningalistum, yfir
BMQ og viðbótarspurningarnar og gerðu athugasemdir.
Úrvinnsla gagna
Tölfræðiforritið SPSS, 19. útgáfa, var notað við úrvinnslu og grein-
ingu gagna. Stig undirhluta BMQ voru reiknuð með því að nota
heildarstigafjölda. Reiknað var meðaltal og staðalfrávik stiga fyrir
alla hluta BMQ. Ef einni eða fleiri fullyrðingum í tilteknum hluta
BMQ var ekki svarað, voru ekki reiknuð heildarstig fyrir þann
hluta. Próf óháð dreifingu (non-parametric test) voru notuð til að
athuga mun á viðhorfi til lyfja milli kyns og aldurs. Mann-Whit-
ney-próf og Kruskal Wallis-próf voru notuð til að athuga hvort
tengsl væru milli aldurs, kyns og menntunar og viðhorfs. Þetta var
bæði kannað fyrir almenn og sértæk viðhorf. Einnig voru borin
saman stig BMQ fyrir mismunandi hópa. Hrifstærð (effect size) var
reiknuð fyrir þær niðurstöður sem voru tölfræðilega marktækar.
Útreikningur á hrifstærð byggðist á SPSS þar sem 0,1 = lítil, 0,3 =
miðlungs og 0,5 = veruleg áhrif. Innri áreiðanleiki BMQ var met-
inn með alfastuðli (Cronbach's alpha) og hann var 0,673-0,869 sem er
ásættanlegt. Marktæknimörk voru sett við alfa=0,05.
Niðurstöður
Þátttakendur
Svarhlutfallið var 61,4%; 921 manns af 1500 manna úrtaki svöruðu
spurningalistanum. Meðalaldur var 45,4 ár. Fjörutíu og sjö manns
(5,1%) höfðu legið í 1-10 nætur á sjúkrahúsi síðastliðna 12 mánuði
og 9 (0,9%) í fleiri en 10 nætur. Frekari lýðfræðilegar upplýsingar
um þátttakendur má sjá í töflu II.
Niðurstöður BMQ
Stig BMQ-S voru einungis reiknuð fyrir þátttakendur sem heyrðu
til eftirtalinna sjúkdómahópa: hjarta- og æðasjúkdóma, lungna-
sjúkdóma, sykursýki, geðsjúkdóma og meltingarsjúkdóma. Lang-
stærsti hluti þessara þátttakenda, eða 90%, tók lyf daglega. Stærsti
hópurinn var með hjarta-og æðasjúkdóma. Sjúklingahópurinn
með ofnæmi (n=64) var ekki talinn með við tölfræðiútreikninga
vegna þess að nokkrir þátttakenda með þann sjúkdóm sögðust
ekki hafa langvinnan sjúkdóm og vegna þess hve lyfjanotkun
hópsins var miklu minni en annarra hópa með langvinna sjúk-
dóma. Stig voru ekki heldur reiknuð fyrir þá þátttakendur sem
sögðust hafa beinþynningu (n=11) eða illkynja sjúkdóm (n=5) því
hóparnir voru fámennir og marktækra niðurstaðna því ekki að
vænta við tölfræðilegan samanburð við aðra hópa. Ennfremur
var fólki með aðra langvinna sjúkdóma (n=92) sleppt við útreikn-
ing stiga því ekki var vitað um hvaða sjúkdóma var að ræða og
þannig hvorki hægt að setja niðurstöðurnar í innbyrðis samhengi
né bera þær saman við aðrar sambærilegar rannsóknir, sem allar
skilgreina sína sjúklingahópa vel.
R A N N S Ó K N
Tafla III. Allir þátttakendur og meðaltal stiga BMQ. Fjöldi þeirra sem svöruðu öllum fullyrðingum í hverjum hluta BMQ.
Allir þátttakendur Þátttakendur með ákveðna langvinna sjúkdóma Frískir þátttakendur
Meðaltal stiga (SD) Fjöldi Meðaltal stiga (SD) Fjöldi Meðaltal stiga (SD) Fjöldi
BMQ-GO 13,2 (± 2,98) 883 12,6 (± 3,04) 331 13,9 (± 2,82) 232
BMQ-GH 9,29 (± 3,10) 876 8,70 (± 2,94) 329 10,4 (± 3,26) 232
BMQ-SN - - 20,4 (4,15) 398 - -
BMQ-SC - - 13,0 (4,34) 398 - -
SD=Staðalfrávik
Tafla IV. Fullyrðingar BMQ-G og svörun.
Fullyrðingar BMQ-G** Þátttakendur sem voru sammála fullyrðingunum*, %
Allir
þátttakendur
Þátttakendur með ákveðna
langvinna sjúkdóma (n=330)
Frískir þátttakendur
(n=232)
Læknar ávísa lyfjum í of miklum mæli. (O) 54,8 45,3 66,1
Þeir sem taka lyf að staðaldri ættu að gera hlé á lyfjatöku af og til. (H) 21,9 14,3 36,7
Flest lyf eru ávanabindandi. (H) 19,6 12,4 25,9
Náttúruvörur (náttúrulyf, náttúruefni, til dæmis lýsi, vítamín, sólhattur, remedíur eða
grasalyf) eru öruggari en lyf. (O)
30,4 23,2 36,5
Lyf gera meiri skaða en gagn. (H) 5,6 4,6 8,8
Öll lyf eru eitur. (H) 7,2 6,7 9,7
Læknar treysta um of á lyf. (O) 36,2 32,4 44,9
Læknar mundu ávísa minna af lyfjum ef þeir verðu meiri tíma með sjúklingum sínum. (O) 49,2 42,9 55,0
*Samanlagt hlutfall þátttakenda sem voru frekar eða mjög sammála fullyrðingunum.
**O og H í sviga stendur fyrir fullyrðingar sem tilheyra BMQ-GO og BMQ-GH.
Hlutfall þeirra sem vildu ekki svara fullyrðingum BMQ-G var hvergi yfir 3% af heildarfjölda þátttakenda.