Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 88
Í síðasta pistli var sagt frá svall-aranum Carol krónprinsi í Rúmeníu, sem glutraði niður ríkiserfðum með gjálífi fyrir opnum tjöldum. Svo virðist sem konungssonurinn hafi
látið sér standa á sama um krúnuna
á meðan hann lifði ljúfa lífinu í fangi
ástkvenna sinna. En enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Það var fyrst eftir að prinsinn hafði
afsalað sér réttinum til konungs-
titils og búið í Parísarborg í nokkur
misseri sem áhugi hans á embætt-
inu kviknaði fyrir alvöru.
Það voru pólitískar sviptingar í
Rúmeníu sem gerðu endurkomu
Carols mögulega. Áralangri, sleitu-
lausri valdatíð flokks borgarastétt-
arinnar lauk í landinu, að hluta til
vegna innra ósættis en ekki síður
vegna versnandi árferðis í efna-
hagsmálum. Valdaöflin í landinu
höfðu lengi horft til ríkja Vestur-
Evrópu og leitast við að taka upp
tækni og siði þeirra landa. Engar
úrbætur voru hins vegar gerðar á
kjörum almennings sem upplifði
aðeins vaxandi misrétti og yfirstétt
sem virtist framandi í bæði hugsun
og háttum.
Líkt og víðar í Evrópu tók þjóð-
ernisöflum að vaxa fiskur um hrygg
í Rúmeníu. Fasistahreyfingin í
landinu nefndist Járnvörðurinn og
beindi spjótum sínum að öllum
þeim sem hún taldi andsnúna
„rúmenskum gildum“. Voru þar allir
lagðir að jöfnu: sósíalistar, þjóð-
ernisminnihlutahópar, gyðingar og
fleiri. Járnvörðurinn var þó óvenju
trúrækinn miðað við fasistahreyf-
ingar millistríðsáranna og leit fyrst
og fremst á sig sem verjanda krist-
innar kirkju. Fasistunum í Járnverð-
inum var einnig, líkt og hófsamari
rúm enskum þjóðernissinnum, sér-
staklega í nöp við valdaelítuna í
Búkarest, sem vildi helst hegða sér
eins og franskir broddborgarar.
Hinn þjóðernissinnaði Bænda-
flokkur komst til valda árið 1928 og
tveimur árum síðar studdu leiðtogar
hans endurkomu Carols til Rúmeníu
þar sem hann tók sér konungstign-
ina sem hann var borinn til. Stuðn-
ingsmenn Carols annars hömpuðu
honum sem málsvara þjóðlegra
gilda og sjálfur talaði hann á svip-
uðum nótum og hver annar þjóð-
ernissinnaður stjórnmálaleiðtogi
þessara ára, með áherslu á andlega
yfirburði rúmensku þjóðarinnar,
kryddaða með vænum skammti af
persónudýrkun á konunginum.
Maður með áætlun
Í fyrstu þóttist Carol annar vilja
halda í heiðri stjórnarskrá lands-
ins sem gerði ráð fyrir þingræðis-
stjórn. Til lengri tíma litið hafði
hann þó annað í hyggju. Næstu
árin reyndi hann eftir bestu getu að
tefla stóru stjórnmálaflokkunum
tveimur hvorum gegn öðrum, auk
þess að gefa fasistunum í Járnverð-
inum undir fótinn þegar hann taldi
sér henta. Þannig studdi hann til
valda yfirlýsta gyðingahatara og lét
alls konar ofsóknir í garð gyðinga
óáreittar, sem var kaldhæðnislegt
í ljósi þess að ástarsamband hans
við hina gyðingaættuðu Mögdu
Lupescu hafði á sínum tíma orðið
honum að falli.
Sambandið við Mögdu var raunar
það sem helst fór í taugarnar á
stuðningsmönnum konungsins, en
samband þeirra var á allra vitorði
þótt konungur gætti þess að halda
henni til hlés við opinberar athafnir.
Þess á milli hlóð hann á hana dýrum
gjöfum og hvers kyns glingri, sem
var síst til vinsælda fallið eftir því
sem áhrifa heimskreppunnar tók
að gæta í Rúmeníu með versnandi
lífskjörum.
Sú aðferðafræði Carols annars
að ala á sundrungu í stjórnmálum
landsins gekk vonum framar. Ríkis-
stjórnir urðu skammlífar og áhrifa-
máttur konungsins jókst jafnt og
þétt. Árið 1938 setti hann herlög og
bannaði í kjölfarið alla stjórnmála-
flokka nema nýstofnaðan flokk
stuðningsmanna sinna. Hugðist
hann í kjölfarið ríkja sem einvaldur.
Þróun
alþjóða-
m á l a
varð þó
að lokum
konungi að
falli. Hann
reyndi að
halda Rúm-
enum fyrir
utan átök
heimsstyrj-
aldarinnar,
en var árið
1940 neyddur
a f þýs ku m
nasistum til að
láta mikið land
af hendi til
Ungverja, sem
voru banda-
m e n n Þ j ó ð -
verja í stríðinu.
Uppgjöf þessi
mæltist skiljan-
lega afar illa fyrir
í Rúmeníu og
hrökklaðist kon-
ungur í kjölfarið
frá völdum. Mátti
hann verja stríðs-
árunum í útlegð í
Mexíkó, þar sem
hann reyndi árang-
urslaust að stofn-
setja útlagastjórn.
Að stríðinu loknu,
þegar kommúnistar
höfðu tekið völdin
í Rúmeníu, freistaði
Carol annar þess að
fá viðurkenningu
rúmenskra útlaga
á lögmæti konung-
dóms síns, en varð lítið
ágengt. Þeir fáu sem
létu sig dreyma um að
endurvekja konung-
dæmi í Rúmeníu horfðu
frekar til sonarins Mikaels, sem var
mun vinsælli.
