Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 42
Anna Birgis
hefur verið í
kvenfélögum
í þremur
heimsálfum og
bakar sænska
prinsessuköku
fyrir kökubasar-
inn á morgun.
MYND/STEFÁN
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Það er dýrmætt að vera í kvenfélagi. Félagsskapurinn er frábær og það er gefandi að
geta látið gott af sér leiða,“ segir
Anna Birgis Hannesson, formaður
Kvenfélags Langholtssóknar.
Anna er nýbúin að setja súkku
laðikrem, rjóma og ávexti á dýr
indis Pavlovu fyrir kökubasarinn og
í ofninum er sænsk prinsessukaka.
„Prinsessukökuna lærði ég að
baka í Svíþjóð og hún er mikil
spariterta innan fjölskyldunnar. Ég
hef bakað hana fyrir skírnarveislur
barnabarnanna og mér þykir
gaman að koma með aðeins öðru
vísi bakkelsi á basarinn. Prinsessu
kakan er úr svampbotni sem er
skorinn í þrennt, sett er sulta á milli
tveggja laga og svo frómas yfir allt
saman og marsipan yfir.“
Kökubasarinn er upphitun fyrir
Listahátíð Langholtskirkju, Sungið
fyrir sætum, sem er átak til að safna
fé svo mögulegt sé að klæða að nýju
sæti kirkjunnar, og eru tvennir stór
tónleikar fyrirhugaðir sunnudaginn
18. mars.
„Sætin hafa sannarlega skilað
sínu enda hafa hátt í milljón manns
tyllt sér og notið fagurra tóna þá
áratugi sem liðnir eru,“ segir Anna.
Hlýlegar móttökur kvenna
Anna tók að sér formennsku í kven
félaginu árið 2016 eftir að hafa búið
um veröld víða sem sendiráðsfrú
í nær fjóra áratugi. Eiginmaður
hennar er Hjálmar Waag Hannes
son, fyrrverandi sendiherra.
„Við störfuðum fyrst fyrir utan
ríkisþjónustuna í Brussel og Svíþjóð
en svo varð Hjálmar sendiherra í
Þýskalandi þar sem við bjuggum í
sex ár. Við opnuðum svo sendiráð
Íslands í Kína og líka í Ottawa í
Kanada, unnum hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York og enduðum
í Winnipeg, samfélagi Vestur
Íslendinga. Nú erum við komin á
eftirlaun og þá þarf maður að hafa
eitthvað að gera, eins og kvenfélag
ið,“ segir Anna kát.
Í þeim þremur heimsálfum þar
sem Anna hefur búið hafa kven
félög boðið hana velkomna á öllum
stöðum.
„Þegar maður kemur á nýjan stað
og þekkir engan tekur kvenfélagið
á móti manni, hjálpar manni að
kynnast öðrum konum og sýnir
manni áhugaverða staði. Það hef ég
upplifað alls staðar og er mjög nota
legt og mikilvægt. Ég hef því alltaf
verið þátttakandi í kvenfélögum
þar sem áherslan er alls staðar sú
sama; að bindast vinaböndum,
hjálpast að og láta gott af sér leiða.“
Hjá Sameinuðu þjóðunum voru
kvenfélagsfundir einu sinni í mán
uði, einn fyrir sendiherrafrúrnar og
annar fyrir allar konur innan SÞ.
„Oftast hittumst við yfir morgun
kaffi og konurnar kynntu land sitt,
þjóð og menningu. Margar höfðu
verið útivinnandi áður en þær
komu í sendiráðin og við tók tóma
rúm yfir daginn sem þurfti að fylla.
Í New York er mjög auðvelt að vera
einn þótt þar sé mikið af fólki, og til
þess voru kvenfélögin hugsuð; að
kynnast hver annarri, ólíkri menn
ingu og þjóðum,“ útskýrir Anna
sem á margar kærar vinkonur frá
áratugunum ytra.
