Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2017, Síða 24

Læknablaðið - 01.02.2017, Síða 24
80 LÆKNAblaðið 2017/103 (ICD-10 greiningarnúmer I33.0, I33.9, I38, I39) á rannsóknartímabil- inu. Sérstaklega var litið á þá sjúklinga sem þurftu að gangast undir opna hjartaaðgerð vegna sýkingarinnar. Til að tryggja að sjúklingar hefðu ekki gleymst var einnig leitað að Nordic Med- ico-Statistical Committee (NOMESCO) aðgerðarnúmerum fyrir skurðaðgerð á ósæðarloku (FM, FMC, FMD, FMW), míturloku (FK, FKB, FKC, FKD, FKW) og þríblöðkuloku (FGC, FGD, FGE, FGW). Alls greindust 179 sjúklingar með hjartaþelsbólgu á rann- sóknartímabilinu og gengust 38 (21%) þeirra undir opna hjarta- aðgerð. Tveimur sjúklingum varð að sleppa þar sem upplýsingar um þá fundust ekki í sjúkraskrám Landspítala. Rannsóknarþýðið samanstóð því af 36 sjúklingum. Klínískum upplýsingum var safnað úr sjúkraskrám og voru skráðar rúmlega 150 breytur, meðal annars aldur, kyn, hæð, þyngd, einkenni við innlögn, þar á meðal hjartabilun og alvar- leiki hennar metinn með New York Heart Association Functional Classification (NYHA-flokki) I-IV. Aðgerðarábending var skráð, fyrri saga um hjartaaðgerð og þá tegund inngrips, reykingar, nýrnabilun (kreatínín yfir 200μmol/L) og áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma. Athugað var hverjir voru með tvíblöðku ósæðar- loku, misnotuðu eða höfðu misnotað fíkniefni í æð, saga um ónæmisbælandi sjúkdóma eða ónæmisbælandi meðferð (til dæm- is barkstera). Þá var skráð hversu langur tími leið frá greiningu hjartaþelsbólgu að aðgerð, ástand sjúklingsins fyrir aðgerð, hvort um bráðaaðgerð var að ræða, niðurstöður blóðræktana og hvaða sýklalyf voru gefin fyrir og eftir aðgerð. Kannað var hvaða myndrannsóknir voru framkvæmdar fyrir aðgerð; þar með talið vélindaómskoðun, tölvusneiðmyndataka, segulómskoðun og hjartaþræðing. Svör úr hjartaómskoðun fyrir aðgerð voru yfirfarin; útstreymisbrot vinstri slegils skráð og hvort leki eða þrenging væri til staðar í lokunni. Einnig var athugað sérstaklega hvort sýkingarhrúður hefði sést á lokublaði eða hvort ígerð væri til staðar við lokuna. EuroSCORE II var reiknað fyrir alla sjúklinga fyrir aðgerð, en það er áhættulíkan sem metur líkur á dauða sjúklinga á fyrstu 30 dögum frá aðgerð.16 Aðgerðum var skipt í lífsbjargandi (emergency), bráða (acute) og áríðandi (subacute). Lífsbjargandi aðgerð var skilgreind sem aðgerð framkvæmd innan 24 klukkustunda frá ákvörðun um að- gerð og sjúklingum ekki hugað líf án inngrips. Bráð aðgerð var hins vegar gerð innan viku frá ákvörðun og áríðandi aðgerð ýmist þegar sjúklingar höfðu verið viku eða lengur á sýklalyfjum eða höfðu lokið sýklalyfjameðferð. Aðgerðirnar voru framkvæmdar í gegnum bringubeins- skurð, notuð hjarta- og lungnavél og hjartað stöðvað. Skráð var tímalengd á hjarta- og lungnavél en einnig tangartími (cross-clamp time) í mínútum. Fylgikvillum var skipt í alvarlega og minniháttar en til þeirra fyrrnefndu töldust: hjartadrep í aðgerð (skilgreint sem hæsta gildi CK-MB yfir 70 mg/L), enduraðgerð vegna blæðingar, öndunarbil- un þar sem þörf var á öndunarvél í meira en 48 klukkustundir með eða án barkaraufunar, heilaæðaáfall, fjöllíffærabilun, djúp sýking í bringubeini og bráður nýrnaskaði sem krafðist blóð- skilunar. Minniháttar fylgikvillar voru gáttatif/flökt, lungnabólga, yfirborðssýking í skurðsári, nýrnaskaði þar sem blóðskilunar var ekki þörf, þvagfærasýking, gjörgæslutaugakvilli (intensive care ne- uropathy) og fleiðruvökvi sem krafðist aftöppunar. Blæðing fyrstu 24 klukkustundirnar eftir aðgerð var skráð í millilítrum (mL) og jafnframt hversu mikið var gefið af blóðhlut- um í sjúkrahúslegunni í einingum. Legutími á gjörgæslu og á legudeild hjarta- og lungnaskurðlækninga var skráður í dögum. Tafla I. Lýðfræðilegar upplýsingar um 36 sjúklinga sem gengust undir hjartaað- gerð vegna hjartaþelsbólgu á Landspítala 1997-2013. Fjöldi sjúklinga og hlutfall (%), en meðaltal með staðalfráviki og bili fyrir aldur, líkamsþyngdarstuðul og EuroSCORE II. Fjöldi % Karlar 28 78 Aldur 56,3 ± 14,3 (30-80) Kransæðasjúkdómur 5 14 Háþrýstingur 15 43 Blóðfituröskun 5 14 Sykursýki af gerð I og II 5 14 Reykingar (n=30) 23 77 Virkar reykingar 13 43 Tvíblöðku ósæðarloka 9 25 Langvinn nýrnabilun 7 20 Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 27,2 ± 4,8 Saga um fyrri hjartaskurðaðgerð 4 11 Saga um misnotkun fíkniefna í æð 5 14 Ónæmisbæling 3 8 Sýkt beinígræði 3 8 Lélegur tannstatus 1 3 Útæðasjúkdómur 1 3 Langvinn lungnateppa 3 8 Heilaáfall 6 17 EuroSCORE II 14,0 ± 21,0 Tafla II. Einkenni og myndgreiningaraðferðir 36 sjúklinga sem gengust undir hjartaskurðaðgerð vegna hjartaþelsbólgu á Íslandi 1997-2013. Fjöldi og hlutfall (%). Fjöldi % Hiti (n=33) 27 82 Mæði (n=29) 24 86 Þyngdartap 10 28 Hjartabilun (n=33) 26 79 NYHA-flokkur IV 14 42 Lungnaháþrýstingur 6 17 Sýkingarhrúður á hjartaloku 16 44 Hjartaómskoðun 36 100 Frá brjóstvegg 36 100 Frá vélinda 31 86 Kransæðaþræðing 22 60 Jákvæð blóðræktun 29 81 Tölvusneiðmyndataka af brjóstholi 7 19 Segulómskoðun af brjóstholi 1 3 R A N N S Ó K N

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.