Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Page 8
8 16. febrúar 2018fréttir
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Uppáhalds-
hlutur
Bigga löggu Fær 130 þúsund á mánuði í
húsnæðiskostnað frá ríkinu
n Steingrímur J. býr í glæsihýsi í Breiðholti með 1,8 milljónir í laun
S
teingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, hefur um
áratugaskeið búið í Selja-
hverfinu í Breiðholti en
fær 1,6 milljónir á ári fyrir að
vera með lögheimili á Vopna-
firði. Fyrst í húsi við Brekkusel, en
í október 1999 fjárfesti hann,
ásamt eigin konu sinni
Bergnýju Marvins-
dóttur, í einbýlis húsi
við Þingasel 6, sem
er heilir 314,6 fer-
metrar að stærð. Um
einstaklega glæsi-
lega eign er að ræða
sem er í dag metin
hátt í 100 millj-
ónir. Verður það
að teljast við hæfi
að þaulsætnasti alþingismaður
þjóðarinnar búi við Þingasel.
Húsið kostaði á sínum tíma 23,1
milljón króna og gat Steingrímur
greitt um 16,3 milljónir út í hönd
en afgangurinn, tæpar 7 milljónir
króna, var tekinn að láni. Stein-
grímur er með 1,8 milljónir króna í
laun á mánuði sem forseti Alþing-
is.
Steingrímur keypti Brekku-
sel í júlí árið 1987, þýðir það að
hann hefur búið í Seljahverfinu í
minnst 30 ár. Á sama tíma hefur
hann verið með skráð lögheim-
ili á Gunnarsstöðum í Vopnafirði
og fengið fyrir það húsnæðis- og
dvalargreiðslur. Steingrímur, líkt
og aðrir þingmenn kjördæma
utan höfuðborgarsvæðisins, fær
mánaðarlega greiddar 134.041
krónu í húsnæðis- og dvalarkostn-
að. Það gera 1.608.492 krónur á ári.
Steingrímur hefur setið á þingi
sem þingmaður Norðausturkjör-
dæmis, áður Norðurlands eystra,
frá árinu 1983. Greiðslurnar fyrir
húsnæðis- og dvalarkostnað hafa
hækkað í takt við laun þingmanna,
fékk Steingrímur til dæmis 72.450
krónur í húsnæðis- og dvalar-
kostnað árið 2003.
Hefur aldrei sótt um
álagsgreiðslur
Fjárhæðin er ætluð til að standa
undir húsnæðiskostnaði á eða í
kjördæminu ef þingmaður býr á
höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt
reglum þingsins getur þingmaður
sem á aðalheimili utan höfuð-
borgarsvæðisins, og annað heimili
í Reykjavík óskað eftir að fá greitt
40 prósenta álag. Steingrímur seg-
ir í svari við fyrirspurn DV að hann
hafi aldrei sótt um slíkar álags-
greiðslur. „Ég fæ greiddan hús-
næðis- og dvalarkostnað eins og
yfirleitt aðrir landsbyggðarþing-
menn, en hef aldrei sótt um álags-
greiðslur vegna tvöfalds heimilis-
halds,“ segir Steingrímur.
Samkvæmt lögum um lögheim-
ili verða allir að skrá lögheimili sitt
þar sem þeir hafa fasta búsetu, það
á hins vegar ekki við um alþingis-
menn sem er heimilt að eiga áfram
lögheimili í því sveitarfélagi þar
sem þeir höfðu fasta búsetu áður
en þeir urðu þingmenn.
Steingrímur er ekki eini þing-
maðurinn sem fær greiðslur af
þessu tagi frá Alþingi. Nokkrir
þingmenn Norðvestur- og Norð-
austurkjördæmis staðfestu að
þeir fengju slíkar greiðslur fyrir að
halda tvö heimili, eitt í kjördæm-
inu og annað á höfuðborgarsvæð-
inu. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Miðflokksins, hefur
verið í fréttum vegna lögheimilis-
flutninga hans árið 2013. Á árun-
um 2009 til 2013 var hann þing-
maður Reykjavíkur en árið 2013
flutti hann lögheimilið á Hrafna-
björg III í Jökulsárhlíð þar sem
hann hefur aldrei haldið heimili.
Í desember í fyrra flutti hann svo
lögheimilið til Akureyrar eftir að
fyrri lögheimilisskráning var kærð.
Sigmundur Davíð svaraði ekki
fyrir spurn DV um málið.
Engar upplýsingar um greiðslur
til þingmanna, hvort sem það er
húsnæðis- og dvalarkostnaður eða
ferðakostnaður, eru nú aðgengi-
legar á vef Alþingis og hefur skrif-
stofa þingsins ekki viljað nefna
einstaka þingmann á nafn þegar
eftir því er leitað. Steingrímur von-
ast til að allar svona upplýsingar
um alla þingmenn verði aðgengi-
legar fljótlega á vef Alþingis. Sem
forseti Alþingis er Steingrímur
með bíl og bílstjóra frá Alþingi
líkt og ráðherrar, en hann segist
stundum fá bílaleigubíl frá Alþingi
þegar hann heimsækir kjördæmið
en Steingrímur fær einnig ókeypis
flug á heimaslóðir. n
n Dvalarkostnað að upphæð 134 þúsund
n Frítt flug á milli lögheimilis og Reykjavíkur
n Bílaleigubíl á heimaslóðum
Allir þingmenn fá ókeypis:
n Bækur, fréttablöð og tímarit
n Símanotkun
n Frímerki
n Leigubíla
n Blóm og gjafir fyrir 6.000
krónur í hvert skipti
n Tölvu og fylgibúnað
n Rétt á endurgreiðslu að upphæð 480
þúsunda króna vegna starfskostnaðar
Það sem Steingrímur og aðrir
þingmenn á landsbyggðinni fá
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Steingrímur J. Sigfússon hefur setið á þingi
fyrir Norðausturkjördæmi frá árinu 1983. Hann
hefur búið í Seljahverfinu í Breiðholti frá árinu 1987.
„Fartölvan mín hlýt-
ur að vera uppáhaldstækið
mitt á heimilinu. Ég handleik hana
allavega mest af öllum tækjum. Hún
er magnaður töfragluggi út í umheiminn
og ótrúlega öflugt gjallarhorn til að koma
skilaboðum og skoðunum út í kosmósið. Í
gegnum hana hef ég meðal annars tekið
eitt stykki háskólanám, skrifað fjöldann
allan af greinum og hugleiðingum
og komist í samband við fólk
úti um allan heim. Það er
eitthvað.“
Fær allt nema …
Róbert Wessman og þeir Árni
Harðarson og Magnús Jaroslav
Magnússon voru í gær dæmdir
af Hæstarétti til að greiða fyrr-
verandi viðskiptafélaga sínum,
Matthíasi Johannessen, 640
milljónir vegna viðskipta í lyf-
jafyrirtækinu Alvogen. Vext-
ir og dráttarvextir bætast við
heildarupphæðina sem er þá
1,2 milljarðar króna. Eru þetta
með hæstu bótum sem einstak-
lingar hafa verið dæmdir til að
greiða. Mikið hefur farið fyrir
Róberti síðustu ár en hann veit
allt um lyfjabransann, innan-
hússhönnun og eftirrétti. Nú
síðast líka um kampavín. Fram
að þessum degi virtist hann geta
gert og fengið allt sem hann
vildi. Nema DV reyndar.