„Mínar kærustu vinkonur í
gegnum kvenfélagsstarfið eignaðist
ég í Þýskalandi og Svíþjóð, en eigin
lega á ég alls staðar vinkonur sem
voru mínar bestu í hverju landi
fyrir sig. Það er sannarlega fallegt og
mikilvægt veganesti. Margar hafa
komið og heimsótt okkur til Íslands
og þótt það séu ekki nema jóla
kortasamskipti í dag er enn munað
eftir manni og maður fær fréttir af
þessum góðu konum og því sem
þær aðhafast í dag.“
Konur sjálfstæðari nú
Anna segir öll löndin sem þau
Hjálmar settust að í hafa
verið áhugaverð og góð til
búsetu.
„Það var mjög gott að vera í
Belgíu og Svíþjóð með unga krakka,
og svo allt öðruvísi og áhugavert
að vera í Kína. Þar var margt að
læra í fyrstu og stundum erfitt, en
þegar kallið kom vildum við helst
ekki fara þaðan. Okkur finnst New
York líka vera mjög skemmtilegur
staður, áhugaverður og líflegur, og
við kunnum mjög vel við okkur í
Winnipeg, sem var svolítið eins og
að vera innan um fjölskylduna þar
sem VesturÍslendingar droppuðu
inn í kaffi, sem var yfirleitt ekki gert
í sendiráðunum nema að melda
sig fyrst. En satt að segja hefðum
við helst vilja vera lengur á öllum
stöðum.“
Heimþráin gerði stundum vart
við sig hjá Önnu en þó ekki svo að
það plagaði hana.
„Við komum til Íslands einu
sinni til tvisvar á ári og vorum alltaf
heima tvo mánuði á sumrin þegar
börnin voru í sumarfríi í skólunum,
segir Anna en þau Hjálmar eiga
þrjú uppkomin börn sem öll upp
skáru mikla tungumálakunnáttu á
búferlaflutningum fjölskyldunnar.
Anna segir mun á konum í dag og
þegar hún flutti fyrst utan til sendi
ráðsstarfa árið 1977.
„Aðalmunurinn er sá að konur
voru ekki eins sjálfstæðar og þær
eru í dag. Það fer þó eftir því hvar
maður er staddur í heiminum og
menningu staðarins. Í Arabalönd
Sautján sortir af hnallþórum
Kökusala í anda fröken Hnallþóru, ráðskonu Jóns Prímuss í Kristnihaldi undir Jökli, verður í Lang-
holtskirkju á morgun til að vekja athygli á tónleikum og átaki til að klæða að nýju sæti kirkjunnar.
unum eru konur yfirhöfuð ekki
mjög sjálfstæðar en þegar þær
hittust með konum annarra
sendiráða, einar og sér, tóku þær
niður slæðurnar og dönsuðu eins
og við hinar í leikfimi og dansi. Það
þótti mér sérstakt að upplifa.“
Í Kína var einnig kvenfélag á
meðal sendiráðsfólksins.
„Við ferðuðumst saman og
auðvitað var meira gaman að fara
saman í hóp að skoða Forboðnu
borgina heldur en ein. Svo var
alltaf farið í kaffi og spjall yfir kín
verskum mat á eftir og virkilega
gaman og gefandi stundir. Ég naut
þess í botn að vera í Kína því þar
var svo margt að sjá og kínverskar
konur eru mjög sjálfstæðar. Þar
ræður amman öllu á heimilinu og
þar er borin virðing fyrir fullorðnu
fólki,“ segir Anna.
Þess má geta að Anna er stofn
andi og fyrsti formaður UN Women
for Peace, sem hafði að markmiði
að hjálpa konum að komast í meist
arapróf í Friðarháskólanum í Kosta
ríku. Á fimmtudaginn, 8. mars, voru
tíu ár síðan hreyfingin var stofnuð
en hún hefur margfaldast í starfi
sínu síðan.
Byrjaði í Breiðholtinu
Fyrstu kynni Önnu af kvenfélags
störfum var á áttunda áratugnum í
EfraBreiðholtinu.
