Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2017, Side 41

Læknablaðið - 01.02.2017, Side 41
LÆKNAblaðið 2017/103 97 Unglæknar og læknanemar voru verðlaunaðir fyrir framúrskar- andi vísindaerindi á þingi Félags íslenskra lyflækna sem fór fram í desember. Í hópi læknanema kepptu til úrslita Kristján Torfi Örnólfsson og Þórður Páll Pálsson og bar Kristján sigur úr býtum. Er- indi hans bar heitið Lýðgrunduð rannsókn á ættlægni Primary biliary cholangitis á Íslandi. Titill erindis Þórðar var Nýrnaígræðsl- ur á Íslandi: Þættir sem hafa áhrif á græðlingsstarfsemi einu ári frá ígræðslu. Úr hópi unglækna voru þau Rósa B. Þórólfsdóttir og Arnar Jan Jónsson valin til að kynna sín erindi og keppa um verðlaun. Erindi Rósu var svo valið besta erindi unglæknis á þinginu en það heitir Mislestursstökkbreyting í PLEC geni eykur áhættu á gáttatifi. Erindi Arnars nefndist Algengi langvinns nýrnasjúkdóms áætlað út frá reiknuðum gaukulsíunarhraða: Lýðgrunduð rannsókn Auk viður- kenningarskjals voru veitt verð- laun að upphæð kr. 100.000 fyrir fyrsta sætið og kr. 50.000 fyrir annað sætið. Peningaverðlaunin voru veitt úr Verðlaunasjóði í læknisfræði sem Árni Kristins- son og Þórður Harðarson veita forstöðu. Verðlaun á Lyflæknaþingi Verðlaunahafar og formaður Félags íslenskra lyflækna og fulltrúi dómnefndar. Davíð O. Arnar, Rósa B. Þórólfsdóttir, Þórður Páll Pálsson, Kristján Torfi Örnólfsson, Arnar Jan Jónsson, Margrét Birna Andrésdóttir og Þórður Harðarson. DEILDARLÆKNIR Laus er til umsóknar staða deildarlæknis við Sjúkrahúsið Vog. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð Þátttaka í daglegri læknisþjónustu á Sjúkrahúsinu Vogi og öðrum starfsstöðvum SÁÁ. Þetta felur m.a. í sér vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga og þverfaglega samvinnu. Hæfniskröfur Að hafa lokið kandídatsári og hafa almennt lækningaleyfi. Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur til 20. febrúar 2017. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á Sjúkrahúsið Vog, Stórhöfða 45, 110 Reykjavík, eða í tölvupósti á saa@saa.is Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri, s. 824 7600, netfang: thorarinn@saa.is

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.