Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Side 7
16. febrúar 2018 fréttir 7
Spákona á SjötugSaldri Selur
contalgin og rítalín í Breiðholti
n Tugir dáið úr eitrun n Alma var 15 ára þegar hún lést n Spádómar og dóp í boði
Spákonan nær í dópið Í boði spádómar og læknadóp. „Nei, þetta er
spænskt. Hér er
ekkert gamalt.
„Ertu með eitthvað,
þú veist?
upplýsingar um framtíðina. Hún
væri að dreifa lyfseðilsskyldum
lyfjum, það er læknadópi. Blaða-
maður sló á þráðinn til konunnar
og maður svaraði. Síðan tók spá-
konan við tólinu.
Blaðamaður DV þóttist heita
Trausti, fíkill sem var á leiðinni inn
á Vog en þyrfti smá skammt sem
átti að duga fram að því. Trausti
fór hins vegar varfærnislega í sím-
talið og athugaði hvort spákon-
an ætti lausan tíma til að spá fyr-
ir honum. Spákonan sagði að það
væri hægt og hún ætti lausan tíma
klukkan tvö á heimili hennar í
Breiðholtinu. Þá bar Trausti upp
spurninguna:
Ertu með eitthvað, þú veist?
„Með eitthvað?“
„Konta“ eða eitthvað svoleiðis?
„Já,já … ég á konta.“
Hvað kostar hann?
„Átta þúsund.“
Var þá um eina 100 milli-
gramma töflu af contalgin að
ræða. Meirihlutinn af contalgin
sem selt er á svörtum markaði á Ís-
landi er ekki komið frá innlendum
lyfseðilshöfum heldur eru töflurn-
ar keyptar inn erlendis frá. Kosta
þær þá yfirleitt um þúsund krónur
stykkið. Samkvæmt heimildum
DV er spákonan dreifingaraðili
fyrir einstakling sem fer reglulega
til Alicante á Spáni og kaupir þar
lyfin.
Spákonan sagðist eiga nóg
af „konta“ og rítalíni. Rítalín er
örvandi lyf, skylt amfetamíni, sem
ávísað er til barna með athyglis-
brest og ofvirkni. Auðveldar lyfið
börnunum að halda einbeitingu
og eiga samskipti við aðra. En
rítalín er einnig eitt af algengustu
lyfseðilsskyldu lyfjunum sem eru
misnotuð á Íslandi. Er lyfið þá
leyst upp og því sprautað í æð líkt
og gert er við contalgin-töflurnar.
Sjúkratryggingar Íslands létu gera
úttekt á sölu rítalíns og skyldra
lyfja á árunum 2006 til 2009 var
aukningin þá um 20 prósent.
Árið 2011 var hafði um helming-
ur þeirra sem leituðu inn á með-
ferðarheimilið Vog misnotað ríta-
lín og skyld lyf.
Trausti spurði konuna hvort
hún væri að selja „eitthvað annað,
svipað og kontann“ og var þá að
athuga hvort hún væri einnig að
selja önnur morfínskyld lyf en svo
reyndist ekki vera.
Keyptu töflu af contalgin
Næsta dag hringdi Trausti aftur
í spákonuna og sagðist ekki
ætla að láta spá fyrir um framtíð
sína heldur vildi hann aðeins fá
skammtinn. Það reyndist ekkert
mál og hún sagðist ætla að vera
heima þá um eftirmiðdaginn.
Fóru þá tveir blaðamenn DV á
heimili hennar með upptökubún-
að, bæði myndbandsupptökutæki
og hljóðupptökutæki, til að ganga
frá viðskiptunum. Konan hleypti
þeim inn í íbúðina og við blöstu
ýmiss konar skreytingar, lituð ljós
og nornadúkkur. Kynnti annar
blaðamanna þá sig sem frænda
Trausta. Viðskiptin fóru svo fram
í eldhúsinu hjá spákonunni en
engir aðrir voru sjáanlegir á heim-
ilinu.
„Hvað margar?“ spurði spá-
konan og Trausti sagðist aðeins
vilja eina. Spurði hún þá hvort þeir
væru Pólverjar, því henni fannst
þeir líta út fyrir að vera pólskir.
Hrósaði hún happi að þeir væru
Íslendingar.
Upp úr hægri buxnavasa sínum
dró spákonan þá lítinn plastpoka
sem innihélt fjölmargar töflur af
contalgin, úr niðurklipptu lyfja-
spjaldi.
„Er þetta nokkuð gamalt?“
spurði Trausti
„Nei, þetta er spænskt. Hér er
ekkert gamalt.“
Trausti rétti henni þá átta þús-
und krónur í reiðufé.
„Gjörðu svo vel. Þið eruð ekkert
í löggunni?“ spurði spákonan þá,
og neituðu Trausti og frændi hans
því. Því næst þökkuðu þeir fyrir sig
og héldu sína leið með töfluna í
farteskinu.
Spákonan vildi ekki tjá sig
málið við DV þegar eftir því var
leitað. n