Læknablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 45
LÆKNAblaðið 2017/103 101
M I N N I N G A R O R Ð
Foreldrar Tómasar voru Jónas Tómasson,
bóksali, organisti og tónskáld á Ísafirði
(1881-1967) og Anna Ingvarsdóttir hús-
freyja (1900-1943). Tómas fæddist og ólst
upp á Ísafirði og var elstur þriggja bræðra,
en hinir voru Ingvar víóluleikari og hljóm-
sveitarstjóri (1927-2014) og Gunnlaugur
Friðrik bóksali (1930).
Tómas kvæntist 14. júlí 1946 Önnu Jó-
hannesdóttur f. á Seyðisfirði 30. október
1924. Börn þeirra eru 1) Jónas tónskáld, f.
21. nóvember 1946, maki Sigríður Ragnars-
dóttir tónlistarskólastjóri, f. 31. október
1949. Börn þeirra a) Ragnar Torfi, maki
Tinna Þorsteinsdóttir og eiga þau tvö
börn, b) Herdís Anna, c) Tómas Árni. 2)
Jóhannes upplýsingafulltrúi, f. 28. febrúar
1952, maki Málfríður Finnbogadóttir verk-
efnastjóri, f. 21. janúar 1954. Börn þeirra a)
Helgi, sambýliskona Hildur Bjarnadóttir,
barn þeirra Elsa María, og fyrir átti Helgi
Jóhannes, b) Anna, maki Ragnar Björn
Ragnarsson (þau skildu), börn þeirra Sara
Björk og Einar Björn, c) Þórdís, maki Brynj-
ar Valþórsson, sonur þeirra Valþór Hrafn-
kell, fyrir átti Þórdís Ísar Ágúst og Salvöru
Móeiði, 3) Haukur tónskáld, f. 9. janúar
1960, maki Ragnheiður Elísdóttir læknir,
f. 22. nóvember 1966. Börn þeirra a) Hulda
Kristín, b) Anna Soffía. 4) Guðrún Anna
píanókennari, f. 20. mars 1962, maki Leon
van Mil tónlistarkennari, f. 5. júlí 1960.
Tómas Árni varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1943 og lauk
kandídatsprófi frá læknadeild HÍ 1951 og
hlaut sérfræðileyfi í lyflækningum, sér-
staklega meltingarsjúkdómum 1957. Að
loknu kandídatsári og starfi sem héraðs-
læknir í Súðavíkurlæknishéraði 1953 hélt
hann til sérfræðináms í Bandaríkjunum.
Var hann fyrsta árið aðstoðarlæknir á
lyflækningadeild Duke University Hospi-
tal í Durham í Norður-Karólínu og síðan
á lyflækninga- og meltingarfræðadeild
Henry Ford Hospital í Detroit í Michigan
árin 1954-1957. Var sérfræðingur á Landa-
kotsspítala 1957 til 1993 og heimilislæknir
í Reykjavík 1957 til 1962. Einnig stundaði
hann sérfræðistörf á eigin stofu til 1996.
Hann var prófdómari í lyflæknisfræði við
embættispróf við læknadeild HÍ 1966-1974
og lektor og síðar dósent í meltingarfræð-
um árin 1973 til 1989. Árið 1962 hóf hann
að kynna sér nýjungar í meltingarlæknis-
fræðum með námsdvöl í Kaupmannahöfn,
Gautaborg, á Englandi og síðar Erlangen
í Þýskalandi og var meðal fyrstu lækna
hér á landi til að rannsaka og greina
meltingarsjúkdóma með myndatökum í
meltingarvegi.
Tómas Árni var virkur í félags- og
trúnaðarstörfum á sviði heilbrigðismála,
var formaður Læknafélagsins Eirar,
gjaldkeri og formaður Læknafélags
Reykjavíkur, Félags íslenskra lyflækna,
Félags meltingarfræðinga. Þá sat hann
í stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur
1973-1988, var formaður 1978-1988 og
var varaformaður Krabbameinsfélags
Íslands 1980-1988. Hann var félagi í al-
þjóðafélagi meltingarsérfræðinga, Bockus
International Society of Gastroenter-
ology frá 1972 og sat í stjórn þess árin
1980-1984. Einnig sinnti hann ýmsum
nefndarstörfum fyrir Landakotsspítala,
læknasamtökin, læknadeild HÍ og heil-
brigðisráðuneytið. Þá skrifaði hann grein-
ar varðandi sérgrein sína í innlend og er-
lend tímarit. Tómas Árni sat í heiðursráði
Krabbameinsfélags Íslands frá 1990, var
kjörinn heiðursfélagi Krabbameinsfélags
Reykjavíkur 1994. Hann hlaut riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu árið
1990. Hann var formaður fræðslunefndar
Landakotsspítala 1968-1970, fræðslu- og
námskeiðsnefndar Læknafélags Íslands og
Læknafélags Reykjavíkur og hann var for-
maður Læknafélags Íslands árin 1974-1978.
Hann vann ásamt vini sínum Povl Riis og
fleiri dönskum læknum að uppbyggingu
framhaldsmenntunar íslenzkra lækna og
endurreisn útgáfustarfsemi læknafélag-
anna og verður gerð grein fyrir því síðar, í
tengslum við aldarafmæli Dansk-Islandsk
Samfund. Sjötugur að aldri var Tómas
Árni kjörinn heiðursfélagi Læknafélags
Íslands.
Önnu, börnum og barnabörnum þeirra
Tómasar Árna, sendi ég samúðarkveðjur
okkar Áslaugar.
In memoriam
Tómas Árni Jónasson
5. október 1923 – 5. nóvember 2016
Örn Bjarnason læknir og fyrrum ritstjóri Læknablaðsins
ornbjarnason47@gmail.com