Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Page 27
2716. febrúar 2018
Sum fyrirtæki senda bara
starfsmann út í búð.
Það kostar ekkert því hann er
hvort sem er í vinnunni
Ávextir alla daga vinnuvikunnar
kosta um 550 kr. á mann.
Hamborgaratilboð kostar hátt
í 2.000 kallinn, einu sinni.
Ávaxtabiti um miðjan morgun
eða um nónið, getur bjargað
deginum þegar starfsmenn eru
orðnir orkulausir. Vinnuveitendur
geta hagnast nokkuð á því.
Þegar fyrirtæki eru í áskrift hjá
Ávaxtabílnum, þurfa þau aldrei
að muna að panta – ávextirnir
koma bara.
Ef fyrirtæki í áskrift vill breyta
pöntun sinni, er hún kölluð fram
á heimasíðu okkar, breytt og send
inn – gæti ekki verið einfaldara.
Fyrirtæki í áskrift
fá 20% afslátt af
veislubökkum okkar.
Starfsmenn Múlalundar
sjá um alla tiltekt ávaxtanna
fyrir Ávaxtabílinn og fá svo
að sjálfsögðu ávexti upp á borð
hjá sér alla vikuna
ódýr
Nú eru
góð ráð
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
Hjátrú og trú
n Er okkar fremsta íþróttafólk haldið hjátrú? n Hjálpar guð þeim í keppni?
Kristófer Acox
Landsliðsmaður í körfubolta
Ertu hjátrúarfullur?
Ég held ég geti sagt að ég sé með tvær. Ég sit alltaf á sama stað
á vídeófundum daginn fyrir leik og æfi einnig alltaf í vissu skópari
daginn fyrir leik.
Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?
Ég myndi ekki segja að ég trúi á guð, en trúi á að mínir nánustu sem
hafa fallið frá vaki yfir mér og ég „bið„ eða tala t.a.m. alltaf við
hana ömmu mína sálugu rétt fyrir leik. Er bara ekki alinn upp við
mikla trú og held að það sé meginástæða þess að ég er ekki trúaður.
Hjörvar Steinn grétarsson
Stórmeistari í skák
Ertu hjátrúarfullur?
Ég er almennt ekki hjátrúarfullur en ég viðurkenni að það eru
nokkrir hlutir sem ég geri almennt þegar ég tefli á mótum. Ég
borða yfirleitt sama matinn fyrir mót og til þess að skrifa skákirnar
(það er eitt af því sem skákmenn þurfa alltaf að gera í lengri
skákum) nota ég yfirleitt sama pennann. Frá því að ég byrjaði að
tefla hef ég ætíð teflt skólaus en það er byggt á hugmyndum um
þægindi fremur en einhvers konar hjátrú. Ég myndi segja að eina
hjátrú mín væri tengd pennanotkun. Ef ég þarf virkilega að komast
í tæri við minn innri keppnismann þá hlusta ég á rapp fyrir skákina.
Helst „old school“ Tupac.
Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?
Ég trúi á Guð. Móðir mín fór reglulega með bænir með mér á
kvöldin þegar ég var yngri. Ég myndi seint teljast strangtrúaður en
grundvöllur trúar minnar er sú afstaða að það sé eitthvað æðra en
maðurinn. Allir afreksmenn hafa gengið í gegnum erfiðleika og ég
myndi segja að trúin hjálpi manni að komast í gegnum þá þótt ég
telji að almennt sé góður stuðningur fjölskyldu og vina langtum
mikilvægari.