Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.2017, Page 28

Læknablaðið - 01.02.2017, Page 28
84 LÆKNAblaðið 2017/103 að valda bráðum sýkingum og er sjúkdómsgangur oft hraður með skemmdum á lokublöðum og ígerðamyndun.13 Sökum þessa eru sjúklingar með S. aureus-sýkingu oft teknir snemma til aðgerðar.22 Frekar hátt hlutfall sjúklinga með sögu um misnotkun fíkniefna í æð gengust undir skurðaðgerð (14%). Í íslensku rannsókninni á hjartaþelsbólgu höfðu 18% þýðisins sögu um misnotkun fíkniefna í æð.1 Erlendis er þetta hlutfall í kringum 2-5%. Skýringin á þessu er ekki augljós en hugsanlega gæti gott aðgengi þessara sjúklinga að heilbrigðisþjónustu verið hluti af skýringunni.1,23,24 Tímalengd sýklalyfjagjafar teygði sig allt frá einni og upp í 10 vikur eftir aðgerð, en að meðaltali tók meðferðin 19 daga fyrir og 4,4 vikur eftir aðgerð. Þessi tímalengd sýklalyfjagjafar er í samræmi við leiðbeiningar European Heart Society (ESC) þar sem mælt er með meðferð í 2-6 vikur en tímalengdin ræðst meðal annars af því hvort um sýkingu í gerviloku sé að ræða eða ekki.5 Fylgikvillar Tíðni alvarlegra fylgikvilla var 61% þar sem öndunarbilun (43%) var algengasti fylgikvillinn og þar á eftir var drep í hjartavöðva (35%), en tíðni ræðst mjög af því hvaða skilmerki eru notuð við skilgrein- ingu hjartaskaða. Til samanburðar var tíðni alvarlegra fylgikvilla við míturlokuskipti 47% og hjartadreps 26%.17 Sam bærilegar tölur eftir ósæðarlokuskipti voru 33% og 14% fyrir hjartadrep.25 Tíðni minniháttar fylgikvilla var 64%, þar sem gáttatif/-flökt var algengast (56%). Í íslenskri rannsókn á míturlokuskiptum greindust minniháttar fylgikvillar hjá 70% sjúklinga og gáttatif/ flökt hjá 23%.26 Sambærilegar tölur eftir ósæðarlokuskipti voru 84% og 77% sem er hærri tíðni minniháttar fylgikvilla en í okk- ar rannsókn.25 Skýrist það sennilega af háum aldri sjúklinga við ósæðarlokuskipti. Enduraðgerð vegna blæðinga er alvarlegur fylgikvilli, hana þurfti að framkvæma á fjórðungi sjúklinga. Telst það hátt hlutfall. Til samanburðar var tíðni enduraðgerða vegna blæðingar eftir míturlokuskipti á Íslandi 15% og eftir ósæðarlokuskipti á árunum 2002-2006 17%.17,25 Tíðni enduraðgerða vegna blæðinga eftir hjarta- aðgerð er kringum 8% á Íslandi en erlendis er hlutfallið oft 2-5%.27 Skýringin er ekki augljós, en ábendingar fyrir enduraðgerð geta verið mismunandi milli stofnana. Sjúklingar í okkar rannsókn voru hugsanlega veikari þegar þeir voru teknir til aðgerðar og tíðni fylgikvilla því hærri en ella.28 Dánartíðni og lifun Dánartíðni innan 30 daga var 11%, en einn sjúklingur lést í aðgerð úr losti. Til samanburðar var dánartíðni 9% 30 dögum eftir mítur- lokuskipti á Íslandi og 6% eftir ósæðarlokuskipti. Fimm ára lifun í okkar rannsókn reyndist 59% samanborið við 69% eftir valaðgerð á míturloku og 78% eftir ósæðarlokuskipti.17,29 Í erlendum rann- sóknum er 30 daga dánartíðni eftir aðgerð vegna hjartaþelsbólgu á bilinu 6-25% og langtímalifun oftast í kringum 70%.13 Svipuðum niðurstöðum var lýst í sænskri rannsókn en þar var dánartíðni til lengri og skemmri tíma umtalsvert lægri fyrir sjúklinga sem fóru í aðgerð, en fyrir þá sem aðeins fengu sýklalyfjameðferð.23 Veikleikar og styrkleikar rannsóknar Veikleiki þessarar rannsóknar er að hún er afturskyggn, en klínískar upplýsingar í sjúkraskrám voru ekki alltaf vel skráðar, sérstaklega í upphafi rannsóknartímabilsins. Annar veikleiki er hversu lítið þýðið er, sem takmarkar styrk við tölfræðilega úr- vinnslu. Styrkleiki rannsóknarinnar er sá að hún nær til heillar þjóðar og allar aðgerðir voru gerðar af tiltölulega fáum skurðlækn- um á einni stofnun. Einnig voru upplýsingar um eftirfylgd og af- drif sjúklinganna mjög góðar. Samantekt Á rannsóknartímabilinu sem var frá 1997 til 2013 gekkst fimmti hver sjúklingur á Íslandi sem greindist með hjartaþelsbólgu und- ir opna hjartaaðgerð, oftast vegna hjartabilunar sem rakin var til leka í sýktu lokunni. Þetta hlutfall hækkar eftir því sem líður á rannsóknartímabilið. Sökum þess hve veikir þessir sjúklingar eru þegar þeir gangast undir aðgerð eru fylgikvillar tíðari en eftir hefðbundnar lokuskiptaaðgerðir. Þetta á sérstaklega við um enduraðgerð vegna blæðingar, hjartadrep og gáttaflökt. Þá er 30 daga dánartíðni þessara sjúklinga hærri og langtímalifun lakari en eftir hefðbundnar valaðgerðir á ósæðar- og míturloku. R A N N S Ó K N

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.