Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 18

Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 18
2006 en fékk hæli í Bretlandi 2010 við njósnaraskipti og hefur búið þar síðan. „Það er mikilvægt að Rússar skilji hverju þeir tapa á því að haga sér á þann hátt sem þeir hafa gert,“ sagði Stoltenberg enn fremur og bætti við að Rússar hefðu með þessu ekki verið að haga sér á óábyrgan hátt í fyrsta skipti enda hafi Banda­ ríkjamenn ítrekað sakað Rússa um tölvuárásir og ólögleg afskipti af forsetakosningum ársins 2016. Eins og Stoltenberg sagði þá standa Bretar vissulega ekki einir í málinu. Bandaríkjamenn, Frakkar, Þjóðverjar, Ástralar og yfirvöld í Eystrasaltsríkjunum hafa fylkt sér að baki Breta, þrátt fyrir að Rússar hafi ítrekað neitað sök í málinu. Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, endurtók ásakanirnar í gær. Sagði hann yfirgnæfandi líkur á því að Vladímír Pútín, for­ seti Rússlands, hefði fyrirskipað árásina. „Við höfum ekkert gegn Rússum. Þetta er engin Rússa­ fælni. Deilan er bara á milli okkar og stjórnar Pútíns. Hún snýst um ákvörðun hans um að beita tauga­ eitri á götum Bretlands, á götum evrópskrar borgar í fyrsta skipti frá seinna stríði.“ Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka­ mannaflokksins í Bretlandi og þar með stjórnarandstöðunnar, er hins vegar ekki jafnviss. Í grein sem hann skrifaði í Guardian í gær varaði hann við því að draga álykt­ anir of fljótt, áður en nægileg sönn­ unargögn hefðu fundist. Fordæmdi hann árásina sjálfa og sagðist ekki útiloka að rússneska mafían hefði staðið að henni í stað yfirvalda. Þingmenn Verkamannaflokksins eru þó ekki allir sammála formanni sínum. Þrjátíu þingmenn flokksins eru á meðal flutningsmanna þings­ ályktunartillögu um að breska þingið lýsi því yfir að Rússar hafi borið fulla ábyrgð á árásinni. Rússar héldu áfram að neita því í gær að hafa staðið að árásinni. Sögðu Sergei Lavrov utanríkis­ ráðherra og Dmítrí Peskov, tals­ maður ríkisstjórnarinnar, jafn­ framt að von væri á tilkynningu um brottvísun breskra erindreka hvað úr hverju. „Fyrr eða síðar munu Bretar þurfa að sýna svokölluðum bandamönnum sínum sönnunar­ gögnin í málinu. Fyrr eða síðar þurfa þeir að rökstyðja ásakanir sínar,“ sagði Peskov. Hann kvaðst ekki hafa áhyggjur af stuðningi við Breta og ítrekaði beiðni Rússa um sýni af eitrinu sem notað var í árásinni svo Rússar gætu rannsakað það sjálfir. Lögreglan í Wiltshire sagði í gær frá því að  þeir einstaklingar, 131 að tölu, sem talið var að gætu hafa komist í tæri við eitrið hafi ekki sýnt nein einkenni eitrunar. Þá sagði sjúkrahúsið í Salisbury að 46 hafi leitað til læknis vegna áhyggja af eitrun en að engan hafi þurft að leggja inn. Efast ekki um ásakanirnar í garð Rússa Atlantshafsbandalagið styður þétt við bakið á Bretum í Skrípal-deil- unni. Jeremy Corbyn efast enn og nýtur ekki stuðnings tuga þing- manna flokks síns. Rússar hafa ekki áhyggj- ur af alþjóðlegum stuðn- ingi við Breta og krefjast enn sýnis af eitrinu sem notað var í tilræðinu við Skrípal-feðgin. Sergei Skrípal í Moskvu árið 2006. Hann er enn á gjörgæslu, ásamt dóttur sinni Júlíu, eftir efnavopnaárás. Árásin er sú fyrsta sem gerð er með efnavopni á götum evrópskrar borgar frá því í seinni heimsstyrjöldinni. NordicpHotoS/AFp vopn Novichok­taugaeitrið hefur ekki verið á milli tannanna á fólki í áratugaraðir.  Eftir meinta árás Rússa á Skrípal­feðgin hefur A­234 afbrigði efnisins þó fengið meiri athygli en nokkurn tímann áður. Efnið er taugaeitur, margfalt hættu­ legra en svokölluð VX­taugaeitur og saríngas. Novichok, sem þýðir nýliði á rúss­ nesku, er sameiginlegt heiti á hópi háþróaðra og banvænna efnavopna sem Sovétríkin þróuðu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Verk­ efnið var háleynilegt, kallaðist Foli­ ant, en efnafræðingurinn Víl Mírzaj­ anov, sem kom að þróun novichok, greindi frá tilvist eitursins á tíunda áratugnum. Fyrir það var hann rekinn og fangelsaður, sakaður um föðurlandssvik. Mírzajanov flúði síðar til Banda­ ríkjanna þar sem hann birti form­ úluna fyrir efnavopnið í bók sinni, Ríkisleyndarmál. Í viðtali við Daily Mail í vikunni sagði Mírzajanov að eitrið væri lamandi. „Það veldur krampa víðs vegar um líkamann, svo slæmum að þú getur ekki andað. Ef skammturinn er nógu stór deyrðu af völdum novichok.