Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 54
54 16. febrúar 2018
Fer
ða
lög
Þótt fæstir vilji líkja sér við Donald Trump þá eiga flestir unnendur sagnfræðinnar
það þó sameiginlegt með honum að
vilja heimsækja byrgi hermálaráðu-
neytisins og Churchill-safnið við
Westminster í næstu Lundúnaferð,
en að sögn bresku pressunnar óskaði
appelsínuguli forsetinn sérstaklega
eftir þessari upplifun í væntanlegri
heimsókn sinni til Bretlands.
Að sögn þarlendra blaðamanna
er Trump innblásinn af myndinni
The Darkest Hour en í henni segir
frá fyrstu verkefnum Churchills
sem forsætisráðherra og voru þau
ærin enda loftárásir Þjóðverja
yfirvofandi.
Varnaraðgerðir ríkisstjórnar
Churchills voru að mestu
skipulagðar í þessu neðanjarðar-
byrgi sem var standsett þegar
menn sáu í hvað stefndi og þar
loguðu ljósin allan sólarhringinn í
sex ár, eða allt þar til stríðinu lauk
árið 1945. Þetta byrgi, sem hefur
verið varðveitt í sjötíu ár, kemur
töluvert við sögu í myndinni enda
voru Churchill og hans fólk þar
vakin og sofin í nokkur ár.
Stríðsminjasafnið kallast the
Cabinet War Rooms og mælt
er með því að gestir gefi sér að
minnsta kosti hálfan dag til að
komast yfir að skoða það allt, enda
merkileg og áhrifamikil upplifun.
Samhliða þessum minjum er star-
frækt sérstakt Churchill-safn en
þar eru lífi og störfum þessa merka
manns gerð góð skil.
Athvarf fyrir ríkisstjórnina
Þegar Þjóðverjar réðust inn
í Austurríki í mars árið 1938
setti Hastings Ismay, þáverandi
herforingi og ritari varnarmála-
ráðuneytis, aðgerðaráætlun af stað
svo vernda mætti ríkisstjórnina ef
til þess kæmi að Þjóðverjar gerðu
árásir á Breta.
Kjallarinn undir nýlegu skrif-
stofuhúsnæði ríkisstjórnarinnar
var talinn heppilega nálægur bæði
Downing-stræti númer 10 og Þing-
húsinu svo að þann 31. maí þetta
sama ár var því slegið á fast að þar
skyldi útbúið byrgi fyrir valdamenn
þjóðarinnar.
Allt sumarið 1938 stóðu iðnað-
armenn í ströngu við að skipta út
glerhurðum fyrir þykkar hurðir
úr tekki, sandpokum var hlaðið í
útskotin, símalínur voru lagðar og
BBC setti upp útsendingarbúnað
svo að þjóðin fengi fréttirnar frá
fyrstu hendi og eins fljótt og auðið
væri. Í lok ágúst var búið að prófa
hvern krók og kima, kortin komin
upp og ekkert að vanbúnaði ef til
atlögu kæmi.
Settist á strompinn og púaði vindil
Þann 29. júlí 1940 kom ríkisstjórn
Churchills í fyrsta sinn saman
í byrginu og upp frá þeim degi
voru varnir Breta gegn innrásum
Þjóðverja alfarið skipulagðar frá
þessum sögufræga stað. Þar sátu
þeir saman við stórt borð sem enn
stendur á sínum stað og virtu fyrir
sér kort af Evrópu meðan þeir
veltu fyrir sér hvernig best væri
að verjast foringjanum sturlaða í
Berlín.
Þann 11. september 1940 ómaði
fyrsta útsending breska ríkisút-
varpsins úr byrginu. Með sinni
áhrifaríku rödd varaði Churchill
landa sína við yfirvofandi loftárás-
um Þjóðverja og ekki leið á löngu
þar til hann fékk sjálfur að finna
fyrir því vegna þess að nokkrum
Ferðast til seinni
heimsstyrjaldarinnar
London: Heimsókn í herbúðir Winstons Churchill
margrét h. gústavsdóttir
margret@dv.is
Kortaherbergið Í þessu fræga kortaherbergi voru margar stórar ákvarðanir
teknar. Mynd IWM
tímaLína Á safninu, sem hefur fengið ótal verðlaun, er hægt að skoða, hlusta og
lesa um atburðarásina í síðari heimsstyrjöldinni á þessu stóra ljósaborði.
í beinni útsendingu Churchill talar til landsmanna frá hljóðveri BBC skömmu
áður en hann færði sig niður í varnarbyrgið en þar var einnig komið fyrir út-
sendingarbúnaði svo að hann gæti fært sínu fólki fréttirnar milliliðalaust.
Við unnum!
V is for Victory!
Churchill kátur
að stríðinu loknu.