Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Síða 32
Konudagurinn 16. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Gífurleg fjölbreytni einkennir versl-unina Taramy,
sem er hvort tveggja
vefverslun og versl-
un, að Jöklafold 26,
Reykjavík. „Slagorðið
hjá mér er eiginlega
orðið Skemmtilega lítið
af mörgu,“ segir eig-
andinn, Guðrún Þor-
björg Kristjánsdóttir,
en auk þess sem afar
margra grasa kennir
í versluninni þá gætir
Guðrún þess að sitja
ekki uppi með of stór-
an lager, sérpantar fremur það sem
viðskiptavininn vanhagar um og ekki
er til á staðnum.
Meðal þess sem Taramy býður upp
á eru gervibrjóst en til þeirra rek-
ur fyrirtækið jafnframt upphaf sitt:
„Móðir mín stofnaði þetta fyrirtæki
árið 1978 vegna þess
að hún greindist með
brjóstakrabbamein.
Á þeim tíma voru ekki
til nein gervibrjóst
fyrir konur sem urðu
að gangast undir
brjóstnám og engin
umræða var um
sjúkdóminn – hann var
tabú. Þetta hefur sem
betur fer breyst mikið.“
Taramy býður auk
þess upp á mjög falleg
nærföt og undirföt
fyrir konur undir merk-
inu Anita, gjafir sem
hæfa vel á konudeginum, auk margra
annarra heppilegra gjafa, til dæmis
eru í boði fallegar handtöskur fyrir kon-
ur. Sérstaka athygli vekja skemmtilegar
og mjög smekklegar postulínsvörur frá
Þýskalandi. Um er að ræða skálar og
bolla með svipi, það er, að greinileg
ásjóna er grafin í hvern
hlut og gefur þetta vörun-
um mjög smekklegan og
skemmtilegan svip.
Handskornir fuglar frá
Dcuk eru í miklu úrvali, endur,
uglur, mörgæsir o.fl. en þar eru
engir tveir fuglar eins. Fuglarnir eru
settir í mörg hlutverk og það endur-
spegla litskrúðug föt þeirra.
Ýmislegt annað er á boðstólum
eins og leðurveski, akstursgleraugu,
veiðigleraugu, kortaveski með RFID-
vörn og tvær áhugaverðar bækur;
Skipulag kennarans – skipulagsbók
og Gaddakylfan, sérstæð ævisaga
eftir Kristján S. Guðmundssonar .
Vefverslun Taramy, á slóðinni
http://taramy.notando.is/, send-
ir vörur hvert á land sem er en fólk
á höfuðborgarsvæðinu sækir
vörurnar oftast í Jöklafold
26. Verslunin þar er opin
eftir samkomulagi og skal
hringja í síma 699-2355
eftir klukkan 14 og panta
tíma.
Að sögn Guðrúnar er
skemmtilegast að skoða
vefinn fyrst og koma síðan á
staðinn. „Oft sér maður þá eitthvað
sem maður hafði ekki tekið eftir á
vefnum,“ segir Guðrún. Sjá nánar á
taramy.is.
Skemmtilega lítið af mörgu
TARAMy.IS:
Gefðu alveg Júník gjöf á konudaginn
Konudagurinn er á sunnu-daginn en við leggjum áherslu á að karlar komi hingað á
laugardaginn og kaupi gjöf handa
sinni heittelskuðu. Ég verð þá hérna
sjálf í búðinni og ætla að aðstoða
karlana við val á gjöfum. Síðan erum
við að sjálfsögðu með gjafabréf og
þau eru alltaf vinsæl,“ segir Sara
Lind Pálsdóttir, öðru nafni Sara í
Júník, en verslunin er staðsett á
annarri hæð í Kringlunni og nýtur
mikilla vinsælda.
Flestir hafa heyrt verslunina Júník
nefnda á nafn og ég spyr Söru hvers
vegna búðin sé svona þekkt og vin-
sæl?
„Það sem einkennir okkur er að við
erum „unique“, við tökum inn lítið af
hverri flík því fólk vill síður að margar
flíkur séu eins. Þetta er líklega það
sem fólki líkar best við Júník. Þegar
þú kaupir þér eitthvað á Íslandi er
voðalega leiðinlegt að sjá margar
konur í alveg eins flík eða mæta konu
á árshátíðinni í eins kjól og þú varst
að kaupa þér. Við tökum yfirleitt bara
inn 6 til 12 eintök af hverri flík, þegar
um er að ræða kjóla og samfestinga.
Það er öðruvísi þegar um er að ræða
almennari klæðnað og eitthvað sem
allir þurfa.“
Að sögn Söru er aldurshópur við-
skiptavina Júník afar breiður, allt frá
12–14 ára unglingsstúlkum upp í jafn-
vel áttræðar konur. Stærsti aldurs-
hópurinn er líklega 16–45 ára.
Vegan-pelsar í Júník njóta gíf-
urlegra vinsælda. „Karlmenn hafa
verið að kaupa þetta mikið í afmælis-
gjafir og aðrar tækifærisgjafir og
þetta er kjörin gjöf á konudaginn.
Þeir kosta 18.990 krónur og þar sem
þetta eru vegan-pelsar þá er ekkert
hárlos í þeim. Allar konur þurfa að
eiga pels og þessi er kjörinn,“ segir
Sara.
Hún segir að viðskiptavinir séu
mjög spenntir yfir snappinu junik-
iceland þar sem sífellt eru kynntar
nýjar og spennandi vörur. Nánari
upplýsingar er líka á finna á
vefsíðunni junik.is
og á www.facebook.com/junik.like/