“ „Þetta er í raun algjör pynting. Það er ómögulegt að ímynda sér sársaukann. Jafnvel þótt þér sé byrl­ að eitrið í litlu magni muntu þjást svo vikum skiptir. Þið getið ekki ímyndað ykkur hryllinginn. Þetta er svo slæmt,“ sagði efnafræðingurinn enn fremur. Og svo virðist sem þau Skrípal­ feðgin hafi þjáðst gríðarlega. Vitni sem sá til þeirra á veitingastaðn­ um Zizzi, þar sem Skrípal­feðgin snæddu áður en þau féllu í yfirlið og fundust á bekk fyrir utan, sagði við BBC að Sergei Skrípal hefði misst stjórn á skapi sínu, öskrað af öllum mætti og stormað út. Novichok margfalt eitraðra en saríngas Þetta er í raun algjör pynting. Það er ómögulegt að ímynda sér sársaukann. Jafnvel þótt þér sé byrlað eitrið í litlu magni muntu þjást svo vikum skiptir. Víl Mírzajanov efnafræðingur Ákvarðanir Breta og Rússa um að reka erindreka hvorir annarra úr landi eru afturhvarf til kalda stríðsins, ef marka má umfjöllun Washington Post. Miðillinn greindi frá því að ákvörðun Breta um að vísa 23 erindrekum, sem þeir telja raunar njósnara, úr landi væri sú umfangsmesta sinnar tegundar frá því 1985. Þá, fyrir rúmum þrjátíu árum, ráku Bretar 25 meinta sovéska njósnara úr landi. Var það gert eftir að fyrrverandi KGB-liðinn Oleg Gordjevskí flúði til Bretlands og sagði þeim frá njósnaneti Sovétmanna. Ef út í það er farið sagði Gor- djevskí frá því árið 2008 að rúss- nesk yfirvöld hefðu eitrað fyrir honum í nóvember 2007 með þallíni. Eftir brottvísanirnar 1985 hófst sams konar hanaslagur þar sem vísað var á brott á víxl. Það leiddi loks til þess að Bretar ráku 31 Sovétmann úr landi og Sovétríkin jafnmarga Breta. Afturhvarf til kalda stríðsins Bretland Engin ástæða er til að efast um það mat breskra yfirvalda að Rússar hafi eitrað fyrir Sergei og Júlíu Skrípal með taugaeitri í Salisbury þann 4. mars síðastlið­ inn. Þetta sagði Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafs­ bandalagsins, í gær. Sagði hann jafnframt að Bretar stæðu ekki einir í málinu heldur myndu ríki Atlants­ hafsbandalagsins fylkja sér að baki ríkisstjórn Theresu May. Sergei Skrípal var rússneskur gagnnjósnari fyrir Breta. Hann var fangelsaður í heimalandinu árið Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Aðalfundir deilda KEA 2018 Verða haldnir sem hér segir: Deildarfundur Vestur – Eyjafjarðardeildar verður haldinn miðvikudaginn 21. mars kl.15:30 í Leikhúsinu á Möðruvöllum Deildarfundur Út – Eyjafjarðardeildar verður haldinn miðvikudaginn 21.mars kl. 17:30 í Safnaðarheimilinu í Dalvíkurkirkju Deildarfundur Þingeyjardeildar verður haldinn mið- vikudaginn 21. mars kl. 20:30 á Veitingahúsinu Sölku á Húsavík Deildarfundur Austur – Eyjafjarðardeildar verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 15:00 í Gamla bænum á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit Deildarfundur Akureyrardeildar verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 20:00 á Veitingahúsinu Greifanum, annarri hæð Á fundunum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins Deildarstjórnir Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við útgáfu skáldverka höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu orðsins. Umsóknarfrestur er til 16. apríl 2018 Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á www.islit.is 1 7 . m a r s 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 8 -8 6 6 C 1 F 3 8 -8 5 3 0 1 F 3 8 -8 3 F 4 1 F 3 8 -8 2 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.