Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 36

Fréttablaðið - 17.03.2018, Page 36
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 , „Ég fékk hálfs árs söngleikja- pásu en var rosa spennt að byrja aftur, þetta er svo gaman. Rocky Horror og Mamma Mia eru gjörólíkir söng- leikir og það gerir leiklistina einmitt svo skemmtilega,“ segir Þórunn Arna. MYND/ANTON BRINK Miðað við viðbrögðin sem við höfum fengið á ég von á að þetta verði dúndur- sýning. Við byrjuðum að æfa í janúar og undanfarnar vikur hafa verið mjög annasamar. Fátt annað en Rocky Horror Picture Show hefur komist að í lífi mínu,“ segir Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem leikur Janet Weiss, eitt aðalhlut- verkið í þessum sívinsæla söngleik. Hún notaði gærdaginn til að fara í ræktina og slakaði síðan vel á áður en stóra stundin rann upp. „Á frumsýningardegi finn ég alltaf bæði fyrir stressi og eftirvæntingu og held að það sé bara heilbrigt. Í mínum huga er frumsýningardagur einnig hátíðisdagur. Við erum að uppskera árangur eftir mikla vinnu undanfarnar vikur.“ Þórunn er ekki óvön því að standa á sviði og leika og syngja en hún var í einu stærsta hlutverkinu í Mamma Mia sem sýnt var í Borgar- leikhúsinu en sú sýning sló öll aðsóknarmet fyrr og síðar. „Ég fékk hálfs árs söngleikjapásu en var rosa spennt að byrja aftur, þetta er svo gaman. Rocky Horror og Mamma Mia eru gjörólíkir söngleikir og það gerir leiklistina einmitt svo skemmtilega. Hún er svo fjöl- breytt og maður er aldrei að gera það sama,“ segir Þórunn sem er að vonum ánægð með viðtökurnar í gærkvöldi en þakið ætlaði bókstaf- lega að rifna af leikhúsinu vegna fagnaðarláta. Tónlistarnámið leiddi hana út í leiklistina Þórunn er frá Ísafirði og var ung að aldri þegar hún hóf tónlistarnám sem leiddi hana síðar út í leiklistina. „Hluti af því að alast upp á Ísafirði er að læra á hljóðfæri við tónlistar- skólann, sem er ótrúlega flottur skóli. Við Ísfirðingar erum ekkert smá ríkir að eiga þennan skóla. Ég byrjaði í forskóla sex ára gömul, fór svo í fiðlunám og síðar píanónám samhliða því. Á unglingsárunum byrjaði ég í söngnámi og var í öllum kórum og strengjasveitum sem hægt var. Þetta var bara lífið mitt fyrir vestan,“ rifjar Þórunn upp. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði flutti hún til Reykjavíkur til að fara í frekara nám. „Ég fann snemma að hjartað sló í leiklistinni. Ég vissi vel að það væri harður heimur og erfitt að komast í góðan leiklistarskóla og var stöðugt að reyna að finna út hvort það væri eitthvað annað sem mig langaði að gera. Ég fór því í söngnám við Listaháskólann og lauk því en fann svo sterkt að mig langaði að standa á sviði. Það var draumur sem ég gat ekki annað en látið rætast,“ segir Þórunn um tildrög þess að hún lagði leiklistina fyrir sig. Hún útskrifaðist frá leik- listardeild Listaháskóla Íslands 2010 og hefur leikið í fjölmörgum sýningum síðan þá. „Tónlistarnámið á Ísafirði var mjög góður undirbúningur fyrir leiklistarnámið og þar liggur minn grunnur. Sigríður Ragnars- dóttir, sem lengst af var skólastjóri tónlistarskólans, er ein af mínum fyrirmyndum í lífinu. Eljan og krafturinn sem hún setti í tónlistar- og menningarlífið á Ísafirði er aðdá- unarvert. Þegar ég kem vestur finn ég alltaf fyrir mikilli hlýju og velvild bæjarbúa og þykir mjög vænt um það.“ Svakaleg vika að baki Vinnutími leikara er óreglulegur en Þórunn segir það henta sér ágæt- lega. „Það er bara partur af lífinu og ég pæli ekkert sérstaklega í því. Vissulega getur verið mikið púslu- spil að skipuleggja vinnuna og fjöl- skyldulífið, ekki síst því maðurinn minn, Vignir Rafn Valþórsson, er líka leikari og leikstjóri. Hann var með frumsýningu á miðvikudaginn á leikritinu Hans Blær eftir Eirík Norðdahl sem sýnt er í Tjarnarbíói og ég í gær þannig að þessi vika er búin að vera svakaleg fyrir heimilis- lífið,“ segir Þórunn. Kynntust í sumarleikriti Leiklistin leiddi þau Þórunni og Vigni Rafn saman en þau eiga saman fjögurra ára dóttur. „Hann var að útskrifast sem leikari frá Listaháskólanum þegar ég var að byrja í náminu. Leiðir okkar lágu svo saman í sumarleiklistarverkefni þar sem við kynntumst betur. Við höfum gott fólk í kringum okkur sem er boðið og búið að aðstoða okkur. Foreldrar okkar beggja hafa t.d. reynst okkur ótrúlega vel. Við minnum hvort annað reglulega á hvað við erum heppin í þessum efnum. Vikurnar tvær fyrir frum- sýningu er dóttir okkar mikið í pössun hjá ömmu og afa og hún tekur þessu róti ótrúlega vel en svona umstang getur auðvitað verið erfitt fyrir börn. Ég get þá leyft mér að einbeita mér algjörlega að leikhúsinu og er þakklát fyrir það. Þá er líka hugurinn algjörlega þar. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Vinir mínir og fjölskylda eru orðin vön því að ég hverfi algjörlega af yfirborði jarðar þegar það styttist í frumsýningu.“ Fjallgöngur á dagskránni Þegar Þórunn á frí notar hún tímann til að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni og hún segir það vega upp á móti því hversu langir vinnudagarnir geti verið. „Mér finnst t.d. gaman að ferðast og skipulegg helst eina utan- landsferð á ári. Ég hef líka mikla ánægju af því að ferðast um Ísland. Í fyrra fórum við Vignir Rafn með vinum okkar í þriggja daga göngu um hálendið og eftir það verður ekki aftur snúið. Það var eitt það stórkostlegasta sem ég hef gert og við erum þegar farin að skipuleggja næstu göngu. Reyndar á ég til að ofskipuleggja sumarfríið, kannski af því að ég vinn svo mikið. Ég hef upplifað sumur þar sem ég er ekkert heima hjá mér og gleymi stundum hvað það er líka dásamlegt að vera heima.“ Ólíklegt er að Þórunn verði mikið heima hjá sér á næstunni því aldrei áður hafa jafnmargir miðar selst á jafnstuttum tíma á eina leiksýningu og Rocky Horror Picture Show. „Við finnum að það er mjög mikill spenningur fyrir sýningunni og ég er að vinna með frábæru fólki. Ég bið ekki um meira.“ Á frumsýningar- degi finn ég alltaf bæði fyrir stressi og eftirvæntingu og held að það sé bara heilbrigt. Þórunn og Haraldur Ari Sefánsson í hlutverkum sínum í Rocky Horror Show. Lifandi fréttamiðill með nýjustu fréttum allan sólarhringinn ásamt ítarlegri umöllun um málefni líðandi stundar. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 8 -D F 4 C 1 F 3 8 -D E 1 0 1 F 3 8 -D C D 4 1 F 3 8 -D B 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.