Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.2017, Page 23

Læknablaðið - 01.02.2017, Page 23
LÆKNAblaðið 2017/103 79 Inngangur Hjartaþelsbólga er blóðsýking sem leggst á hjartaþel (endocardium), oftast hjartaþel á hjartalokum. Þetta er tiltölulega sjaldgæf sýking en samkvæmt tveimur nýlegum íslenskum rannsóknum hefur nýgengi haldist óbreytt undanfarna fjóra áratugi, eða í kringum 3/100.000 íbúa/ári.1,2 Þetta er ekki ósvipað nýgengi og í erlendum rannsóknum þótt helmingi hærri nýgengistölum hafi verið lýst.3-5 Á Íslandi eru flestir sjúklinganna í kringum sextugt og karlar eru rúmlega tveir þriðju hlutar sjúklinganna.1 Almennt virðist tíðnin aukast með aldri.6 Hjartaþelsbólga er í hópi alvarlegustu sýkinga og dánarhlut- fall er oft á bilinu 10-40%.5,7 Tíðni er hærri hjá sjúklingum með meðfædda hjartagalla eins og tvíblöðku ósæðarloku, við áunna lokusjúkdóma eins og bakfall á aftara míturlokublaði en einnig hjá sjúklingum með gerviloku, æðaígræði eða gang- eða bjargráð.6 Einkenni hjartaþelsbólgu geta verið fjölbreytileg. Í bráðri sýk- ingu eru hiti, hrollur og svæsin hjartabilun áberandi. Greining tefst oft hjá sjúklingum með hálfbráða sýkingu þar sem einkenni eru ósértækari eins og hitavella, lystarleysi og óútskýrt þyngdar- tap.6,8 Einn helsti fylgikvilli hjartaþelsbólgu er hjartabilun og stafar hún af leka í hjartaloku sem skemmst hefur af völdum sýkingar- Inngangur: Opna hjartaaðgerð getur þurft að gera í alvarlegum tilfellum hjartaþelsbólgu. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur skurðaðgerða við hjartaþelsbólgu á Íslandi en slík rannsókn hefur ekki birst áður. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á sjúklingum sem gengust undir hjartalokuaðgerð vegna hjartaþelsbólgu á Landspítala 1997-2013. Leitað var að sjúklingum í rafrænum kerfum Landspítala og upplýsingar fengnar úr sjúkraskrám. Heildarlifun var reiknuð með aðferð Kaplan-Meier og var meðaleftirfylgni 7,2 ár. Niðurstöður: Af 179 sjúklingum sem greindust með hjartaþelsbólgu á rannsóknartímabilinu gengust 38 (21%) undir skurðaðgerð. Tveimur sjúk- lingum var sleppt þar sem sjúkraskrár þeirra fundust ekki. Rannsóknar- þýðið samanstóð því af 36 sjúklingum. Aðgerðum fjölgaði jafnt og þétt á rannsóknartímabilinu, eða úr 8 aðgerðum fyrstu 5 árin í 21 þau síðustu ((gagnlíkindahlutfall, OR – odds ratio; öryggisbil, CI – confidence interval) OR: 1,12, 95% CI: 1,05-1,21, p=0,002). Blóðræktanir voru jákvæðar hjá 81% sjúklinga og ræktaðist oftast S. aureus (19%). Þrír sjúklingar höfðu fyrri sögu um hjartaskurðaðgerð og 5 höfðu sögu um misnotkun fíkniefna. Algengustu staðsetningar sýkingar voru í ósæðarloku (72%) og míturloku (28%). Hjartaloku var skipt út í 35 tilvikum, í 14 tilvika með ólífrænni loku og í 21 tilviki með lífrænni loku. Tvær míturlokur var hægt að gera við. Algengustu fylgikvillar eftir aðgerð voru hjartadrep (35%), öndunarbilun (44%) og enduraðgerð vegna blæðingar (25%). Fjórir sjúklingar létust innan 30 daga frá aðgerð (11%) og 5 og 10 ára lifun var 59% og 49%. Umræða: Fimmti hver sjúklingur með hjartaþelsbólgu á Íslandi þurfti á hjartalokuaðgerð að halda, langoftast ósæðarloku- eða míturlokuskipti. Árangur er sambærilegur við erlendar rannsóknir en fylgikvillar eru tíðir, 30 daga dánartíðni hærri og langtímalifun lakari en eftir hefðbundnar loku- skiptaaðgerðir. Á G R I P innar.9 Hjartabilun hefur mest forspárgildi um horfur sjúklings og er jafnframt algengasta dánarorsökin.6,10 Aðrir þekktir fylgikvillar eru rek á sýkingarhrúðri og myndun ígerða (abscess) sem oftast myndast við ósæðarrótina.11 Fyrsta meðferð við hjartaþelsbólgu er sýklalyfjameðferð og er hún hafin um leið og blóðræktanir hafa verið teknar. Gripið er til skurðaðgerðar ef sjúklingur svarar ekki sýklalyfjameðferð. Sam- kvæmt erlendum rannsóknum gangast á bilinu 25-50% sjúklinga með hjartaþelsbólgu undir opna hjartaaðgerð.12,13 Við aðgerðina er sýktur vefur fjarlægður og sýktu lokunni skipt út fyrir nýja, oftast lífræna loku úr svíni eða gollurshúsi kálfs.14 Hjá yngri sjúkling- um er þó stundum notast við ólífræna loku úr hertu kolefni og einstaka sinnum er hægt að gera við lokuna.14,15 Helstu ábendingar fyrir bráðaaðgerð við hjartaþelsbólgu eru versnandi hjartabilun, alvarleg blóðsýking (sepsis) og stórt sýkingarhrúður á hjartalokum sem talið er geta valdið reki.5 Hér á landi hafa verið gerðar tvær rannsóknir á hjartaþelsbólgu sem báðar hafa birst í Læknablaðinu.1,2 Í hvorugri þessara rann- sókna var þó litið sérstaklega á árangur skurðaðgerða. Tilgangur þessarar rannsóknar var því að skoða árangur skurðmeðferðar við hjartaþelsbólgu á Íslandi með sérstaka áherslu á ábendingar fyrir aðgerð, fylgikvilla og langtímalifun. Efniviður og aðferðir Þetta er afturskyggn rannsókn sem tekur til allra sjúklinga sem gengust undir skurðaðgerð við hjartaþelsbólgu frá 1. janúar 1997 til 31. desember 2013 á Landspítala. Í sjúklingabókhaldi Landspítala var leitað að sjúklingum sem fengu greininguna hjartaþelsbólga Skurðaðgerðir við hjartaþelsbólgu á Íslandi 1997-2013 Ragnheiður M. Jóhannesdóttir1 læknir, Tómas Guðbjartsson1,2 læknir, Arnar Geirsson1 læknir 1Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnum svarar Arnar Geirsson, arnargeirsson@yahoo.com https://doi.org/10.17992/lbl.2017.02.122 Greinin barst til blaðsins 8. júní 2016, samþykkt til birtingar 12. janúar 2017. R A N N S Ó K N Bisbetol og Bisbetol plus bísóprólól og bísóprólól hýdróklórtíazíð filmuhúðaðar töflur Okkar hjartans mál Mjög sérhæfður β1-blokki (hjartasértækur). Einungis þarf einn skammt á dag. Bisbetol er notað gegn háþrýstingi og langvarandi stöðugri hjartaöng. Bisbetol plus er notað til meðhöndlunar á frumkomnum háþrýstingi. Williams & Halls • Reykjavíkurvegur 62 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 527 0600 • wh.is Loksins markaðssett á Íslandi

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.