Carol lést í Portúgal árið 1953 og
hafði þá ekki hitt son sinn frá árinu
1940. Mikael vildi sem minnst af
föður sínum vita, enda aldrei fyrir-
gefið slæma framkomu hans í garð
Helenar drottningar og valdaránið
árið 1930. Orðspor Carols annars
var heldur ekki glæsilegt. Raunar
má segja að ferill hans hafi verið
algjört flopp: en honum tókst þó
að bjarga heimsmeistarakeppninni
í fótbolta!
HM kemur til sögunnar
Eins og fram kom í fyrri pistli,
snerist fyrsta verkefni Carols
annars á konungsstóli ekki um
daglegan rekstur ríkisins, heldur
knattspyrnulandsliðið. Hann hafði
ungur fengið brennandi áhuga á
fótbolta, sem mátti teljast nokkuð
óvenjulegt á þessum tíma, þar sem
íþróttin var almennt ekki talin
nægilega virðuleg fyrir kóngafólk.
Valdatakan var þann áttunda júní
árið 1930, en þann þrettánda júlí
átti fyrsta heimsmeistarakeppnin
í knattspyrnu að hefjast í Suður-
Ameríkulandinu Úrúgvæ. Mótið var
skipulagt af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu, FIFA.
Úrúgvæ varð fyrir valinu sem
fyrsti mótsstaður, að hluta til vegna
þess að Úrúgvæmenn höfðu orðið
Ólympíumeistarar árin 1924 og
1928 en ekki síður af þeirri einföldu
ástæðu að stjórnvöld í Úrúgvæ voru
til í að borga brúsann.
Valið á Úrúgvæ sem gestgjöfum á
HM fór fram á þingi FIFA árið 1928.
Fljótlega varð þó ljóst að lítil ánægja
ríkti meðal Evrópubúa með staðar-
valið. Íbúar Evrópu litu á álfuna sem
nafla alheims og ferðalagið til Suð-
ur-Ameríku fáránlega tímafrekt og
kostnaðarsamt. Knattspyrnusam-
böndin, sem flest höfðu tekið vel í
þátttöku á hinu nýja móti, fóru eitt
af öðru að draga í land. Þegar upp-
haflegur skráningarfrestur rann út
stefndi í að ekkert evrópskt lið léti
sjá sig í Úrúgvæ.
Frakkinn Jules Rimet, forseti
FIFA, gat snúið upp höndina á
löndum sínum og það sama gerði
belgíski varaformaðurinn. En helstu
knattspyrnuþjóðir meginlandsins
gáfu ferðalagið upp á bátinn, hver
af annarri: Ítalir, Þjóðverjar, Austur-
ríkismenn, Tékkar, Svíar og svo
framvegis.
Til stóð að keppnisliðin í Úrúgvæ
yrðu ekki færri en sextán. Banda-
ríkin og Mexíkó mættu til leiks
og Suður-Ameríkuliðin urðu sjö
talsins. Fráleitt hefði verið að kalla
fótboltamót níu Ameríkulanda
auk Frakklands og Belgíu „heims-
meistarakeppni“ og hætt er við að
slíkt hópskróp Evrópubúa hefði
riðið þessari tilraun til að stofnsetja
heimsmeistaramót að fullu.
Hér reyndist Carol annar hinn
óvænti bjargvættur. Líklegt má telja
að hann hafi fregnað af áformunum
um að halda HM árið 1930 meðan
á útlegðinni í París stóð. Hann var
ekki fyrr kominn heim til Búkarest
en hann fól knattspyrnusamband-
inu að smala saman landsliði og
skrá til keppni. Kostnaðurinn við
ferðalagið var meiri en knatt-
spyrnusambandið gat ráðið við,
en konungur ákvað þá að greiða úr
eigin vasa. Þegar í ljós kom að lykil-
leikmenn landsliðsins áttu erfitt
með að fá launalaust frí frá vinnu-
veitendum sínum, breskum olíu-
félögum sem störfuðu í Rúmeníu,
sendi hinn nýi konungur fyrirtækj-
unum skilaboð um að leikmennirn-
ir skyldu fá launað tveggja mánaða
leyfi ella yrðu olíuréttindi Breta í
landinu endurskoðuð. Eins og hér
væri ekki nóg að gert, hafði Carol
annar samband við starfsbróður
sinn í Júgóslavíu og taldi hann á að
gera slíkt hið sama. Niðurstaðan
varð sú að tvö Austur-Evrópuríki,
Rúmenía og Júgóslavía, mættu til
leiks á síðustu stundu.
Með fjórum Evrópulöndum í
stað tveggja var með herkjum hægt
að kalla keppnina í Úrúgvæ 1930
heimsmeistaramót, þótt gestgjaf-
arnir yrðu svo móðgaðir yfir þátt-
tökuleysinu að þeir sniðgengu tvær
næstu keppnir. Og þótt Rúmenar
gerðu engar rósir á mótinu: unnu
Perúbúa en steinlágu fyrir heims-
meisturum Úrúgvæ, má segja að
Carol öðrum hafi tekist að bjarga
heimsmeistarakeppninni í fótbolta
í fæðingu. Honum var þá ekki alveg
alls varnað.
Kóngurinn
sem bjargaði HM
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar enn um
Carol annan.
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
1 0 . M A R S 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
9
-D
0
5
8
1
F
2
9
-C
F
1
C
1
F
2
9
-C
D
E
0
1
F
2
9
-C
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K