Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 38

Fréttablaðið - 17.03.2018, Side 38
Búi Bjarmar Aðalsteinsson segir margar spurningar hafa vaknað í tengslum við verkefnið Afrakstur verkefnisins er nú sýndur í Aðalstræti 2 á HönnunarMars. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Marokkóbúar nota yfirleitt kúskús sem meðlæti með pottréttum sínum. Þessi réttur á ættir að rekja til Norður-Afríku. Hann er bragðmikill en samt svo- lítið öðruvísi matreiðsla en við erum vön á lambakjöti. En það væri gaman að prófa. Uppskriftin miðast við fjóra. 1 kg gott lambakjöt í bitum, til dæmis innralæri 1 laukur 4 stór hvítlauksrif 2 msk. fersk engiferrót 4 stórir vel þroskaðir tómatar 1 tsk. cumin 2 tsk. túrmerik 1 kanilstöng 3 dl kjötkraftur 100 g þurrkaðar apríkósur 1 dl möndluflögur 1-2 msk. harissa Nokkrir dropar af sítrónusafa Kóríanderlauf Granateplakjarni Salt og pipar Olía Skerið kjötið í bita og saltið og piprið. Skerið lauk og hvítlauk í þunnar sneiðar og deilið tómötum í fjóra parta. Takið fræin úr og skerið þá enn smærra. Hitið olíu á pönnu og steikið kjötið. Færið kjötið síðan yfir í góðan pott. Steikið lauk, hvítlauk og engifer á pönnunni þangað til allt fer að mýkjast. Bætið þá cumin, kanil og túrmerik út í. Steikið áfram í nokkrar mínútur en setjið síðan yfir kjötið. Setjið gjarnan smá vatn á pönnuna til að leysa upp bragð og setjið út í pottinn. Bætið tómötum, harissa-kryddi og kjötkrafti saman við. Látið malla undir loki í um það bil eina klukkustund. Þá eru apríkósur og möndlur settar saman við. Látið réttinn malla áfram undir loki í 30 mínútur og hrærið af og til. Bragðbætið með smávegis sítrónusafa og meira harissa ef þörf er á því að rétturinn sé sterkari. Harissa er norðurafrískt krydd- mauk sem inniheldur meðal annars chili, tómat og hvítlauk. Ef harissa er ekki fáanlegt má nota sterka chili-sósu í staðinn.  Lamb að hætti Marokkóbúa Verkefnið snýst um að finna leiðir til þess að efla starfsgetu og starfsánægju á vinnustof- unum fanga á Litla-Hrauni. Mörg verkefnanna sem þar hafa verið unnin hingað til hafa ekki verið gefandi fyrir þann sem vinnur þau en í samtali okkar við fangaverðina og verkstæðisstjórana komumst við að því að verkefni þar sem fangarnir fengu tækifæri til að fylgja verkinu frá upphafi til enda hafa gefist miklu betur. „Maður þekkir tilfinninguna sjálfur, að byrja á einhverju og sjá það verða að fullkláruðum hlut,“ útskýrir Búi Bjarmar Aðalsteins- son, vöruhönnuður og stofnandi hönnunarstúd íósins Grallaragerð- arinnar, en hann stýrði samstarfs- verkefni hönnuða og fanga á Litla- Hrauni í sumar, um þróun vörulínu sem framleidd er á verkstæðum Litla-Hrauns. Afraksturinn, sippu- bönd, tafl, klukka og leikfangabílar, er nú sýndur á HönnunarMars í Aðalstræti 2. Búi segir verkefnið hafa verið krefjandi á margan hátt. „Hugmyndin er að búa til port- folio af verkefnum sem geta bæði hjálpað föngum að finna eitthvað Samvinna hönnuða og fanga Stússað í steininum er yfirskrift samstarfsverkefnis Grallaragerðarinnar hönnunarstúdíós og Litla- Hrauns. Þróuð var vörulína sem framleidd er á verkstæðum fangelsisins. Sýnt á HönnunarMars. sem þeir hafa áhuga á og einnig að þjálfa upp starfshæfni,“ segir Búi. „Það blasir við að margir hafa ekki endilega reynslu af vinnu á tré- smíðaverkstæði og því leggjum við upp úr að aðferðirnar séu einfaldar, hver og einn hlutur krefjist ekki sérþekkingar og ekki þurfi að nota nema tvö til þrjú verkfæri við smíð- ina. Að auki er fangelsi ekki eins og hefðbundinn vinnustaður, þarna staldrar fólk mislengi við og því ekki endilega hægt að viðhalda þekk- ingu. Svona verkefni byggjast einnig mikið á trausti og samskiptum, bæði við fangana og fangaverði,“ segir Búi. Miklar tilfinningar hafi fylgt vinnunni og margar áleitnar spurningar komið upp. „Þetta er svo flókið mál, mikið tabú og svona verkefni gæti auðveld- lega misskilist. Hvernig er best að miðla svona verkefni? Finnst okkur að fangar eigi skilið að koma aftur út í samfélagið? Við reyndum að hafa samband við sem flesta í þróunar- ferlinu og töluðum meðal annars við Stígamót og reyndum að fá skilning á því hvernig væri best að miðla verkefninu. En þetta gekk vel. Það voru allir mjög jákvæðir. Ég held að allir hafi verið sammála um að allt sem við getum gert til þess að vinnan innan fangelsis stuðli að því að koma fólki aftur inn í samfélagið og koma í veg fyrir að fólk brjóti af sér aftur, eigi rétt á sér,” segir Búi. Verkefnið á að efla starfsgetu og starfsánægju innan fangelsisins. VORIÐ ER KOMIÐ Í TÍSKUNA 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 7 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 3 8 -F 3 0 C 1 F 3 8 -F 1 D 0 1 F 3 8 -F 0 9 4 1 F 3 8 -E F 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 1 6 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.