„Þar áttum við hjónin okkar
s
fyrstu íbúð en hverfið var nýtt
og því var stofnað framfarafélag,
fótboltafélag, sóknarnefnd og
kvenfélagið Fjallkonurnar sem er
enn mjög öflugt í Breiðholtinu. Ég
gekk auðvitað í það og var komin í
sóknarnefndina rétt 25 ára,“ segir
Anna sem vill einkum starfa í kven
félögum vegna þess að henni þykir
gaman að vasast í félagsstörfum og
láta gott af sér leiða.
„Konurnar eru góðar og hressar
og félagsskapurinn frábær. Alls
eru um 75 konur í Kvenfélagi
Langholtssóknar og við erum sjö
í stjórninni. Margar konurnar eru
orðnar fullorðnar en undanfarin ár
hafa bæst við yngri konur sem eru
virkar í starfinu.“
Kvenfélagið er með margt
á prjónunum yfir árið. Jóla
og vorbasar eru haldnir til
stuðnings góðgerðarmálum
og starfandi eru gönguhópar,
listhópur og hópur matgæðinga.
Þá er prjónakaffi mjög vel sótt af
yngri konum og á vorin er vinsæll
vormarkaður sem er stór viðburður
í hverfinu.
„Við styrkjum enga með millj
ónum en látum fé af hendi rakna til
félaga sem munar um hverja krónu.
Samveran er dýrmæt og við fáum
til okkar góða gesti með áhugaverð
erindi sem höfða til allra aldurs
hópa. Þannig fengum við Guðrúnu
Ágústsdóttur formann öldrunar
ráðs Reykjavíkur, Önnu Steinsson
þjálfara hjá Kvam, og Önnu Þóru
Baldursdóttur, sem rekur mæðra
heimili í Kenýa, á afmælisfundinn
okkar á dögunum,“ segir Anna en
kvenfélagið er 65 ára í ár.
„Nokkrar af stofnfélögunum
eru enn í félaginu og sú elsta er
Aðalbjörg Jónsdóttir, fædd 1916
og orðin 102 ára. Hún er mörgum
kunn fyrir prjónaða kjóla úr ein
girni og var með sýningu á Akureyri
í fyrra,“ útskýrir Anna.
Hún segir samstöðu og sam
kennd einkenna kvenfélagsstarfið.
„Velflestar standa nú í bakstri
fyrir kökubasarinn á morgun og við
fáum konur til að lesa valda kafla
úr Kristnihaldi undir Jökli og Kór
Langholtskirkju kemur og syngur.
Þetta snýst því ekki bara um að
koma inn og kaupa köku heldur
getur fólk tyllt sér niður með kaffi
og kökusneið og upplifað skemmti
legan viðburð í ró og næði.“
Kökubasarinn stendur yfir frá
klukkan 12 til 15.30 á morgun,
sunnudag. Allir velkomnir.
Menntaskólinn í Kópavogi
Hótel– og matvælaskólinn
Ferðamálaskólinn og Leiðsöguskólinn
Digranesvegi 51
Sími 594 4000
www.mk.is
Þekking - þroski - þróun - þátttaka
Menntaskólinn í Kópavogi
OPIÐ HÚS Í MK
Fimmtudag, 15. mars
Kl.16.30-18.30
Alþjóðabraut
Félagsgreinabraut
Opin braut
Raungreinabraut
Viðskiptabraut
Framhaldsskólabraut
Starfsbraut fyrir einhverfa
Bakstur - bakari
Framreiðsla -þjónn
Kjötiðn - kjötiðnaðarmaður
Matreiðsla - kokkur
Grunndeild matvæla– og ferðagreina
Ferðamála– og leiðsögunám
Matsveina– og matartæknanám
Meistaranám í matvælagreinum
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
A
-0
B
9
8
1
F
2
A
-0
A
5
C
1
F
2
A
-0
9
2
0
1
F
2
A
-0
7
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K