Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 37

Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 37
LÆKNAblaðið 2017/103 93 og austur í Auðsholt. Það var ekki brúað við Iðu fyrr en 1957, fram að því þurftu læknarnir að láta ferja sig yfir Hvítá, eða hlaupa á jökum að vetrarlagi. Það er sögð saga af Brynjólfi Péturs- syni presti á Ólafsvöllum: Iðumenn voru að ferja hann yfir að Skálholti og það var íshröngl á ánni og heldur leiðinlegt færi. Þegar yfir kom var karlinn spurður hvort hann hefði ekki orðið hræddur. – Ojú, svaraði hann. – Baðstu þá ekki til Guðs? – Jú, en bara einu sinni, það þýðir ekkert að nauða í honum, sagði klerkur. Það má nefna að við bjuggum framan af við þau hlunnindi að mega veiða lax í net í Hvítá. Svo lagðist það nú af vegna leti og ómennsku okkar, auk þess sem veiðifélagið var á móti þessu. En þetta var ansi gaman meðan á því stóð. Við lögðum okkur ekki í neina hættu, Gylfi datt að vísu einu sinni í ána en hann bjargaðist. Við lentum í ýmsum smáævintýrum, eins og að festa bílinn og þurfa að ganga til byggða. Stundum settu björgunarsveitir undir okkur sleða þegar færi var erfitt. Það gerðist ýmislegt og sumt þannig að um það má ekki ræða. En við vorum bara sælir. Það eru drjúgir spottar í héraðinu því að það eru 40 kílómetrar upp að Sogi og einnig upp að Gullfossi og austur í Þjórs- árdal. Samt höfum við komið á allflesta ef ekki alla bæi í uppsveitum Árnessýslu á þessum tíma, vorum búnir að sinna börn- um og foreldrum, öfum og jafnvel langöf- um í sumum tilvikum. Hvað tekur við? – Nú eru breyttir tímar, verður ekki erfitt að fá ungt fólk til að taka við af ykkur? – Jú, stöðin verður hugsanlega rekin áfram með málaliðum og kannski fást einhverjir sérvitringar til að taka við henni. Það er bara ekki í tísku núna að vera bundinn við vinnuna. Það þarf vinnu handa maka, félagsumhverfi barnanna þarf að vera við hæfi, tónskólar og þess háttar. Pétur bætir því við að þegar hann var að alast upp hafi hann vanist því að fjöl- skyldan hefði bara einn heimilislækni. – Með tímanum breyttist það, einyrkja- læknar þóttu afturúr í öllu og rétt að reka heilsugæsluþjónustu með þverfaglegri samvinnu. Nú er komið svo að læknar eru óánægðir í þessari þverfaglegu þjónustu og vilja komast aftur í að verða sjálfum sér nægir og reka þetta á eigin vegum. En einhvers staðar hlýtur nú að finnast ein- hver millivegur á milli einyrkjastarfsins og samvinnunnar. – Er ekki hætta á að ef ekki gengur að fá lækna muni þjónustan flytjast niður á Selfoss? – Jú, til hvers er verið að leggja vegi og byggja brýr ef ekki má nota samlegðina af því? En þá tapar maður nándinni og það er viss lærdómur í því að þekkja fólkið. Þegar þú hefur komið heim til þess veistu meira um það og hvernig það býr og hefur það. Maður er kannski með þessu fólki í gönguhópi eða læonsklúbbi og þekkir ýmsar hliðar á því, ekki bara einhvern með bakverk, segja þeir. Sælir í sveitinni – Var ekki reynt að halda í ykkur? – Jú, loksins þegar við fengum að fara héldu þeir okkur mikla veislu og við erum að sjálfsögðu bísperrtir og montnir yfir því! Þetta gladdi okkur mikið, enda viss- um við ekki að þjónusta okkar hefði verið svona mikils metin. Auðvitað blandast þessu einhver óvissa um framtíðina ef hingað koma bara einhverjir fermingar- drengir. En það venst nú. Við missum þó ekki alveg tengslin því við fengum smá- part af jörðinni á leigu undir bústaði og erum þar mestallt sumarið. Það fer vel um þá í Garðabæ og Kópa- vogi, en hvað tekur nú við? Pétur ætlar að vinna í forgjöfinni í golfi, spila brids og báðir segjast stunda stunda líkamsrækt og sinna barnabörnum. – Við vorum sælir í sveitinni, en hvort við vorum farsælir verða aðrir að segja til um. Einn sveitunginn benti okkur þó á að þegar við komum hafi verið tveir læknar og fimm prestar í héraðinu. Nú eru tveir læknar en bara tveir prestar svo það hefur snarminnkað annríkið hjá þeim, segja þeir félagar og brosa út í annað. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Laugaráslæknarnir Pétur og Gylfi hættir störfum í heilsugæsl- unni. Mynd Ívar Sæland.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.