Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Page 24
24 umræða Sandkorn 16. febrúar 2018 Spurning vikunnar DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Ritstjóri: Sigurvin Ólafsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur fréttaskot 512 7070 abending@dv.is Ríkisvæðum fíkniefnaneyslu Þ að hefur aldrei verið auð­ veldara að kaupa fíkniefni á Íslandi en í dag. Hvaða nettengdi auli sem er getur komist í kynni við fíkniefnasala svo lengi sem hann sé læs, eða geti að minnsta kosti lesið símanúmer. Til dæmis eru á Facebook ótal hópar þar sem salarnir kynna vörur sín­ ar með mynd, verði og símanúm­ eri. Rétt eins og á Braski og bralli eða Blandi. Þetta var ekki svona þegar ég var yngri. Reyndar heyrði ég þá að jafn auðvelt væri að kaupa fíkni­ efni og að panta sér pítsu. En það er bara lygi því fíkniefnasalarnir aug­ lýstu ekki í dagblöðum eða með skjáauglýsingum. Maður þurfti að þekkja einhvern. Það reyndist ekki erfitt fyrir blaðamenn DV að kaupa eina töflu af contalgin frá eldri konu í Breiðholti í vikunni. Eitt símtal, stutt stopp, komið. Fíkniefnalaust Ísland árið 2000 var kosningaslagorð Fram­ sóknarmanna einhvern tímann á tíunda áratugnum og þykir ágætis brandari í dag. Fíkniefni hafa alltaf verið til og munu alltaf vera til, sama í hvaða formi þau eru. Í dag er mikið talað um afglæpa­ væðingu fíklanna. Að þeim verði ekki gerð refsing fyrir að nota efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu. Það er allt gott og blessað en leysir samt ekki vandann. Það er eftir sem áður ólöglegt að framleiða og selja efn­ in. Þar með þrífast enn margir af helstu ókostunum. Hvað með að gera fíkni­ efnaneyslu löglega? Og ekki nóg með það, heldur að ríkið útvegi þau … frítt? Hverjir eru ókostirnir? Jú, þetta myndi ábyggilega kosta sitt og sjálfsagt myndu einhverj­ ir deyja. Það samrýmist ekki lýð­ heilsusjónarmiðum að sprauta sig með contalgin í gríð og erg. Land­ læknir myndi aldrei mæla með slíku. En hverjir eru kostirnir? Í fyrsta lagi myndi þetta taka út undirheimaviðskiptin. Það kaupir enginn töflu á átta þúsund krón­ ur þegar hægt er að fá hana frítt frá ís­ lenska ríkinu. Í öðru lagi er það öryggið. Þegar þú kaupir efni frá manni á Face­ book veistu ekkert hvað þú ert að fá. Það eru engar inni­ haldslýsingar eða vottun á slíkri vöru. Lyfjaeftirlit ríkis­ ins myndi tryggja að allt hass, spítt, kókaín og morfí­ nefni væru unnin samkvæmt bestu stöðlum. Í þriðja lagi dregur þetta úr örvæntingu. Fíkniefni eru dýr á Íslandi og fíkl­ arnir verða að fá næsta skammt. Hvað gera þeir þá? Brjótast inn, selja sig, selja öðrum, handrukka og þar fram eftir götum. Það myndi enginn þurfa að selja sig fyrir ríkis­ skammtinn. Í fjórða lagi myndi þetta næstum tæma fangelsin. Í fimmta og síðasta lagi myndi þetta ábyggilega hafa forvarnargildi fyr­ ir marga því þetta tekur spennuna úr jöfnunni. Hvað er meira ósexí en frítt ríkisdóp? n Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Það myndi enginn þurfa að selja sig fyrir ríkis skammtinn. Hlutverkin Smári McCarthy, þingmaður Pírata, skólaði Ásmund Frið- riksson, þing­ mann Sjálf­ stæðisflokksins, til vegna stóra akstursmálsins. Segir Smári að starf þingmannsins snúist ekki um að rúnta á milli staða heldur að skilja málefnin til hlítar. Þarna birtist mismun­ andi skilning­ ur manna á eðli þingstarfa. Ás­ mundur telur það hlutverk sitt að mæta í fermingarveislu hjá kumpánum á Vík, spjalla við velunnara yfir pönnsum á Höfn og taka í spaðann á ein­ hverjum lagsmanni í Rangár­ vallasýslu. Á sama tíma telur Smári það hlutverk sitt að hafa fullan skilning á öllum þeim málum sem rata á hans borð. Getur verið að þeir hafi báð­ ir rétt fyrir sér og kjósendur Suðurkjördæmis vilji hafa bæði þingmann sem skilur allt og kjördæmishornaflakkara? Eyþór á fundi Netverjar hafa skemmt sér konunglega við að koma Eyþóri Arnalds, borgarstjóraefni Sjálf­ stæðisflokksins, fyrir á hinum og þessum mynd­ um. Í umferð eru myndir af Eyþóri á fundi Reagans og Gorbatsjovs í Höfða 1986 og á þjóðfundinum 1851. Er þar vísað í fræga för Eyþórs á fund þingmanna og borgarstjórnar í Höfða í vikunni þangað sem honum var boðið af velunnara sínum, Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra. Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri tók ekki vel í veru Eyþórs á fundinum og vísaði honum út. Morgunblað­ ið og Viðskiptablaðið segja Dag vera argasta dóna en stuðn­ ingsmenn Dags setja spurn­ ingarmerki við hvers vegna Vigdís Hauksdóttir og alls kyns Píratar hafi þá ekki líka feng­ ið að vera á fundinum. Guð­ laugur Þór dokaði ekki lengi við á landinu eftir fundinn og fór á tveggja daga fund NATO í Brussel. Ekki hafa borist fregnir af því að Jens Stoltenberg hafi vísað einhverjum vini Guð­ laugs af fundinum. „Nei, alls ekki. Við þurfum samt að vera á tánum og hugsa um hana.“ Patrekur Jóhannesson „Já, ég er kennari og hef tekið eftir að unglingarnir sletta mikið á ensku og misskilja íslensku.“ Steinunn Torfadóttir „Já, ég er farinn að hafa það út af símunum og kjaftæðinu í krökkunum.“ Eyjólfur Einarsson „Nei, ég held að hún sé í góðu lagi.“ Birta Karen Tryggvadóttir Hefur þú áhyggjur af framtíð íslenskunnar? V ið hjónin ákváðum að velja nafnið Kilian á strákinn okkar, þetta er írskt dýrlinganafn, not­ að víða um Evrópu og strákurinn fæddist nálægt degi heilags Kil­ ians. Svo fengum við „Nei“ frá mannanafnanefnd, þá megum við ekki skíra hann nafninu og fáum tillögur til baka. Þá vildu þeir að við skírðum hann Kiljan eða Kilían. Við kyngdum því og skírðum hann Kilían, en svo flutt­ um við til Danmerkur þegar Kili­ an var fjögurra ára og bjuggum þar í sex ár. Þegar við komum aftur heim þá fengum við breytinguna í gegn því hann var kom­ inn með skilríki sem á stóð hans rétta nafn. Það hafa einu sinni eða tvisvar verið gerðar athugasemdir við nöfn á grundvelli barnaverndar, annars snýst þetta bara um ís­ lenska málhreinsun og þjóðernis­ stefnu. Af hverju er hið opinbera að skipta sér að einhverju sem kemur því ekkert við? Þetta er bara til að passa að hingað komi ekki al­ þjóðleg áhrif. Varðandi ættarnöfn þá snýst þetta bara um að passa þetta gamla ættarnafnasnobb, sem var til þess að merkja þá sem voru í yfirstétt. Þ etta eru þau lög þar sem finna má íslenska mál­ stefnu í framkvæmd. Ef þau eru endurskoðuð þá þarf að endurskoða íslenska mál­ stefnu. Í Bandaríkjunum þarf ekki málstefnu því tungumálið þarf ekki að verja, í krafti stærðar­ innar þá er enginn sem set­ ur spurningarmerki við hvernig ensk tunga er rituð og tungumál­ ið sér um það sjálft að aðlaga er­ lend nöfn. Íslenska er hins vegar algjört minnihlutamál í heim­ inum og þess vegna þarf slíkt tungumál vernd og stuðning. Ólíkt ensk­ unni þá þurfum við að binda verndina í lög því aðlögunin gerist ekki sjálfkrafa. Það er grundvallarmis­ skilningur í umræðunni að mannanafnanefnd sé eitthvert atriði í þessu, þetta er bara spurn­ ing um að hafa eftirlit með að lög­ unum sé framfylgt. Í nágranna­ löndunum, eins og til dæmis Svíþjóð, eru það bara nafnlausir embættis­ menn inni í ráðuneytinu sem hafa eftirlit með því að farið sé eftir lögunum. Nefndin í dag er bara skipuð af sérfræðingum úti í bæ sem eru gerðir að blóra­ böggli fyrir því hvernig lögunum sé framfylgt og settir í gapastokk í hvert sinn sem tekin er ákvörðun. Baldur Sigurðsson, dósent í íslensku við Háskóla Íslands Þórlaug Ágústsdóttir, Pírati og móðir Kilians MEð og á MóTi – Mannanafnanefnd með á móti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.