Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 10

Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 10
Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD TRANSIT PALLBÍLAR 4.890.000 KR. MEÐ VSK. FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR OG FÁANLEGUR AWD 3.940.000 KR.ÁN VSK. FRÁ: Transit er ríkulega búinn m.a. með Bluetooth, upphitaðri framrúðu, olíumiðstöð með tímastillingu og fjarstýringu, spólvörn, brekkuaðstoð og aksturstölvu. ford.is Ford Transit Single Cab pallbílarnir eru með einföldu 3ja manna húsi (ökumaður + 2 farþegar).Ford Transit Double Cab pallbílarnir eru með tvöföldu 7 manna húsi (ökumaður + 6 farþegar).Myndin sýnir Double Cab. KOMDU OG TRY GGÐU ÞÉR FORD TRANSIT . EIGUM BÍLA TIL BÚNA TIL AFHENDINGAR STRAX. ORD TRANSIT PALLBÍLAR KOSTA FRÁ: Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is Hvernig hleður maður rafbíl? Kynning á hleðslu rafbíla á Orkustofnun, mánudaginn 19. mars kl. 12:00-13:00. Sigurður Ástgeirsson hjá Ísorku heldur fyrirlestur á vegum Orkustofnunar, í samstarfi við Grænu orkuna - samstarfsvettvang um orkuskipti. Salurinn opnar kl. 12:00 og verður boðið upp á léttar veitingar í upphafi fundar. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15 og verður góður tími til umræðna að honum loknum. Skráning á www.os.is NeyteNdur Eftir að Costco hóf að selja jarðarber á lægra kílóverði en áður hafði þekkst hér á landi í fyrra hafa innlendir samkeppnisaðilar og framleiðendur neyðst til að bregðast við. Jarðarberjaverðstríð ríkir nú þar sem matvöruverslanir keppast marg- ar við að bjóða sem hagstæðast verð á berjunum, sem Íslendingar virðast svo sólgnir í. Costco skók markaðinn í fyrra en kílóverð jarðarberja hefur hækkað þar um 21,8 prósent síðan í haust. Nú er svo komið að kílóverð jarðar- berja hjá Costco reyndist það næst- hæsta hjá þeim fimm verslunum sem Fréttablaðið gerði verðathugun hjá. Athugunin leiddi í ljós að 118 pró- senta verðmunur er á ódýrasta og dýrasta kílóinu af innfluttum jarð- arberjum. Aðeins ein verslun bauð upp á íslensk ber, sem skýrist af því að jarðarberjavertíðin er ekki hafin. Íslensku berin reyndust ríflega þre- falt dýrari en þau ódýrustu innfluttu. Fréttablaðið sagði frá því í febrúar að innflutningur á ferskum jarðarberjum frá Bandaríkjunum átjánfaldaðist í fyrra vegna opnunar Costco. Jarðarberin hafa verið ein söluhæsta vara Costco frá opnun en innflutningur fór úr 26 tonnum árið 2016 í 465 tonn í fyrra. Aðrar versl- anir og íslenskir framleiðendur tóku á sig högg vegna þessa. Nú virðast samkeppnisaðilar vera búnir að ná vopnum sínum og að því er virðist hagstæðari innkaupum erlendis. Jarðarberjastríð milli matvöruverslana Costco skók markaðinn í fyrra með lægra verði á jarðarberjum sem rokseldust en hefur dregist aftur úr. Fréttablaðið tók púlsinn á jarðarberjastríði verslana. 118 prósenta verðmunur milli verslana á innfluttum berjum. Íslenskir garðyrkjubændur neita að gefast upp. Íslendingar hafa tekið verðlækkunum á jarðarberjum opnum örmum. Fréttablaðið/SteFán Jarðarberjastríðin Krónan Ódýrasta kr/kg: 1.539 kr. Sölueining: 454 gr. Uppruni: USa Íslensk ber: ekki til Nettó Ódýrasta kr/kg: 1.443 kr. Sölueining: 900 gr. Uppruni: Spánn Íslensk ber: 3.445 kr/kg Bónus Ódýrasta kr/kg: 1.098 kr. Sölueining: 1 kg. Uppruni: Spánn Íslensk ber: ekki til Framtíðin er björt hjá íslenskum jarðarberjabænum. Það er enn mikil eftirspurn. Gunnlaugur Karlsson, framkvæmda- stjóri SFG Í verðathugun Fréttablaðsins í haust kostaði kílóið af jarðarberjum 1.266 kr. í Costco en stendur nú í 1.542 krónum. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu bjóða nú Bónus, Krónan og Nettó öll lægra kílóverð á sínum innfluttu jarðarberjum. Aðeins Hagkaup eru með hærra verð en Costco í könnuninni. Krónan selur sömu bandarísku Driscoll’s-jarðarber og Costco, í minni einingum þó, á 3 krónum lægra kílóverði en Costco. Bónus hefur undanfarið boðið kíló af spænskum jarðarberjum á 1.098 krónur.  Eftir leit í þremur verslunum á föstudag fengust þær upplýsingar hjá verslunarstjóra einnar þeirra að berin væru upp- seld í öllum verslunum. Blaðamaður hafði skráð hjá sér verðið á fimmtu- dag í Kauptúni, en ódýrustu berin virðast búin í bili.   Nettó átti næstlægsta kílóverðið, 1.442 krónur kílóið, og var eina verslunin sem bauð upp á íslensk jarðarber. Kílóverðið á íslensku berjunum er fjarri því að vera sam- keppnishæft, 3.445 krónur. Dýrustu innfluttu berin voru í Hagkaupum, á 2.396 krónur kílóið. Íslenskir jarðarberjabændur fóru ekki varhluta af komu Costco í fyrra eins og fjallað hefur verið um. Gunn- laugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir þó enn eftirspurn eftir framleiðslunni. Salan hafi vissulega dregist saman fyrst en því hafi verið mætt með verðlækkunum. Þegar upp var staðið hafi lítið farið til spillis. „Við seldum á afslætti svo auð- vitað urðu tekjur minni og þá var uppskeran í haust vonbrigði. En við seldum nær öll berin. Íslenska jarðar berjavertíðin fer af stað í næsta mánuði og lítur bara mjög vel út og framtíðin er björt hjá íslenskum jarðarberjabændum. Það er enn mikil eftirspurn hjá kaupmönnum og neytendum.“ Athugun Fréttablaðsins var gerð fimmtudaginn 15. mars í Bónus og Costco í Kauptúni og föstudaginn 16. mars í verslunum Nettó og Krónunnar á Granda og Hagkaupi í Kringlunni. Skráð var niður ódýrasta uppgefna kílóverð á jarðarberjum. mikael@frettabladid.is Hagkaup Ódýrasta kr/kg: 2.396 kr. Sölueining: 250 gr. Uppruni: Spánn Íslensk ber: ekki til Costco Ódýrasta kr/kg: 1.542 kr. Sölueining: 907 gr. Uppruni: USa Íslensk ber: ekki til 1 7 . m a r s 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 8 -B 2 D C 1 F 3 8 -B 1 A 0 1 F 3 8 -B 0 6 4 1 F 3 8 -A F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.