Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 88

Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 88
Í síðasta pistli var sagt frá svall-aranum Carol krónprinsi í Rúmeníu, sem glutraði niður ríkiserfðum með gjálífi fyrir opnum tjöldum. Svo virðist sem konungssonurinn hafi látið sér standa á sama um krúnuna á meðan hann lifði ljúfa lífinu í fangi ástkvenna sinna. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það var fyrst eftir að prinsinn hafði afsalað sér réttinum til konungs- titils og búið í Parísarborg í nokkur misseri sem áhugi hans á embætt- inu kviknaði fyrir alvöru. Það voru pólitískar sviptingar í Rúmeníu sem gerðu endurkomu Carols mögulega. Áralangri, sleitu- lausri valdatíð flokks borgarastétt- arinnar lauk í landinu, að hluta til vegna innra ósættis en ekki síður vegna versnandi árferðis í efna- hagsmálum. Valdaöflin í landinu höfðu lengi horft til ríkja Vestur- Evrópu og leitast við að taka upp tækni og siði þeirra landa. Engar úrbætur voru hins vegar gerðar á kjörum almennings sem upplifði aðeins vaxandi misrétti og yfirstétt sem virtist framandi í bæði hugsun og háttum. Líkt og víðar í Evrópu tók þjóð- ernisöflum að vaxa fiskur um hrygg í Rúmeníu. Fasistahreyfingin í landinu nefndist Járnvörðurinn og beindi spjótum sínum að öllum þeim sem hún taldi andsnúna „rúmenskum gildum“. Voru þar allir lagðir að jöfnu: sósíalistar, þjóð- ernisminnihlutahópar, gyðingar og fleiri. Járnvörðurinn var þó óvenju trúrækinn miðað við fasistahreyf- ingar millistríðsáranna og leit fyrst og fremst á sig sem verjanda krist- innar kirkju. Fasistunum í Járnverð- inum var einnig, líkt og hófsamari rúm enskum þjóðernissinnum, sér- staklega í nöp við valdaelítuna í Búkarest, sem vildi helst hegða sér eins og franskir broddborgarar. Hinn þjóðernissinnaði Bænda- flokkur komst til valda árið 1928 og tveimur árum síðar studdu leiðtogar hans endurkomu Carols til Rúmeníu þar sem hann tók sér konungstign- ina sem hann var borinn til. Stuðn- ingsmenn Carols annars hömpuðu honum sem málsvara þjóðlegra gilda og sjálfur talaði hann á svip- uðum nótum og hver annar þjóð- ernissinnaður stjórnmálaleiðtogi þessara ára, með áherslu á andlega yfirburði rúmensku þjóðarinnar, kryddaða með vænum skammti af persónudýrkun á konunginum. Maður með áætlun Í fyrstu þóttist Carol annar vilja halda í heiðri stjórnarskrá lands- ins sem gerði ráð fyrir þingræðis- stjórn. Til lengri tíma litið hafði hann þó annað í hyggju. Næstu árin reyndi hann eftir bestu getu að tefla stóru stjórnmálaflokkunum tveimur hvorum gegn öðrum, auk þess að gefa fasistunum í Járnverð- inum undir fótinn þegar hann taldi sér henta. Þannig studdi hann til valda yfirlýsta gyðingahatara og lét alls konar ofsóknir í garð gyðinga óáreittar, sem var kaldhæðnislegt í ljósi þess að ástarsamband hans við hina gyðingaættuðu Mögdu Lupescu hafði á sínum tíma orðið honum að falli. Sambandið við Mögdu var raunar það sem helst fór í taugarnar á stuðningsmönnum konungsins, en samband þeirra var á allra vitorði þótt konungur gætti þess að halda henni til hlés við opinberar athafnir. Þess á milli hlóð hann á hana dýrum gjöfum og hvers kyns glingri, sem var síst til vinsælda fallið eftir því sem áhrifa heimskreppunnar tók að gæta í Rúmeníu með versnandi lífskjörum. Sú aðferðafræði Carols annars að ala á sundrungu í stjórnmálum landsins gekk vonum framar. Ríkis- stjórnir urðu skammlífar og áhrifa- máttur konungsins jókst jafnt og þétt. Árið 1938 setti hann herlög og bannaði í kjölfarið alla stjórnmála- flokka nema nýstofnaðan flokk stuðningsmanna sinna. Hugðist hann í kjölfarið ríkja sem einvaldur. Þróun alþjóða- m á l a varð þó að lokum konungi að falli. Hann reyndi að halda Rúm- enum fyrir utan átök heimsstyrj- aldarinnar, en var árið 1940 neyddur a f þýs ku m nasistum til að láta mikið land af hendi til Ungverja, sem voru banda- m e n n Þ j ó ð - verja í stríðinu. Uppgjöf þessi mæltist skiljan- lega afar illa fyrir í Rúmeníu og hrökklaðist kon- ungur í kjölfarið frá völdum. Mátti hann verja stríðs- árunum í útlegð í Mexíkó, þar sem hann reyndi árang- urslaust að stofn- setja útlagastjórn. Að stríðinu loknu, þegar kommúnistar höfðu tekið völdin í Rúmeníu, freistaði Carol annar þess að fá viðurkenningu