Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Qupperneq 72
16. febrúar 2018
7. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Tveir á palli!
Hætti að drekka
og léttist
Helgi Jean Claessen náði að
umbylta lífi sínu með því að
gjörbreyta viðhorfi sínu til
sjálfs síns og
matar. Hann
var kominn
á botninn
og ákvað að
grípa til rót-
tækra að-
gerða. „Ég
horfði á
mig í speglinum með bumbu,
kollvik og bauga og hugsaði
að mig langaði ekki lengur
að vera þessi gæi,“ segir Helgi
sem hafði reynt alla vinsæl-
ustu kúrana. Lykilatriðið var
að hætta að vera í átökum
við sjálfan sig og niðurrifi. Og
hætta að drekka.
„Eftir að hafa verið hættur
að drekka í þrjá mánuði –
fannst mér ég skyndilega losna
undan áfengisullarteppi sem
hafði legið yfir mér. Ég hefði
ekki trúað því hvað ein til tvær
kippur af bjór yfir helgar getur
haft mikil, ósýnileg áhrif.“
MARKAÐS-
DAGAR
Mikið úrval af vörum frá 50 kr. Fjöldi annarra tilboða
á Markaðsdögum. Við bætum við nýjum vörum daglega.
Gerðu
frábær
kaup!
Komdu og gramsaðu!
50kr 100kr 200kr
300kr 400kr 500kr
600kr 800kr 1000kr
Nýtt blað
Skoðaðu á byko.is
JKE Design
er danskt
vörumerki
sem
býður upp
á einstakle
ga breiða l
ínu í
innréttingu
m í hæsta g
æðaflokki.
Innréttinga
rnar frá JK
E hafa veri
ð mjög
vinsælar a
llt frá því þ
ær komu fy
rst á
markaðinn
árið 1970.
JKE er með
dreifingar
aðila í Danm
örku,
Noregi, Sví
þjóð og nú
á Íslandi.
JKE Rimini
Hvít filma á
framhliðum
, 19mm
þykkt MDF
með innfræ
stum gripu
m.
Nanótækni
í borðplötu
nni -
Kámfrí og
þú straujar
út
allar rispur
.
„Við völd
um
JKE eldh
ús“
-Lilja og A
tli
Fannar
Sjá meira á
www.byko
.is
TILBOÐ RENNA ÚT EFTIR HELGI
Nágrannaerjur á Fáskrúðsfirði vegna fimm sentimetra
H
eimir Hjálmarsson á Fá-
skrúðsfirði þarf að fjarlægja
grindverk vegna þess að
það nær 5 sentimetra inn
á lóð nágranna hans. Heimir og
eiginkona hans hafa búið á Skóla-
vegi á Fáskrúðsfirði í rúm 30 ár og
ákváðu að smíða viðarsólpall og
við heimili sitt. „Já, þetta eru heil-
ir fimm sentimetrar sem ná inn á
bílastæði og kartöflugarð hjá ná-
grannanum,“ segir Heimir í sam-
tali við DV. Heimir segir að ná-
granni sinn hafi ekki gert neinar
athugasemdir þegar Heimir og eig-
inkona hans voru að smíða pallinn
í fyrravor. „Við sátum með honum
úti á pallinum að spjalla á laugar-
degi þegar hann spurði okkur hvort
við hefðum sótt um leyfi, við töld-
um okkur ekki þurfa leyfi til að setja
pall í garðinn okkar. Á sunnudags-
morgninum hringir hann svo í
byggingarfulltrúa og kærir okkur.“
Þá hafi niðurstaðan verið að
setja pallinn í grenndarkynningu
sem tók allt sumarið. Pallurinn var
að lokum samþykktur og þau klár-
uðu pallinn ásamt 40 sentimetra
háu grindverki við lóðarmörkin.
Við lóðarmörkin voru tveir gaml-
ir símastaurar sem voru notaðir
sem stoðveggur til að leysa hæðar-
mismuninn á lóðunum. Heimir
ákvað að klæða staurana á meðan
nágranninn var að heiman. „Mér
fannst ég þurfa að klæða staurana
til að klára framkvæmdina. Hann er
nú vanur að hafa húsbílinn þarna
við hliðina en hann var ekki heima
þegar við klæddum þennan staur.
Strax og hann kemur heim þá er
þetta kært.“
Málið endaði svo fyrir úr-
skurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála sem komst að þeirri
niðurstöðu í desember að Heim-
ir þyrfti að fjarlægja grindverkið.
„Hæðin á þessu er 40 sentimetr-
ar og nær 5 sentimetra inn á lóð-
ina hans, þetta truflar engan nema
hann. Ég held að flestum hér finn-
ist þetta fáránlegt því þetta kemur
mjög vel út en verður mikið lýti ef
við tökum þetta. Við rífum þetta
þegar vorar, hann fær þá bara
moldina af lóðinni minni inn á
bílastæðið sitt.“
Hafa orðið vinslit ykkar á milli
ykkar vegna málsins?
„Við erum búnir að búa hérna í
30 ár og það hefur aldrei verið neinn
ágreiningur. Ég er bara fyrir að
halda friðinn. Daginn eftir að hann
kærði okkur þá bauð hann mér góð-
an daginn, ég hundsaði hann þá og
hef ekki yrt á hann síðan. Ég hef ekk-
ert við hann að tala.“ n
Grindverkið Grindverk Heimis er 40
sentimetra hátt og nær 5 sentimetra inn
á lóð nágrannans. Grindverkið verður
fjarlægt þegar vorar. Mynd SkjáSkot af ja.iS
Hefði orðið
18 ára
Dagbjartur Heiðar Arnarsson
hefði orðið 18 ára í gær. Þann
23. september 2011 svipti hann
sig lífi, 11 ára gamall. Hann
var fórnarlamb eineltis alla
sína skólagöngu og hafði gert
nokkrar tilraunir til sjálfsvígs
fyrir 11 ára aldur. Foreldrar
hans hafa alla tíð verið opin-
ská um sjálfsvíg hans, í þeim
tilgangi að opna augu almenn-
ings fyrir þeim skelfilegu af-
leiðingum sem einelti getur
haft í för með sér.
Við verðum öll að hjálpast
að og stöðva einelti. Staldraðu
við - hugsaðu málið!