rúmenskra útlaga á lögmæti konung- dóms síns, en varð lítið ágengt. Þeir fáu sem létu sig dreyma um að endurvekja konung- dæmi í Rúmeníu horfðu frekar til sonarins Mikaels, sem var mun vinsælli. Carol lést í Portúgal árið 1953 og hafði þá ekki hitt son sinn frá árinu 1940. Mikael vildi sem minnst af föður sínum vita, enda aldrei fyrir- gefið slæma framkomu hans í garð Helenar drottningar og valdaránið árið 1930. Orðspor Carols annars var heldur ekki glæsilegt. Raunar má segja að ferill hans hafi verið algjört flopp: en honum tókst þó að bjarga heimsmeistarakeppninni í fótbolta! HM kemur til sögunnar Eins og fram kom í fyrri pistli, snerist fyrsta verkefni Carols annars á konungsstóli ekki um daglegan rekstur ríkisins, heldur knattspyrnulandsliðið. Hann hafði ungur fengið brennandi áhuga á fótbolta, sem mátti teljast nokkuð óvenjulegt á þessum tíma, þar sem íþróttin var almennt ekki talin nægilega virðuleg fyrir kóngafólk. Valdatakan var þann áttunda júní árið 1930, en þann þrettánda júlí átti fyrsta heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu að hefjast í Suður- Ameríkulandinu Úrúgvæ. Mótið var skipulagt af Alþjóðaknattspyrnu- sambandinu, FIFA. Úrúgvæ varð fyrir valinu sem fyrsti mótsstaður, að hluta til vegna þess að Úrúgvæmenn höfðu orðið Ólympíumeistarar árin 1924 og 1928 en ekki síður af þeirri einföldu ástæðu að stjórnvöld í Úrúgvæ voru til í að borga brúsann. Valið á Úrúgvæ sem gestgjöfum á HM fór fram á þingi FIFA árið 1928. Fljótlega varð þó ljóst að lítil ánægja ríkti meðal Evrópubúa með staðar- valið. Íbúar Evrópu litu á álfuna sem nafla alheims og ferðalagið til Suð- ur-Ameríku fáránlega tímafrekt og kostnaðarsamt. Knattspyrnusam- böndin, sem flest höfðu tekið vel í þátttöku á hinu nýja móti, fóru eitt af öðru að draga í land. Þegar upp- haflegur skráningarfrestur rann út stefndi í að ekkert evrópskt lið léti sjá sig í Úrúgvæ. Frakkinn Jules Rimet, forseti FIFA, gat snúið upp höndina á löndum sínum og það sama gerði belgíski varaformaðurinn. En helstu knattspyrnuþjóðir meginlandsins gáfu ferðalagið upp á bátinn, hver af annarri: Ítalir, Þjóðverjar, Austur- ríkismenn, Tékkar, Svíar og svo framvegis. Til stóð að keppnisliðin í Úrúgvæ yrðu ekki færri en sextán. Banda- ríkin og Mexíkó mættu til leiks og Suður-Ameríkuliðin urðu sjö talsins. Fráleitt hefði verið að kalla fótboltamót níu Ameríkulanda auk Frakklands og Belgíu „heims- meistarakeppni“ og hætt er við að slíkt hópskróp Evrópubúa hefði riðið þessari tilraun til að stofnsetja heimsmeistaramót að fullu. Hér reyndist Carol annar hinn óvænti bjargvættur. Líklegt má telja að hann hafi fregnað af áformunum um að halda HM árið 1930 meðan á útlegðinni í París stóð. Hann var ekki fyrr kominn heim til Búkarest en hann fól knattspyrnusamband- inu að smala saman landsliði og skrá til keppni. Kostnaðurinn við ferðalagið var meiri en knatt- spyrnusambandið gat ráðið við, en konungur ákvað þá að greiða úr eigin vasa. Þegar í ljós kom að lykil- leikmenn landsliðsins áttu erfitt með að fá launalaust frí frá vinnu- veitendum sínum, breskum olíu- félögum sem störfuðu í Rúmeníu, sendi hinn nýi konungur fyrirtækj- unum skilaboð um að leikmennirn- ir skyldu fá launað tveggja mánaða leyfi ella yrðu olíuréttindi Breta í landinu endurskoðuð. Eins og hér væri ekki nóg að gert, hafði Carol annar samband við starfsbróður sinn í Júgóslavíu og taldi hann á að gera slíkt hið sama. Niðurstaðan varð sú að tvö Austur-Evrópuríki, Rúmenía og Júgóslavía, mættu til leiks á síðustu stundu. Með fjórum Evrópulöndum í stað tveggja var með herkjum hægt að kalla keppnina í Úrúgvæ 1930 heimsmeistaramót, þótt gestgjaf- arnir yrðu svo móðgaðir yfir þátt- tökuleysinu að þeir sniðgengu tvær næstu keppnir. Og þótt Rúmenar gerðu engar rósir á mótinu: unnu Perúbúa en steinlágu fyrir heims- meisturum Úrúgvæ, má segja að Carol öðrum hafi tekist að bjarga heimsmeistarakeppninni í fótbolta í fæðingu. Honum var þá ekki alveg alls varnað. Kóngurinn sem bjargaði HM Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar enn um Carol annan. KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 9 -D 0 5 8 1 F 2 9 -C F 1 C 1 F 2 9 -C D E 0 1 F 2 9 -C C A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.